Fréttablaðið - 03.01.2013, Page 2

Fréttablaðið - 03.01.2013, Page 2
3. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Saga, ertu drengur góður? „Já, en stundum þarf ég að sitja á strák mínum.“ Leikkonan Saga Garðarsdóttir hefur leikið mörg drengjahlutverk það sem af er ferl- inum. Hún leikur meðal annars aðalsmann- inn Lenoff og tré í Macbeth í Þjóðleikhúsinu. HJÁLPARSTARF Milljónir Evrópubúa, sem bjuggu við velmegun fyrir ekki svo löngu, eiga nú í erfiðleik- um með að afla sér matar. Það er mat Alþjóða Rauða krossins að Evrópa þurfi þess vegna að búa sig undir uppreisnir, eins og þær sem skekið hafa Norður-Afr- íku. Framkvæmdastjóri Alþjóða Rauða krossins, Yves Daccord, segir í viðtali við Politiken að í mörgum Evrópulöndum verði samtökin nú að beina sjónum sínum í meira mæli að fátækum í eigin landi, heldur en að hjálparstarfi utan Evrópu. Dæmi um raunverulega kreppu er yfirvofandi gjaldþrot Rauða krossins í Grikklandi. Á Spáni var öllu söfnunarfé í fyrra varið til að hjálpa íbúum lands- ins. Samkvæmt frétt Politiken leituðu um tvær millj- ónir aðstoðar hjá Rauða krossinum á Spáni, af þeim eru 300 þúsund sögð sárafátæk. Svenska Dagbladet hefur það eftir framkvæmda- stjóra Rauða krossins í Svíþjóð, Ulriku Årehed Kåg- ström, að 12 Rauða kross-samtök innan Evrópusam- bandsins séu með matarúthlutanir í sínum löndum. Nýjar tölur frá Evrópusambandinu sýni að næst- um 120 milljónir íbúa í aðildarríkjum þess lifa undir fátæktarmörkum. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins lítur ástandið svo alvarlegum augum að hún hefur lagt til að jafngildi um 400 milljarða íslenskra króna verði settir í nýjan sjóð til hjálpar þeim sem verst eru staddir. - ibs Viðvörun frá Alþjóða Rauða krossinum vegna fátæktar Evrópubúa: Telja að uppreisna sé að vænta í Evrópu MÓTMÆLI Í GRIKKLANDI Gjaldþrot vofir yfir Rauða krossinum þar í landi. NORDICPHOTOS/AFP SLYS „Ég heyrði nuddhljóð í gúmmíi og fór þá að toga í hana, en áttaði mig þá á því að hún var pikkföst. Trappan hafði læst sig í stígvélið hennar sem festist meira eftir því sem við komum neðar. Ég náði að kippa henni úr á endanum en þá hélt stígvélið áfram og rifnaði í sundur.“ Þetta segir Aðalheiður Jensen, móðir hinnar rúmlega tveggja ára gömlu Anítu Glóar, um heldur óskemmtilegt atvik sem átti sér stað í rúllustiganum í verslunarmiðstöð- inni Firði í Hafnarfirði skömmu fyrir jól. „Ég brást við eins og sönn móðir og fór að öskra. Hún varð ekkert vör við þetta sjálf fyrr en ég fór að tosa í hana.“ Mæðgurnar voru á leið niður rúllu- stigann í Firði þegar stígvél Anítu festist í stiganum. Móðir hennar náði naumlega að koma stúlkunni úr stíg- vélinu, en það hélt áfram með stig- anum eins og áður sagði og rifnaði í sundur. Því var mikil mildi að ekki fór verr. „Henni brá mjög mikið og var óhuggandi alveg þar til hún sofnaði,“ segir Aðalheiður. „Ég hélt líka að hún væri í molum því ég togaði svo fast í hana, svo ég fór með hana á heilsu- gæslustöðina. Það er allt í lagi með beinin en hún haltrar enn þá og er með ör á kálfanum eftir rúllustigann.“ Hún hefur ekki farið með Anítu litlu í rúllustiga eftir atvikið. „Það verður haldið á henni hér eftir.“ Þetta er í annað sinn á nokkrum árum sem svona slys gerist í rúllu- stiganum í Firði, að sögn Alberts Más Steingrímssonar framkvæmdastjóra. Fyrra skiptið var um að ræða barn í fylgd með afa sínum og var það einnig í stígvéli. „Það er í raun ekki hægt að gera neinar breytingar á stiganum,“ segir Albert. „Það er gul lína aftast sem maður á að standa fyrir framan og það verður bara að reyna að fara eftir því.“ Stiginn var tekinn út af Vinnueftir- litinu í nóvember eða desember síð- astliðnum og var í hundrað prósent lagi, að sögn Alberts. Hann bendir á að gúmmístígvél séu þó sérstak- lega slæm hvað þetta varðar, þar sem gúmmíið getur verið verulega stamt og því fest í stiganum. „Þetta er eitt af þessum slysum sem gerast og því miður ekkert hægt að lagfæra nema passa sig betur,“ segir hann. sunna@frettabladid.is Rétt slapp úr stígvéli áður en stiginn át það Móður tveggja ára stúlku tókst naumlega að losa dóttur sína úr stígvéli sem fest hafði í rúllustiga. Telpan hlaut minniháttar skrámur en haltrar eftir slysið. Vinnu- eftirlitið vottaði rúllustigann í nóvember, segir framkvæmdastjóri Fjarðar. ENN ÞÁ MEIDD EFTIR STIG- ANN Aníta Gló haltrar enn eftir að hafa fest stígvélið sitt í rúllustiga rétt fyrir jól. Móðir hennar náði naumlega að koma henni úr stígvélinu áður en það gjöreyðilagðist. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ég brást við eins og sönn móðir og fór að öskra. Aðalheiður Jensen Herdís Storgaard, forstöðu- maður Forvarnarhússins, segir slys af þessu tagi algeng. Sambærileg atvik hér á landi séu orðin á þriðja tug á rúmum tuttugu árum. „Þess ber að geta að ekki eru gular línur í öllum stigum en slíkt getur valdið misskilningi. Einnig eru aðvörunarmerkingar mjög misjafnar og stundum lítt áberandi.“ Þá bendir hún á að nauð- synlegt sé að neyðarhnappar í rúllustigum séu vel sýnilegir svo hægt sé að stoppa tröppurnar ef eitthvað kemur fyrir. Á þriðja tug rúllu stiga slysa á 20 árum ALGENG SLYS Forstöðumaður Forvarnarhúss segir slys af þessu tagi töluvert algeng. Grínisti til rannsóknar 1 EGYPTALAND Egypski sjónvarpsgrínistinn Bassem Youssef sætir nú rann-sókn vegna gruns um að hann hafi gert lítið úr Mohammed Morsi forseta í þætti sínum. Þá hafa stjórnvöld kært útbreitt dagblað fyrir að breiða út ósannar fréttir. Óháðir blaðamenn í Egyptalandi og fjölmiðlar stjórnarandstöð- unnar hafa æ meiri áhyggjur af því að stjórn Egyptalands muni á næstunni beita ritskoðun óspart gegn gagnrýnendum. Chavez ekki í dái 2 VENESÚELA Hugo Chavez, forseti Venesúela, kom aftur til landsins í gær eftir erfiða aðgerð sem hann gekkst undir á Kúbu fyrir þremur vikum vegna krabbameins. Nicolas Marduro varaforseti segir ekki rétt að Chavez sé í dái, eins og orðrómur hefur verið um. Hins vegar sé ástand hans viðkvæmt. Óvíst er hvort Chavez hefur heilsu til að gegna forsetaembættinu áfram. Myndasaga um Múhameð 3 FRAKKLAND Franska skoptímaritið Charlie Hebdo hefur gefið út mynda-sögu um ævi Múhameðs spámanns. Charb, ritstjóri tímaritsins, býr sig jafnframt undir heiftúðug viðbrögð frá strangtrúuðum múslímum, sem telja það guðlast að birta myndir af spámanninum, hvað þá skopmyndir. Tímaritið hefur áður birt skopmyndir af Múhameð og fengið yfir sig gusu svívirðinga og hótana fyrir vikið. HEIMURINN 2 1 3 SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.