Fréttablaðið - 03.01.2013, Qupperneq 4
3. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
ALMANNAVARNIR Snjóflóðavakt
Veðurstofunnar ákvað í gærkvöldi
að rýma reit 9 á Ísafirði og bæina
Veðrará og Fremri-Breiðadal í
Önundarfirði.
Þá ákváðu Almannavarnir í
Skagafirði, í samráði við snjó-
flóðavakt Veðurstofunnar, að
loka svæðinu norðan göngubrúar
í Kvosinni á Hofsósi vegna snjó-
flóðahættu. Miklar snjóhengjur
eru í bökkunum ofan við svæðið
og talin hætta á að þær falli fram.
„Víða á landinu eru hlýindi og
rigning og rétt að fólk fylgist með
niðurföllum við hús sín vegna
hættu á að snjór og klaki stífli þau
með tilheyrandi hættu á vatns-
tjóni,“ segir í tilkynningu.
Hætta vegna snjóflóða:
Snjóflóðahætta
á Vestfjörðum
og Hofsósi
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkurinn
er sem fyrr stærsti stjórnmála-
flokkur landsins með 36,3% fylgi
ef marka má nýjan þjóðarpúls
Gallup. Fylgi flokksins breytist
lítið milli kannana.
Vinsældir ríkisstjórnarflokk-
anna minnka hins vegar; Sam-
fylkingin mælist með 19,1% fylgi
og Vinstri græn með 9,1%. Hafa
Vinstri græn ekki mælst með
minna fylgi frá september 2003.
Framsókn mælist með 13,1%
fylgi sem er svipað og í síðustu
könnun. Hins vegar eykst fylgi
Bjartrar framtíðar verulega og
mælist 12,3% sem myndi duga
fyrir níu þingmönnum.
Dögun, Hægri grænir, Píratar
og Samstaða mælast með fylgi á
bilinu 1,3 til 3,0% og kæmu ekki
mönnum á þing. - mþl
VG ekki minni síðan 2003:
Fylgi Bjartrar
framtíðar eykst
231,663
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,27 127,87
207,49 208,49
168,53 169,47
22,588 22,72
23,004 23,14
19,71 19,826
1,4613 1,4699
195,92 197,0
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
2.1.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
N
NNNNNN
T
O
N
T
O
NN
O
N
T
O
NNN
T
O
N
T
O
NNNNNN
T
O
N
T
O
NNN
F
ÍT
O
N
ÍT
O
N
O
N
T
O
N
O
NNN
O
N
T
O
NN
O
N
O
N
O
N
T
O
N
OO
N
ÍT
OOOO
Í
OOOOOO
T
O
T
OOO
T
OO
T
O
T
OO
T
O
ÍTT
O
ÍT
OO
F
Í
F
ÍTÍTÍTÍT
F
ÍT
F
ÍTT
F
ÍTTTÍTTÍTÍÍÍ
FFF
S
ÍA
S
ÍA
A
A
S
ÍA
S
ÍA
AÍA
ÍA
S
ÍA
S
ÍA
S
ÍA
S
ÍAÍAÍAÍAÍAÍA
S
ÍA
/
S
ÍAÍA
/
S
ÍA
/
S
ÍAA
S
ÍAAÍA
S
ÍA
S
ÍAÍA
SS SS/
SSSS
/
SSSSSSSSSSSSSSSSSS
/ / / /////
0
4
3
2
0
4
3
2
3
2
0
4
3
2
0
4
3
2
F
I0
4
3
2
4
3
2
4
3
2
F
I0
4
3
2
F
I0
4
3
2
0
4
3
2
0
4
3
2
F
I0
4
3
22
3
2
0
4
3
2222222
3
2
4
3
2222
0
4
3
2
0
4
3
2
4
3
2
3
2
3
222222222
0
3333
0
4
3333
0
4
333
0
4
3
0
4
33333
0
4
3333333333333333333333333333333
4
3
44444444444444444
0
4444
0
444
F
I0
F
I000000000000
F
5
9
5
9
5
9
5
99
5
99
5
9
5
9
5
99
5
9
5
9
5
99
5
99
5
999
5
99
5
9
5
9
555555555555
568 8000 | borgarleikhus.is
Rómantískur gamanleikur
í leikstjórn Sigga Sigurjóns og Bjarna Hauks
SÝRLAND, AP Átökin í Sýrlandi hafa kostað
meira en 60 þúsund manns lífið, samkvæmt
nýju mati Sameinuðu þjóðanna. Þetta er
hærri tala en samtök sýrlenskra stjórnar-
andstæðinga eru með, en þau segja átökin
hafa kostað meira en 45 þúsund manns lífið.
Vegna þess hve takmarkaðar og óáreið-
anlegar upplýsingar hafa borist af átökun-
um er vel hugsanlegt að mannfallið sé enn
meira.
„Fjöldi látinna er miklu hærri en við
bjuggumst við, og það er sannarlega áfall,“
sagði Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sam-
einuðu þjóðanna, sem lét gera rannsóknina.
Átök stjórnarhersins og uppreisnarmanna
hófust fyrir nærri tveimur árum með frið-
samlegum mótmælum stjórnarandstæðinga
sem stjórnarherinn svaraði af fullri hörku.
Í gær létust tugir manna þegar árás var
gerð á bensínstöð skammt frá höfuðborginni
Damaskus. Mikill eldur braust út í kjölfar
árásarinnar, og virtist þetta ætla að verða
ein mannskæðasta árásin frá upphafi átak-
anna. - gb
Sameinuðu þjóðirnar leggja mat á það hversu margir hafa fallið í átökunum í Sýrlandi:
Meira en sextíu þúsund manns eru látnir
ÁRÁS Á BENSÍNSTÖÐ Árásin í gær virtist ætla að
verða ein sú mannskæðasta frá upphafi átakanna.
NORDICPHOTOS/AFP
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Strekkingsvindur sums staðar, bætir í
úrkomu síðdegis.
LÆGÐAGANGUR verður yfir landinu næstu daga með tilheyrandi úrkomu og vindi.
Úrkoman verður aðallega í formi rigningar enda hitastigið yfir frostmarki. Má því
búast við asahláku og hálku.
1°
2
m/s
3°
6
m/s
3°
6
m/s
6°
7
m/s
Á morgun
Strekkingsvindur eða hvassviðri.
Gildistími korta er um hádegi
4°
3°
4°
1°
1°
Alicante
Aþena
Basel
14°
15°
3°
Berlín
Billund
Frankfurt
9°
8°
10°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
7°
7°
7°
Las Palmas
London
Mallorca
20°
13°
14°
New York
Orlando
Ósló
1°
22°
3°
París
San Francisco
Stokkhólmur
13°
13°
1°
3°
4
m/s
4°
9
m/s
3°
7
m/s
3°
8
m/s
1°
6
m/s
1°
8
m/s
-2°
10
m/s
8°
3°
6°
6°
7°
EVRÓPUMÁL
Hvar eru sjávarútvegsmálin stödd í
aðildarviðræðum við ESB?
Af þeim 33 samningsköflum sem
eru til umræðu í aðildarviðræð-
um Íslands og ESB hafa formleg-
ar viðræður hafist í 27 og lokið til
bráðabirgða í ellefu. Eftir síðustu
ríkjaráðstefnu í Brussel standa sex
kaflar því enn eftir og þar á meðal
þeir tveir veigamestu, um sjávarút-
veg og landbúnað.
Fram hefur komið í Fréttablaðinu
að vonir innan framkvæmda-
stjórnar ESB standi til þess að í
lok júní verði viðræður hafnar um
alla samningskaflana nema sjávar-
útveg og landbúnað og samkvæmt
heimildum blaðsins gildir það sama
innan íslenska samningahópsins.
Framvinda samningaviðræðna í
einstökum köflum er háð ákveðnu
ferli þar sem framkvæmdastjórnin
ber íslensk lög og reglur saman
við lagabálk ESB. Svokölluð rýni-
skýrsla er svo borin undir ráðherra-
ráðið sem er samansett af fulltrú-
um frá aðildarríkjunum. Þegar öll
ríkin hafa samþykkt skýrsluna er
hún lögð fram og íslenskum yfir-
völdum boðið að leggja fram samn-
ingsafstöðu þar sem farið er fram
á sérlausnir eða að tillit sé tekið til
sérstakra aðstæðna hér á landi. Ein-
ungis þá er hægt að hefja samnings-
viðræður formlega.
Stefan Füle, stækkunarstjóri
ESB, sagði aðspurður á ríkjaráð-
stefnunni fyrir jól að sjávarútvegs-
kaflinn hefði verið afgreiddur frá
framkvæmdastjórninni og væri
nú til umfjöllunar hjá aðildarríkj-
unum.
Á meðan er íslenski samninga-
hópurinn um sjávarútveg, sem
samanstendur meðal annars af
fulltrúum hagsmunaaðila, eins og
útvegsmanna og sjómanna, og úr
stjórnsýslunni, að vinna að samn-
ingsafstöðu Íslands.
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra sagði í viðtali við RÚV
fyrir jól að sú vinna gengi vel og
væri takmarkið að ná sem breið-
astri sátt.
Erfitt er að spá um hvenær næsta
skref verður tekið og rýniskýrsl-
an verður lögð fram, en heimildir
Fréttablaðsins herma að einstök
aðildarríki krefjist meiri yfirlegu
en önnur.
Ekki er hægt að líta fram hjá
áhrifum makríldeilunnar í þeim
efnum. Þó margoft hafi verið reynt
að undirstrika að deilan tengist við-
ræðunum ekki beint er ljóst að þó
að viðræður gætu hafist áður en
samkomulag næst munu lokasamn-
ingar ekki nást um sjávarútveg fyrr
en makríldeilan leysist, enda er þar
um að ræða deilistofn ólíkt hinum
staðbundnu stofnum á Íslandsmið-
um.
Írar, sem eru einn helsti andstæð-
ingur Íslands í makrílmálum meðal
ESB-ríkja, fara með forystu í ESB
fyrri helming ársins, þannig að afar
ólíklegt verður að þykja að viðræð-
ur um sjávarútveg hefjist fyrr en
vonir standa til.
thorgils@frettabladid.is
Sjávarútvegskaflinn strand hjá
Evrópusambandsríkjunum
Þó samningsafstaða Íslands liggi ekki enn fyrir hefur utanríkismálanefnd
Alþingis lagt fram meginmarkmið um forræði yfir sjávarútvegsauðlindinni.
Þar er meðal annars kveðið á um að stjórn fiskveiða og skipting aflaheim-
ilda innan lögsögunnar verði áfram á hendi íslenskra stjórnvalda og reynt
verði að halda möguleika á að takmarka fjárfestingar erlendra aðila í
íslenskum sjávarútvegi.
Megináherslur Íslands liggja fyrir
BUNDINN VIÐ BRYGGJU Samningaviðræður milli Íslands og ESB um sjávarútveg
komast ekki á næsta stig fyrr en aðildarríkin ljúka við að afgreiða rýniskýrslu um
íslenska löggjöf.
Samningaviðræður milli Íslands og ESB um sjávarút-
vegsmál komast ekki á næsta stig fyrr en aðildarríki
ESB ljúka rýnivinnu. Lokasamningur háður samkomu-
lagi um skiptingu aflahlutdeildar í makrílstofnum.