Fréttablaðið - 03.01.2013, Síða 8

Fréttablaðið - 03.01.2013, Síða 8
3. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Veistu hver ég var? Siggi Hlö Heitasta partýið í bænum! Laugardaga kl. 16 – 18.30 BANDARÍKIN Barack Obama Bandaríkjaforseti fagnaði því á nýársdag að geta „undirritað lög sem hækka skatta á auðugustu tvö prósent Bandaríkjamanna og koma jafnframt í veg fyrir skattahækkanir sem hefðu getað sent efnahagslífið aftur í kreppu“. Báðar deildir Bandaríkjaþings samþykktu á síðustu stundu málamiðlunarfrumvarp, þar á meðal umdeildar skattahækkanir á auðkýfinga, þrátt fyrir að helstu leiðtogar repúblikana í fulltrúa- deildinni væru andvígir því. Í öldungadeildinni féllu atkvæðin 89 á móti 8 en í fulltrúa- deildinni 257 á móti 167. Málamiðlunarsamkomulagið setti hins vegar mörg erfiðustu deilumálin á frest, og munar þar mest um lögbundið skuldaþak ríkissjóðs, sem nú er 16,4 millj- arðar dala, en þarf að hækka fyrir febrúarlok eigi ríkissjóð- ur að geta mætt nauðsynlegum útgjöldum. „Ef þingið neitar að veita Bandaríkjastjórn heimild til að greiða þessa reikninga á réttum tíma þá yrðu afleiðingarnar fyrir efnahagslíf heimsins skelfilegar – miklu verri en áhrifin af fjár- lagaþverhnípinu,“ sagði Obama. Obama dreif sig reyndar strax aftur til Havaí í gær til að ljúka þar jólafríi sínu, sem hann hafði gert hlé á milli jóla og nýárs til að ná samkomulagi áður en 600 milljarða dala skattahækkanir og ríflega 100 milljarða niðurskurð- ur tækju sjálfkrafa gildi. Niðurskurði á útgjöldum, meðal annars til hermála, var frestað, og sömuleiðis var frestað um tvö ár að fella niður atvinnuleysis- bætur til tveggja milljóna manna, sem hafa verið atvinnulausir til lengri tíma. Og þrátt fyrir fullyrðingar forsetans um að skattar hækki aðeins á hina launahæstu, sem eru með meira 400 þúsund dali í árstekjur, þá hækka skattar sam- kvæmt samkomulaginu í raun um tvö prósent á alla launþega. Nýtt þing kemur saman í Bandaríkjunum í dag og Bar- ack Obama tekur síðan formlega við embætti forseta fyrir seinna kjörtímabil sitt þann 21. janúar. Meirihluti demókrata í öldunga- deildinni jókst nokkuð, en þeir eru enn í minnihluta í fulltrúa- deild. gudsteinn@frettabladid.is Bandaríska þingið frestaði vandanum Eftir aðeins fáar vikur gæti næsta ágreiningsmál steypt ríkissjóði Bandaríkjanna í ógöngur. Mikill meirihluti repúblikana samþykkti skattahækkanir á auðmenn í báðum deildum þingsins, þrátt fyrir andstöðu leiðtoga flokksins í fulltrúadeild. JOE BIDEN OG BARACK OBAMA Varaforseti og forseti Bandaríkjanna hrósuðu skammtímasigri. NORDICPHOTOS/AFP Ef þingið neitar að veita Bandaríkjastjórn heimild til að greiða þessa reikninga á réttum tíma þá yrðu afleiðingarnar fyrir efnahagslíf heimsins skelfilegar. Barack Obama forseti Bandaríkjanna SAMGÖNGUR Framvegis verður slembiúr- tak látið duga við eftirlit með skóbúnaði ferðamanna í Leifsstöð. Síðustu ár hafa allir ferðamenn þurft að fara úr skónum við vopnaleit í Leifsstöð. Friðþór Eydal, talsmaður Isavia sem rekur Leifsstöð, segir að fyrirkomulagi skóeftirlitsins hafi verið breytt í desember. Farþegar sem veljast eftir slembiúrtaki þurfa eftir sem áður að fara úr skóm og þá þurfa þeir sem sýna svörun við málmleit að sæta sérstakri skoðun. Með breytingunni er skóeftirlit í Leifs- stöð fært í sama horf og eftirlit á flugvöll- um í nágrannalöndum Íslands í Evrópu. Eftirlit með skóbúnaði flugfarþega er gert að kröfu bandarískra flugöryggisyfirvalda sem hafa nýverið breytt kröfum sínum um skimun farþega. Þá kemur fram í svari Isavia við fyrir- spurn vefmiðilsins Túrista.is, sem greindi fyrstur frá breytingunni, að reynslan í flugverndarskimun í Leifsstöð sýni að almennt sé styttri bið eftir afgreiðslu í öryggisleit þegar allir skór eru skimaðir en við slembiúrtak. Því má álykta sem svo að vopnaeftirlit í Leifsstöð verði ólíklega hraðvirkara en áður með breytingunni. - mþl Framvegis þarf einungis hluti ferðamanna í Leifsstöð að fara úr skónum: Slakað verður á skóeftirliti í Leifsstöð LEIFSSTÖÐ Einungis hluti ferðamanna í Leifsstöð mun fram- vegis þurfa að fara úr skónum við vopnaleit. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FERÐAÞJÓNUSTA Fleiri erlend- ir ferðamenn dvöldust í Reykjavík um áramótin en áður hefur þekkst á þessum árstíma. Nánast öll hótel í borginni hafa verið full síð- ustu daga. „Það voru umtalsvert fleiri ferðamenn hér á landi um áramótin en verið hefur og mjög líflegt,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, og heldur áfram: „Það hefur allt- af verið fullt í Perlunni á gamlárs- kvöld en núna var einnig mikill fjöldi í veitingasölum hótelanna og á þeim veitingahúsum sem voru opin. Þá var talsvert sótt í brennuferðir og fleira sem er í boði þetta kvöld.“ Árið 2012 var algjört metár þegar litið er til fjölda erlendra ferðamanna sem heimsóttu Ísland. Á fyrsta ellefu mánuðum ársins fóru rétt tæplega 619 þúsund ferða- menn frá landinu í gegnum Leifsstöð en þeir voru rétt tæplega 520 þúsund á sama tímabili árið 2011. Erna segir að sömu þættir megi skýra fjölgun ferða- manna yfir áramótin og skýrt hafi fjölgunina yfir árið en þó bætist við tvær þættir. „Við höfum verið með markaðsátak í gangi sem nefnist „Ísland allt árið“ þar sem verið er að vekja athygli á Reykjavík sem borg og Íslandi sem ferðamannastað yfir vetrartímann. Auk þess hefur verið nokkur umfjöllun um Ísland í fjöl- miðlun erlendis upp á síðkastið sem hefur beinst að flugeldasýningum og þeim líflegu áramótum sem við þekkjum,“ segir Erna. - mþl 19,1% er hlutfallsleg fj ölgun ferðamanna sem heimsóttu Ísland fyrstu ellefu mánuði ársins 2012. Fullt á langflestum hótelum Reykjavíkur um áramótin: Metfjöldi túrista um áramótin ERNA HAUKSDÓTTIR BRUNI Flugeldar sprungu í eldhúsi á heimili í Njarðvík á gamlársdag. Húsráðandi var að elda áramóta- steikina og geymdi flugelda við hlið eldavélarinnar. Við hita eldavélarinnar sprungu flugeldarnir og við það kom upp minni háttar eldur. Auk lög- reglunnar á Suðurnesjum kom slökkvilið á vettvang en þá hafði húsráðandi slökkt eldinn. Hann slapp ómeiddur en var að vonum brugðið eftir atvikið. Ekki reynd- ist þörf á að reykræsta húsnæðið. Geymdi flugelda við eldavél: Kviknaði í út frá flugeldum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.