Fréttablaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 10
3. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
FÓLK „Ég er nú gamall maður og
einhvern veginn fannst mér ég
vera kominn á forna slóð,“ segir
Gunnsteinn Gíslason á Bergistanga
í Árneshreppi á Ströndum, spurð-
ur hvort nokkur hátíðarbragur
hafi verið á gamlárskvöldinu í raf-
magnsleysinu sem varði á svæðinu
í þrjá og hálfan sólarhring.
Gunnsteinn, sem er ýmsu vanur,
tekur þó fram að hann sé síður en
svo aðdáandi þess að vera án raf-
magns í lengri tíma. „Þetta er
nærri því náttúrulögmál í þess-
um stórviðrum,“ segir hann. Þrátt
fyrir allt sé hins vegar búið að
bæta línurnar mikið og styrkja
þær og því sé langt síðan hann
hefur verið án rafmagns um svo
langa hríð.
„Þetta er með því mesta í 20
til 30 ár,“ segir Gunnsteinn, sem
hefur heldur aldrei upplifað það
að rafmagnið fari yfir hátíðarn-
ar. „Þetta var í fyrsta skipti sem
maður hefur ekki hátíðarmatinn
sinn í lagi.“
Gunnsteinn og kona hans, Mar-
grét Jónsdóttir, eyddu áramótunum
tvö ein, ornuðu sér við gas prímus
og tókst þrátt fyrir allt að elda sér
prýðilegasta mat um áramótin.
„Það tókst nú til, konan var lagin
og við höfðum þarna einhvern
kjúklingarétt og brúnaðar kart-
öflur. Það var bara nokkuð gott.“
Hjónin eru ekki með olíuknúna
ljósavél eins og margir aðrir í
sveitinni og gátu illa lýst sér eða
hitað húsið. „Hitinn í stofunni var
kominn niður í sjö gráður,“ segir
Gunnsteinn. Þau hafi því haldið til
í minnsta herbergi hússins til að
ofkælast ekki og stytt sér stundir
með því að hlusta á útvarp knúið
rafhlöðum.
Hann segir þau þó hafa sofið vel,
kappklædd. „En auðvitað er maður
guðslifandi feginn þegar þessu
linnir. Það hverfur náttúrulega öll
hreinlætisaðstaða nema klósettið
og maður rýkur ekkert í bað við
þessar aðstæður.“
Börnunum var orðið kalt
Elísa Ösp Valgeirsdóttir, skóla-
stjóri í Finnbogastaðaskóla, var
einnig ljósavélarlaus ásamt manni
sínum og þremur börnum á bænum
Árnesi. „Þeim var orðið kalt – við
vorum hætt að sofa heima hjá
okkur,“ segir hún um börnin sem
yljuðu sér við prímus og gengu um
gólf með kerti.
Annars hafi
krökkunum
liðið ágætlega.
„Þetta er ekki
í fyrsta skipti
sem þetta gerist
þannig að þau
eru orðin nokk-
uð vön.“
Elísa er upp-
alin í Árnes-
h r e p p i o g
fluttist aftur í sveitina 2009. Fjöl-
skyldan var svo heppin að föður-
bróðir Elísu bjó í næsta húsi og gat
skotið yfir þau skjólshúsi á gaml-
árskvöld og á nóttunni.
„Við vorum búin að græja hluta
af matnum á gamlárskvöld og
kláruðum svo að elda þar.“
Og hún lýsir miklu myrkri: „Það
verður myrkur hér – alveg svart
myrkur. Það er engin lýsing í nánd
þannig að það verður alveg rosa-
lega dimmt.“
Fögnuðu með flugeldum
Bjarnheiður Júlía Fossdal, bóndi
á Melum, segir ljósavélarnar hafa
bjargað henni og mörgum sveit-
ungum hennar um áramótin.
„Við höfum aldrei hætt að nota
þær. Rafmagnið kom ekki fyrr en
‘76 eða ‘77 og þá áttu allir ljósa-
mótora. Við vildum ekki láta þá af
hendi og þurftum að gera samning
við Orkubúið um að mega hafa þá
áfram,“ útskýrir hún. Auk þess séu
spýtnakatlar í mörgum húsum sem
hægt sé að hita þau upp með.
„Við vorum orðin ansi langeyg
eftir rafmagninu,“ segir hún samt.
Á næsta bæ hafi fólk fagnað á við-
eigandi hátt að kvöldi nýársdags.
„Þau fóru beint út að skjóta, ekki
endilega út af nýja árinu heldur út
af rafmagninu.“ stigur@frettabladid.is
Elduðu hátíðarmat á
prímus í niðamyrkri
Íbúum Árneshrepps, einkum börnunum, var orðið býsna kalt eftir að hafa verið
án rafmagns í þrjá og hálfan sólarhring. Gunnsteinn Gíslason á Bergistanga segist
varla muna eftir öðru eins í þrjá áratugi. Gamlar ljósavélar björguðu mörgum.
FANNFERGI Snjó hefur kyngt niður á Vestfjörðum um hátíðirnar. Vegagerðin hefur gert sitt besta til að ryðja helstu vegi, eins
og þennan í Ísafjarðardjúpinu. MYND/HAFÞÓR
SNÆDDU KJÚKLINGARÉTT Hjónunum Gunnsteini Gíslasyni og Margréti Jóns-
dóttur tókst að elda sér prýðilegan áramótamat á gasprímusnum.
ELÍSA ÖSP
VALGEIRSDÓTTIR
NISSAN MICRA VISIA
Nýskr. 09/11, ekinn 11 þús. km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 1.990 þús.
Rnr.102122.
Mikið úrval af nýlegum, lítið eknum
bílum á frábæru verði!
Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
NISSAN QASHQAI+2 SE 4x4
Nýskr. 03/12, ekinn 9 þús km.
bensín, sjálfskiptur, 7 manna
Rnr.151594.
HYUNDAI i30 CLASSIC
Nýskr. 11/10, ekinn 17 þús. km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.190 þús.
Rnr.160015.
FORD GALAXY TREND 7 manna
Nýskr. 06/11, ekinn 38 þús km.
dísel, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.490 þús.
Rnr.130383.
HYUNDAI i10
Nýskr. 06/10, ekinn 36 þús. km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 1.290 þús.
Rnr.190685.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 05/12, ekinn 27 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.790 þús.
Rnr.130383.
HYUNDAI IX35 GLS
Nýskr. 04/12, ekinn 10 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.990 þús.
Rnr.102131.
Frábær kaup kr.
5.290 þús.
Gerðu frábær kauphjá Bílalandi BL
Gott úrval
af 4x4 bílum
Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði!
Bergistangi
NORÐURFJÖRÐUR
IN
GÓ
LF
SF
JÖ
RÐ
UR
REYKJARFJÖ
RÐUR
Melar 1
Árnes
Þau fóru beint út að
skjóta, ekki endilega út af
nýja árinu heldur út af
rafmagninu.
Bjarnheiður Júlía Fossdal
Bóndi á Melum í Árneshreppi