Fréttablaðið - 03.01.2013, Page 12

Fréttablaðið - 03.01.2013, Page 12
3. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 12 Rekstrarvörur - vinna með þér Höfðatorg ehf. fékk 15 milljarða króna skuldaniðurfellingu við end- urskipulagningu félagsins. Fyrr- um eigandi félagsins á samt sem áður enn 27,5 prósenta hlut í því. Þetta kemur fram í ársreikningi Höfðatorgs fyrir árið 2011 sem skilað var inn til ársreikninga- skráar nýverið. Aðilar að nauða- samningi félagsins hafa aldrei viljað gefa upp umfang skuldanið- urfærslunnar. Vegna skuldaniður- fellingarinnar var bókfærður hagnaður Höfðatorgs 11,5 millj- arðar króna og eigið fé félagsins fór úr því að vera neikvætt um 10,6 milljarða króna í að vera jákvætt um 1,8 milljarða króna. Höfðatorg ehf. var upphaflega í eigu Holtasels, eignarhaldsfélags í eigu Péturs Guðmundssonar, stjórnarformanns, forstjóra og eiganda verktakafyrirtækisins Eyktar. Félagið er eigandi 47 þús- unda fermetra atvinnuhúsnæðis, sem meðal annars samanstend- ur af 19 hæða turni við Höfða- torg í Reykjavík sem tekinn var í notkun á árunum 2008 til 2009. Höfðatorg fjármagnaði sig aðal- lega með erlendum lánum og við fall krónunnar haustið 2008 hækk- uðu skuldir félagsins gríðarlega. Í árslok 2010 námu þær 23,1 millj- arði króna og eigið fé félagsins var neikvætt um 10,6 milljarða króna. Því var ljóst að rekstrargrundvöll- ur félagsins var brostinn nema að ráðist yrði í fjárhagslega endur- skipulagningu. Í ársreikningi Höfðatorgs fyrir árið 2011 segir að félagið hafi frá árslokum 2008 unnið að endur- skipulagningu í samvinnu við lán- ardrottna sína, en langstærstur þeirra var Íslandsbanki. Tilgang- urinn var að gera félagið rekstrar- hæft að nýju. Í skýringum reikn- ingsins segir að „þann 24. júní 2011 var undirritaður samningur milli aðila um að lánardrottnar Höfðatorgs ehf. tækju félagið yfir og breyttu hluta skulda í hlutafé og lækkuðu skuldir um 15 milljarða króna. Samhliða voru gerðir nýir lánasamningar í íslenskum krón- um að fjárhæð um 10 milljarða króna, í stað eldri lána. Í kjölfarið fór félagið í formlegt nauðasamn- ingsferli sem lauk formlega þann 25. janúar 2012 þegar héraðsdóm- ur staðfesti nauðasamninginn“. Eftir þetta eignuðust helstu kröfuhafar Höfðatorgs félagið að fullu. Þeir voru annars vegar aðal- lánveitandi Höfðatorgs, Íslands- banki, sem eignaðist 72,5 prósenta eignarhlut. Hins vegar var um að ræða Eykt og tvö tengd félög, sem eignuðust samtals 27,5 prósenta hlut vegna kröfu á hendur Höfða- torgs vegna áfallins bygginga- kostnaðar. Öll félögin þrjú eru í eigu Péturs Guðmundssonar, sem var áður eigandi Höfðatorgs. Í til- Afskriftir Höfðatorgs námu 15 milljörðum Við endurskipulagningu Höfðatorgs var stærstur hluti skulda félagsins felldur nið- ur. Lán upp á tíu milljarða króna voru endurfjármögnuð af Íslandsbanka. Fyrrum eigandi Höfðatorgs hélt 27,5 prósenta eignarhlut í gegnum þrjú önnur félög. 15 milljarðar kr. af skuldum Höfðatorgs voru færðir niður. 10 milljarða kr. lán voru endurfj ármögnuð. 752,5 milljónir kr. voru rekstrartekjur Höfða- torgs árið 2011. 11,2 milljarðar kr. eru bókfært virði Höfða- torgs-fasteignarinnar. Seðlabanki Íslands keypti krónur fyrir um einn milljarð króna á síð- asta degi ársins 2012 til að vinna gegn veikingu hennar. Ástæðan er sú að á milli jóla og nýárs áttu sér stað lífleg viðskipti á millibanka- markaði sem leiddu til skarprar veikingar krónunnar, en hún veiktist um tæplega þrjú prósent á fimm viðskiptadögum á því tíma- bili. Frá þessu var greint í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Þar sagði að krónan hafi ekki verið veikari í tæplega tvö ár. Samkvæmt opinberu gengi Seðla- bankans er nú hægt að fá 208 krón- ur fyrir pundið, tæplega 23 krónur fyrir hverja danska krónu, 169 krónur fyrir evruna og 128 krón- ur fyrir hvern Bandaríkjadal. Gengi krónunnar snertir almenn- ing í landinu ekki síst, þar sem það hefur mikil áhrif á verðbólgu og þar með verðtryggðar skuldir heimila og fyrirtækja. Á gamlársdag voru gjaldeyris- viðskipti einkar lífleg, og beitti Seðlabanki Íslands sér á markaði með því að kaupa krónur fyrir um 6 milljónir evra, eða ríflega millj- arð, en þetta er í fyrsta skipti sem hann beitir inngripum á markaði síðan í mars í fyrra. - þsj Mikil viðskipti á millibankamarkaði í árslok: Seðlabankinn greip inn í á gamlársdag HÖFÐATORG Fyrri hluti byggingarinnar, sem hýsir meðal annars ýmsa starfsemi á vegum Reykjavíkurborgar, var tekinn í notkun í byrjun árs 2008. Turninn var síðan tekinn í notkun í ágúst 2009. Nauðasamningur Höfðatorgs var kláraður fyrir tæpu ári síðan. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON 19 hæðir eru í turni Höfðatorgs- fasteignarinnar. 27 ,5% 72 ,5% Eignarhlutur Eyktar og tengdra félaga er 27,5% 72,5% er eignarhlutur Íslands banka í félaginu. SEÐLABANKASTJÓRI Banki Más Guðmundssonar keypti krónur á gamlársdag. Það var í fyrsta sinn sem hann beitir inngripum frá því í mars 2011. kynningu sem send var út vegna nauðasamninganna fyrir um ári síðan kom fram að aðrir kröfuhaf- ar Höfðatorgs myndu fá kröfur sínar greiddar og að Íslandsbanki stefndi að því að selja hlut sinn í félaginu þegar fram liðu stundir. Í framhaldi af endurskipulagn- ingunni var hlutafé Höfðatorgs aukið um 116 milljónir króna. Nýir eigendur félagsins greiddu það fé í samræmi við eignarhlut sinn. Því greiddi Íslandsbanki um 84 millj- ónir króna en félög Péturs um 32 milljónir króna. thordur@frettabladid.is Lykiltölur á Höfðatorgi N1 hefur á ný tekið upp hið gamal gróna vörumerki Bílanaust yfir bílavarahluta og -aukahluta- verslanir sínar. Verslanir N1 og Bílanausts sameinuðust undir merki N1 fyrir sex árum síðan en vörumerkið Bílanaust á sér ríflega 60 ára sögu. Starfsmenn Bílanausts verða alls 60 talsins en fyrirtækið mun starfrækja sjö sérverslanir með varahluti, aukahluti í bíla, verk- færi, rekstrar- og iðnaðarvörur ásamt söludeild og tækniþjón- ustuverkstæði. Flest starfsfólk Bílanausts starfaði áður hjá N1. - mþl N1 kynnir nýtt vörumerki: Bílanaust opnar eftir sex ára hlé Lágmarkslaun hafa ríflega tvö- faldast að nafnvirði frá ársbyrj- un 2004. Til samanburðar hefur launavísitala Hagstofunnar hækkað um 79% og kaupmáttur launa um 2,4% á sama tímabili. Þetta kemur fram í samantekt Samtaka atvinnulífsins (SA) á launaþróun síðustu ára sem finna má á vefsíðu samtakanna. Er niðurstaða SA sú að lág- markslaun séu því mun hærra hlutfall af greiddum launum nú en fyrir átta árum. Í ársbyrjun 2004 voru lág- markslaun 93.000 krónur á mán- uði á almennum vinnumark- aði. Á árinu 2012 voru þau hins vegar komin í 193.000 krónur og því hækkað um 108% á átta árum. Þá eiga lágmarkslaun að hækka í 204.000 krónur 1. febrú- ar samkvæmt gildandi kjara- samningum. - mþl SA fjallar um launaþróun: Lágmarkslaun hækkað hraðar en almennBÍLANAUST Vörumerkið Bílanaust er ríflega 60 ára gamalt.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.