Fréttablaðið - 03.01.2013, Side 21
Mér fannst peysan svo stórkost-lega falleg að ég gat ekki annað en keypt hana,“ segir Ragnheiður
Eiríksdóttir þegar við forvitnumst um nýj-
ustu fatakaupin. Hún segir fólk oft verða
hissa á að hún skuli kaupa prjónaföt þar
sem hún lifi og hrærist í prjónaskap sem
framkvæmdastjóri Knitting Iceland.
„Fólk heldur að ég prjóni allt sjálf,“
segir hún hlæjandi. „En ég hef ekki tíma
til að prjóna mikið á sjálfa mig og kaupi
oft prjónaðar flíkur, bæði vél- og hand-
prjónaðar, sem ég fell fyrir,“ segir hún.
Peysan er frá franska merkinu Antik
Batik og keypt í Amsterdam. Hún er vél-
prjónuð úr ull og akrýl og unnin á sér-
stakan hátt.
„Neðst á peysunni er rosalega fallegur
bekkur sem er prjónaður þvert á allt
annað. Bekkurinn er í mörgum litum og
prjónaður á röngunni, sem er sérstakt.
Ég nota peysuna sem yfirhöfn og oft nota
ég leðurvesti yfir hana frá E-label. Skórnir
eru líka í miklu uppáhaldi en þeir eru
ASH-mótorhjólastígvél sem ég keypti líka
í Amsterdam. Mér finnst til dæmis mjög
gaman að vera í dömulegum kjól en svo
í grófum mótorhjólastígvélum við,“ segir
Ragnheiður, en hún þræddi búðirnar í
Amsterdam á dögunum þegar hún vann
að hönnunarverkefni ásamt prjónahönn-
uðinum Stephen West.
„Stephen býr í Amsterdam en hann
er amerísk prjónarokkstjarna og er einn
frægasti hönnuðurinn í handprjóna-
heiminum í dag. Við höfum unnið
mikið saman og erum að vinna að prjóna-
kolleksjóni sem kemur út á bók í vor. Við
kennum prjónanámskeið í sameiningu
og á þessu ári bíða okkar mörg ótrúlega
spennandi verkefni,“ segir Ragnheiður.
En hvar mælir hún með því að kaupa
prjónaflíkur í Amsterdam? „Peysuna
keypti ég í versluninni Sukha. Cora
Kemper man er hönnuður í miklu uppá-
haldi hjá mér. Svo er gaman að máta föt
hjá Sprmrkt.“ ■ heida@365.is
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
KRÓKABUXURNAR SÍVINSÆLU
nýkomnar af tur !
Stærðir : S,M,L ,XL ,2 X
verð kr. 5.990,
Höfuðljós
Öflugt höfuðljós fyrir útivistarfólk
Verð: 14.450 kr.
Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is
GÓÐ KAUP
Nú eru útsölurnar hafnar af fullum krafti. Vetrar-
útsölur eru yfirleitt frábærar, enda henta fötin vel
hér á landi. Hægt er að gera góð kaup í verslunum
en einnig á netinu. Oft er umtalsverð lækkun á
fatnaði og flesta munar um þær krónur.
PRJÓNAR EKKI
ALLT SJÁLF
NÝJUSTU KAUPIN Ragnheiður Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri Knitting
Iceland, féll fyrir vélprjónaðri peysu á búðarölti í Amsterdam á dögunum.
GÓÐ YFIRHÖFN
Ragnheiður Eiríks-
dóttir notar nýju
peysuna sem yfirhöfn
og gróf stígvél við.
MYND/STEFÁN