Fréttablaðið - 03.01.2013, Síða 24
FÓLK|4 | FÓ K | TÍSKA
Fatahönnuðurinn Bryndís Svein-björnsdóttir hannar undir merkinu Diadem. Fyrsta
línan kom í verslanir hérlendis
og í Bretlandi síðastliðið sumar.
Þar er að finna kjóla, leggings,
peysur, boli og fylgihluti.
„Ég leik mér mikið með form
og finnst spennandi að finna upp
á sniðum sem er hægt að nota á
fleiri en einn veg. Oft er flíkunum
breytt með því að binda bönd á mis-
munandi hátt en orðið diadem, sem
kemur úr forngrísku, þýðir einmitt
að binda utan um,“ útskýrir Bryndís.
Línunni tilheyrir til að mynda kjóll
sem getur líka verið pils og flík sem
má breyta úr kjól í peysu eða slá með
nokkrum handtökum. „Þá legg ég mikla
áherslu á að nota góð efni og búa til snið
sem henta öllum líkamsgerðum,“ segir
Bryndís.
Flíkurnar eru bæði framleiddar á Ind-
landi og í Bretlandi, þar sem Bryndís
er búsett. „Ég á það svo til að setja
lokapunktinn yfir i-ið sjálf og litaði til að
mynda nýjustu silkiflíkurnar mínar. Þær
eru viðbót við fyrstu línuna en þannig
hyggst ég byggja merkið upp. Ég byggi
á fyrstu línunni en bæti við flíkum sem
passa við heildarmyndina. Næstu vikur
fara því í að hanna viðbætur fyrir sum-
arið.“
Flíkurnar fást sem stendur í Kraum,
GK Reykjavik, Howl&Wolf í Bath og Blue
í Cheltenham. Nánari upplýsingar er að
finna á heimasíðunni www.diadem.is og
á Facebook. Innan tíðar verður svo hægt
að næla sér í flík í netverslun Diadem
sem er í vinnslu. ■ vera@365.is
BÚSETT Í BATH
Bryndís útskrifaðist úr
Listaháskóla Íslands árið
2007 og starfar í Bath
á Englandi. Hér er hún
með Diadem silkiklút.
HÆGT AÐ NOTA
Á ÝMSAN VEG
Hægt er að breyta
sumum flíkunum til
dæmis úr pilsi í kjól og
úr kjól í peysu. Litaðar
silkiflíkur sem sjást hér
til hliðar eru viðbót við
fyrstu línuna sem kom á
markað í sumar.
Lim fæddist í Bangkok í Taílandi en for-
eldrar hans eru þó kínverskir. Þau
fluttu til Kambódíu en flúðu þaðan til
Kaliforníu. Lim hóf hönnunarferil
sinn í Los Angeles en starfrækir nú
fyrirtæki sitt í New York. Hönnun
hans er seld í 45 löndum og hann
hefur hlotið nokkur virt verðlaun
fyrir hönnun sína. Lim nam við-
skiptafræði við háskólann í Los
Angeles en þrátt fyrir að hafa
alla tíð dáð föt var tískuhönn-
un ekki á dagskrá hjá honum á
þeim árum. Árið 1999 hóf hann
að hanna tískuföt fyrir konur
fyrir lítið fyrirtæki í LA og fann
sig fljótt í þeim farvegi. Núna
hannar hann einnig á karlmenn
og börn. Phillip Lim er nú einn
áhrifamesti hönnuður í Banda-
ríkjunum.
Á haustdögum kynnti Lim vor- og
sumartísku sína fyrir árið 2013 og fékk
mjög góð viðbrögð við henni, enda þykir
hún sportleg og töff.
SPORTLEGT FYRIR SUMARIÐ
Tískuhönnuðurinn Phillip Lim verður fertugur á þessu nýhafna
ári en hann hefur getið sér gott orð í tískuheiminum.
BREYTT MEÐ BÖNDUM
ÝMSIR NOTKUNARMÖGULEIKAR Fatahönnuðurinn Bryndís Sveinbjörnsdóttir
hannar flíkur sem oftar en ekki má nota á fleiri en einn veg.
FÖT OG FYLGIHLUTIR
Diadem kom á markað
síðastliðið sumar.
ú m
á
Við t
r U
Si
gur
HM í
han
dbol
ta
Í LEI
FTRA
NDI H
ÁSKE
RPU
Hefs
t 11.
janú
ar
Þorsteinn J. og gestir
Þorsteinn J. sér um upphitun
fyrir leiki og stýrir ítarlegri
umfjöllun eftir leiki ásamt
handbolta sérfræðingum
og góðum gestum.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
KEEPING UP WITH THE KARDASHIANS
E! ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS