Fréttablaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 46
3. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
„Já, ég hugsa að ég sé sá tattú-
veraðasti á Eskifirði,“ segir
Friðrik „Vader“ Jónsson, 25 ára
Reykvíkingur sem hefur búið á
Eskifirði undanfarin tvö ár.
Friðrik er húðflúraður í bak og
fyrir, og hefur ekki tölu á hversu
mörg flúrin eru orðin. „Ég hef ekki
hugmynd um hvað þau eru mörg.
Ég hætti að nenna að telja fyrir
löngu,“ segir Friðrik, en hann fékk
fyrsta flúrið þegar hann var 16 ára
gamall.
Friðrik fluttist til Eskifjarðar
þegar hann fékk vinnu í álverinu
á Reyðarfirði og vöktu húðflúr-
in mikla athygli til að byrja með.
„Það var svolítið gónt á mann í
fyrstu, en núna er fólk orðið vant
þessu,“ segir Friðrik. Hann fer
reglulega til Reykjavíkur til að
láta flúra sig.
Friðrik segir ekki mikla tattú-
menningu að finna á Eskifirði, en
þó veit hann af einum og einum
með flúr. „Þeir eru nú ekki marg-
ir. Allavega ekki svona mikið flúr-
aðir.“
En er hægt að fá húðflúr fyrir
austan? „Það er alveg hægt að
láta flúra sig hérna, en ég fer
yfirleitt alltaf til sama manns-
ins í Reykjavík,“ segir Friðrik,
en sá heitir Jason og starfar hjá
Reykjavík Ink. „Ég hef farið til
hans í mörg ár og það er nóg fyrir
mig að segja honum hvað ég vil
og þá teiknar hann það. Eiginlega
undantekningarlaust líkar mér
vel við það, enda veit hann alveg
hvað ég vil.“ haukur@frettabladid.is
Nennir ekki að telja
Friðrik Jónsson er húðfl úraðasti maður Eskifj arðar. Hann hefur ekki hugmynd
um hvað húðfl úrin eru orðin mörg og nennir ekki lengur að telja.
„Þetta sprakk upp eftir viðtalið í
Fréttablaðinu,“ segir Ómar Þröst-
ur Hjaltason, annar forsvars-
manna Keyrðu mig heim, bíl-
stjóraþjónustu sem sérhæfir sig í
að skutla bílum heim af skrallinu.
„Eftirspurnin var miklu meiri en
við bjuggumst við, og reyndar
meiri en við gátum annað.“
Þegar mest var voru sex manns
í akstrinum og Ómar segir des-
embermánuð hafa gengið stór-
áfallalaust fyrir sig. „Við erum
að vinna í því að bæta við bíl-
stjórum, en ætli janúar verði ekki
rólegur. Svo koma árshátíðirnar
og þá ætti að koma kippur,“ segir
Ómar. Keyrðu mig heim hyggst
í nánustu framtíð bæta leiðinni
milli Keflavíkur og Reykjavíkur
við þjónustuna.
Gagnrýnisraddir hafa þó
hljómað frá upphafi og að sögn
Ómars hafa einhverjir leigubíl-
stjórar látið í sér heyra. „Þeir eru
enn ekki vissir um lögmæti starf-
seminnar, en við erum með þetta
allt á hreinu.“ - hva
Önnuðu alls ekki eft irspurninni
Frétt um bílstjóraþjónustu fyrir ölvaða vakti athygli og var vinsælasta dægurfrétt ársins á Vísi.is.
ÖNNUÐU EKKI EFTIRSPURN Það var nóg að gera hjá félögunum Ómari og Kristni í
desember. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Þessi námsleið leysir gamla Nem-
endaleikhúsið af hólmi,“ segir
Steinunn Knútsdóttir, deildarfor-
seti Leiklistar- og dansdeildar
Listaháskóla Íslands. Hún á við
nýja námsbraut skólans sem er
diplómanám á meistarastigi í leik-
túlkun.
Námið er eins árs starfsnám og
er starfrækt í samstarfi við Borg-
arleikhúsið og Þjóðleikhúsið svo
að nemandinn gengur inn í leik-
hóp hússins.
„Leikaranám skólans var áður
fjögurra ára nám en er nú orðið
að þriggja ára bakkalárnámi,“
segir Steinunn. Á fjórða ári náms-
ins var starfrækt svokallað Nem-
endaleikhús. „Með því rákum við
okkar eigið leikhús. Nú sækjum
við þá þjónustu til atvinnuleikhús-
anna. Þetta er starfsnám með aka-
demískum stuðningi,“ segir hún en
nemarnir njóta leiðsagnar kennara
í leiktúlkun, rannsóknaraðferðum
og tækni. Á námstímanum fá þeir
greidd byrjunarlaun samkvæmt
samningum Félags leikara.
Haustið 2014 mun Listaháskól-
inn einnig hefja meistaranám í
sviðslistum.
Inntökuskilyrði nýju náms-
brautarinnar er að hafa klárað
bakkalárs gráðu í leiklist óháð því
hvort leikarar hafi numið erlendis
eða hér á landi.
Umsóknarfrestur er til 21. janú-
ar og er mikill áhugi fyrir náminu.
„Já, enda er þetta algjörlega nýtt
af nálinni.“ Frekari upplýsingar
má finna á vefsíðu Listaháskólans.
- hþt
Nýtt nám hjá LHÍ í samstarfi
við atvinnuleikhúsin í Reykjavík
Listaháskóli Íslands byrjar með diplómanám á meistarastigi í leiktúlkun í haust.
LEIKLIST Steinunn Knútsdóttir deildar-
forseti segir nýju námsbrautina opna
leið inn í leikhúsið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bandaríski kvikmyndaframleið-
andinn DreamWorks er væntan-
legur hingað til lands til að taka
upp atriði í nýrri mynd um Julian
Assange og vefsíðuna WikiLeaks,
The Man Who Sold the World.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins fara tökurnar að öllum
líkindum fram í janúar og verða
þær í Reykjavík og nágrenni.
Tökuliðið mun dvelja hér í nokkra
daga við tökurnar og fara svo af
landi brott. Heimildirnar herma
að fyrirtækið True North muni
aðstoða DreamWorks við tökurnar
en hið fyrrnefnda vildi ekki stað-
festa neitt um verkefnið. Tökur
eru einnig fyrirhugaðar í Berlín
og í Belgíu.
Óvenjulegt er að erlendar
kvikmyndir séu teknar upp svo
snemma á árinu hérlendis og því
hljóta þetta að teljast góð tíðindi
fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað.
Í helstu hlutverkum myndar-
innar eru Benedict Cumberbatch
úr sjónvarpsþáttunum Sherlock
sem leikur stofnandann Assange,
Daniel Brühl sem leikur talsmann-
inn Daniel Domscheit-Berg og
Dan Stevens úr þáttunum Down-
ton Abbey sem leikur tölvuhakk-
ara. Ekki er búið að ráða í hlutverk
þingkonunnar Birgittu Jónsdóttur
sem hefur starfað fyrir WikiLeaks
en nokkrar íslenskar leikkonur
koma til greina. „Mér finnst þetta
svolítið óraunverulegt enn þá. Ég
vonast til að þetta verði ekki algjör
Hollywood-mynd,“ segir Birgitta,
sem hefur veitt handritshöfundin-
um Josh Singer ráðgjöf. Hún bætir
við að Cumberbatch eigi eftir að
smellpassa í hlutverk Assange því
þeir séu mjög líkar týpur.
Leikstjóri The Man Who Sold
the World verður Bill Condon,
sem síðast leikstýrði The Twilight
Saga: Breaking Dawn - Part 1 og
Part 2. - fb
DreamWorks tekur
upp hér á Íslandi
Mynd um Julian Assange tekin upp hér í janúar.
LEIKUR ASSANGE Benedict Cumber-
batch úr Sherlock leikur stofnanda
Wikileaks, Julian Assange.
NORDICPHOTOS/GETTY
Save the Children á Íslandi
„Það er bara íslenska vatnið, það er
langbesti drykkurinn. Það er mjög
misjafnt hvað ég drekk mikið af því
á hverjum degi en ætli það sé ekki
frá einum og hálfum lítra og upp í
þrjá á dag ef ég er að æfa mikið.“
Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastskona.
DRYKKURINN
Uppáhaldsflúr Friðriks er mynd af Svarthöfða
sem hann fékk sér á handarbakið í fyrra, en það
var Gunnar á Íslensku húðflúrsstofunni sem
flúraði.
„Ég er mikill Star Wars-aðdáandi,“ segir Friðrik
og útilokar ekki að fá sér fleiri Star Wars-húð-
flúr. Hann hefur hins vegar ekki í hyggju að
skreyta sig með hinum umdeilda Jar Jar Binks,
eyrnastóra sprellikarlinum úr The Phantom
Menace. „No comment. Hann er óþolandi.“
„No comment“ á Jar Jar
FLÚR Friðrik fer yfirleitt til sama
mannsins í Reykjavík til að láta
flúra sig.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/V
IL
H
EL
M