Fréttablaðið - 05.02.2013, Síða 1

Fréttablaðið - 05.02.2013, Síða 1
VINNUMARKAÐUR Notkun lyfja- prófa á íslenskum vinnumarkaði er allútbreidd og hefur svo verið um árabil. Vinnslustöðin í Vest- mannaeyjum rak á dögunum ell- efu sjómenn af þremur togurum fyrir tækisins sem féllu á fíkniefna- prófi og til stendur að allt starfsfólk fyrir tækisins gangist undir fíkni- efnapróf. „Við þekkjum þó nokkuð af dæmum,“ segir Sigrún Jóhannes- dóttir, forstjóri Persónuverndar, spurð hversu algengt það sé að fyrir tæki tilkynntu um að til standi að gera lyfjapróf. Aðallega sé um stór fyrirtæki að ræða þegar kerf- isbundin lyfjapróf eru gerð; þekkt sé að álfyrirtækin hafa um árabil notað slík próf, og ekki sé óalgengt að veitingahús geri slíka kröfu til starfsmanna sinna. Sigrún segir einnig að tilfallandi erindi í gegn- um tíðina komi frá ýmsum fyrir- tækjum vegna fíkniefnaprófa og einnig hafi borist erindi þar sem nemendur, og þá í framhaldsskól- um, hafi verið látnir gangast undir próf. Eftirlit með lyfjanotkun starfs- manna er almennt talið sérstaklega mikilvægt í atvinnugreinum þar sem almannahagsmunir krefjast þess, til dæmis í löggæslu, í sam- göngum, verklegum framkvæmd- um og heilbrigðisþjónustu. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins eru starfsmenn Landspítalans ekki beðnir um að gangast undir lyfja- próf við ráðningu, svo dæmi sé tekið. Tilviljunarkennd lyfjapróf eru ekki gerð á meðal starfsmanna spítalans og slík próf aðeins gerð í undantekningartilfellum. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðv- arinnar, segir að prófin hafi verið gerð með öryggissjónarmið í huga. Allir starfsmenn Vinnslustöðvar- innar hafa skrifað undir yfirlýs- ingu um að fyrirtækinu sé heimilt að láta gera slík próf. „Þegar kemur að öryggi á sjó og í landi er klárt að allir þurfa að vera allsgáðir.“ Sigrún segir að erindi vegna lyfjaprófa hafi borist til Persónu- verndar í mörg ár en treystir sér ekki til að meta hvort um verulega fjölgun slíkra tilvika sé að ræða. Eins hafi tilfelli komið upp í skólum og „að nemendur hafi verið settir í svona próf, en þá með samþykki foreldra,“ segir Sigrún. - shá, gar sjá síðu 4 FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Þriðjudagur 14 BETRI LÍÐAN MEÐ ALPHA DAILYALPHA DA GERÐU GÓÐVERKÞeir sem gefa blóð bjarga mannslífum. Við fyrstu komu í blóðbankann er tekið blóðsýni til blóðflokkunar og rann- sóknar. Að tveimur vikum liðnum má gefa blóð ef niðurstöð- ur leyfa. Á heimasíðu Blóðbankans, www.blodbankinn.is, má sjá hvaða blóðflokka vantar helst. Ferming í Flash Ótrúlegt úrval af fermingar- kjólum Skipholti 29b • S. 551 0770 NÝ SENDING!AF VINSÆLU KULDASKÓNUMMEÐ MANNBRODDUNUM FYRIR DÖMU R OG HE RRA Verð:2 4.000.-BÍLARÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2013 Fréttablaðið Reynsluakstur Honda CR-V Bilaðar hraðamyndavélar Bíll ársins – tilnefningar Mercedes Benz kaupir í BAIC Nýr keppnisbíll MacLaren Draumasamkoma ót hjól Mörg forvitnileg mótorhjól ber fyrir augu á Daytona Bikeweek. Hafsteinn Emilsson við eigin fák og að sjálfsögðu með íslenska fánann á hjólinu eins og á Bikeweek. 2 SÉRBLÖÐ Bílar | Fólk Sími: 512 5000 5. febrúar 2013 30. tölublað 13. árgangur Þegar kemur að öryggi á sjó og í landi er klárt að allir þurfa að vera alls- gáðir. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. SPORT Europol segir að rannsókn þess hafi leitt í ljós að svindlað hafi verið í 680 knattspyrnuleikjum. 26 NÝTT! Minni töflur -auðvelt að gleypa Við erum í hádegismat Sími 5 800 600www.iss.isHádegið er hápunktur dagsins Faxafeni 11, Reykjavík • Amarohúsinu, Akureyri partybudin.is • s. 534 0534 8 dagar til Öskudags SKOÐUN Teitur Guðmundsson segir nauðsynlegt að konur séu upplýstar um hjarta- og æðasjúkdóma. 15 MENNING Helgi Björns tekur upp plötu til heiðurs Hauki Morthens í Berlín. 30 MENNING Af þeim 32 keppendum sem sungið hafa fyrir Íslands hönd í lokakeppni Eurovision hafa fimm verið Dalvíkingar, ef talin eru með þau Hera Björk Þórhallsdóttir og Pálmi Gunnars- son sem bæði bjuggu í bænum um tíma. Eyþór Ingi Gunnlaugs- son, sem sigraði í íslensku undan- keppninni á laugardag, Matthías Matt híasson og Friðrik Ómar Hjörleifsson eru svo allir aldir upp á Dalvík. „Þetta hlýtur að vera tilviljun en þetta er samt mjög dularfullt,“ segir Matthías Matthíasson og bætir við að Dalvíkingar eigi enn nóg inni í keppninni. „Mér detta strax í hug þrír sem koma vel til greina en þeir eru pottþétt fleiri. Það er svo ótrúlega mikið af góðu söngfólki þarna,“ segir hann. Tæplega 1.900 manns búa á Dal- vík. - trs / sjá síðu 30 Söngvakeppni Sjónvarpsins: Dalvíkingar eru sigursælir Bolungarvík -1° NA 4 Akureyri 0° N 6 Egilsstaðir 1° NV 6 Kirkjubæjarkl. 1° N 5 Reykjavík 0° NA 5 Bjart S-til 5-12 m/s snemma dags en dregur úr þegar líður á daginn, fyrst V-til. Bjart S-lands en dálítil él N- og A-til. Hiti víða um frostmark. 4 Fíkniefnapróf hafa verið gerð hjá fjölda fyrirtækja Ellefu sjómenn í Vestmannaeyjum voru reknir eftir að hafa fallið á fíkniefnaprófi. Slík próf hafa tíðkast um árabil hjá ýmsum fyrirtækjum, svo sem álverum og veitingahúsum. Þá hafa framhaldsskólar notað slík próf.Íslenskan er lykillinn Áhersla á íslenskukunnáttu inn- flytjenda sem vilja starfa hér virðast hafa aukist. „Íslenskan er lykillinn að samfélaginu“ segir framkvæmdastjóri Mímis-símenntunar. 12 FBI var hér í heimildarleysi Utan- ríkisráðherra fellst ekki á „varnir ríkis- lögreglustjóra og ríkissaksóknara“ í máli sem tengist komu FBI hingað til lands. 2 Óttast um fjárhag sinn Rúmur fjórðungur landsmanna óttast um fjárhagslega afkomu sína samkvæmt skoðanakönnun Fréttaðblaðsins og Stöðvar 2 4 Vill vöktun á lífríki Umhverfis- ráðherra leggur til að veitt verði fjármagn til vöktunar og rannsókna vegna síldardauðans í Kolgrafafirði. 6 SAMHUGUR Á FUNDI Fullt var út úr dyrum á Grand hóteli í gær þegar samningstilboð Landspítalans var kynnt hjúkrunar- fræðingum. Tilboðið féll í grýttan jarðveg og 91 prósent fundargesta hafnaði því. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ATVINNUMÁL Hjúkrunarfræðing- ar á Landspítalanum gáfu tilboði að nýjum stofnanasamningi spítal- ans falleinkunn í ráðgefandi skoð- anakönnun á fjölmennum fundi í gærkvöldi. Fullt var út úr dyrum á Grand hóteli, en um 500 manns sóttu fundinn. Rúmlega níu af hverjum tíu höfnuðu því að gengið yrði að tilboði Landspítalans um launahækkun. Það voru 497 hjúkrunarfræðing- ar sem tóku þátt í könnuninni og svöruðu spurningunni hvort þeir vildu að fulltrúar hjúkrunarfræð- inga skrifuðu undir tilboðið sem liggur á borðinu. 452 þeirra vilja það ekki, eða 91%. Einungis 38 hjúkrunarfræðingar sögðu já, eða um átta prósent. Elsa B. Friðfinnsdóttir, for- maður Félags hjúkrunarfræð- inga, segir að hljóðið í hjúkrunar- fræðingum á fundinum hafi verið þungt. „Fólk vill gjarnan semja en því þykir þetta vera allt of lítið skref.“ Samninganefnd um endurskoð- un stofnanasamnings hjúkrunar- fræðinga við Landspítalann kemur saman í dag. Fulltrúar hjúkrunar- fræðinga leggja þar fram niður- stöðu skoðanakönnunarinnar. - shá Fjölmennur fundur hjúkrunarfræðinga gaf tilboði að samningi falleinkunn: 91% vill hafna samningstilboði

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.