Fréttablaðið - 05.02.2013, Page 2
5. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
20. júní 2011 FBI kemur upplýsingum til íslenskra yfirvalda um fyrirhugaða
árás alþjóðlegra hakkara á tölvukerfi Stjórnarráðsins.
23. júní Fulltrúar FBI funda með fulltrúum ríkislögreglustjóra um
málið. Ríkissaksóknara og fulltrúum forsætis-, innanríkis- og
utanríkisráðuneytisins er gerð grein fyrir stöðu mála.
4. júlí FBI leggur fram formlega réttarbeiðni um aðstoð íslenskra
yfirvalda í málinu. Beiðnin er send innanríkisráðuneytinu.
6. júlí Ráðuneytið framsendir erindið til ríkissaksóknara, sem sama
dag sendir ríkislögreglustjóra það.
7. júlí FBI óskar eftir að fulltrúar íslensku lögreglunnar komi til fundar í
Bandaríkjunum vegna nýrra upplýsinga sem varða Ísland.
11. júlí Þrír fulltrúar ríkislögreglustjóra fara vestur um haf, að höfðu samráði við
innanríkisráðuneytið.
23. ágúst Íslensk lögregla fær vitneskju um að íslenskur maður hafi gefið sig fram við bandaríska
sendiráðið og óskað eftir að koma á framfæri upplýsingum til bandarískra yfirvalda um málið.
FBI óskar í kjölfarið eftir aðstoð íslenskrar lögreglu og að fá að koma til landsins og ræða við
manninn. Ríkissaksóknari er upplýstur um beiðni FBI.
24. ágúst Ríkissaksóknari hefur samband við innanríkisráðuneytið og gerir grein fyrir stöðunni. Fundur er
haldinn hjá ríkissaksóknara með þátttöku fulltrúa ríkislögreglustjóra og innanríkisráðuneytisins.
Ákveðið er að heimila komu fulltrúa FBI til landsins. Þeir koma til landsins að kvöldi sama dags.
25. ágúst Fulltrúar FBI og saksóknarar funda um morguninn með ríkissaksóknara og fulltrúum ríkislög-
reglustjóra. Ákveðið er að íslenska lögreglan og FBI fundi með manninum. Síðar um daginn, um
það leyti sem fundurinn á að eiga sér stað, er þeim tjáð að aðgerðin falli utan við réttarbeiðn-
ina. Ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins skipar íslensku lögreglumönnunum að hætta við
þátttöku í henni og boðar þá til fundar þar sem sú krafa er ítrekuð.
26. til 30. ágúst FBI ræðir við manninn án aðkomu íslenskrar lögreglu.
30. ágúst Fulltrúar FBI segja fulltrúum ríkislögreglustjóra að sendiráði Bandaríkjanna hafi verið tjáð sú
ósk utanríkis- og innanríkisráðherrans að þeir hætti viðræðum sínum við manninn og að vera
þeirra hér sé óæskileg. Þeir yfirgefa svo landið.
Heimild: Samantekt ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara
LÖGREGLUMÁL Össur Skarphéð-
insson utanríkisráðherra og
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra voru sannfærðir um að
fulltrúar bandarísku alríkislög-
reglunnar FBI væru hér á landi
í heimildarleysi sumarið 2011 að
rannsaka málefni Wikileaks. Þeir
komu því til leiðar
að þeir færu úr
landi, ekki síst
til að vernda
hagsmuni
íslensks
pi lts sem
F BI va r
komið
hingað til
að ræða
við.
„Innanríkisráðherra hafði sam-
band við mig og tjáði mér mála-
vöxtu þann sama morgun og hann
varð þess áskynja að þessir menn
væru hér – og það var alveg klárt
að hann hafði enga hugmynd um
það fyrr,“ segir Össur um málið.
„Hann leitaði ráðlegginga hjá
mér og mínum ráðuneytisstjóra
og við töldum það algjörlega kýr-
skýrt, eins og málið var lagt upp
við okkur, að FBI væri hér í heim-
ildarleysi.
Ráðlegging okkar var mjög ljós:
Við töldum að þetta væri utan við
það sem rétt væri og við töldum
þar að auki að drengurinn sem
málið snerist um gerði sér ekki
grein fyrir því hvaða afleiðingar
það gæti haft fyrir hann að ræða
með þessum hætti hugsanlega
þátttöku sína í athæfi af þessu
tagi. Innanríkisráðherra var
okkur algjörlega sammála,“ segir
Össur.
„Þess vegna töldum við í utan-
ríkisráðuneytinu að það bæri
að koma í veg fyrir þessi
samtöl, meðal annars til
að vernda þennan íslenska
borgara, af því samtöl-
in áttu sér stað utan við
það sem gátu talist eðli-
legar heimildir. Okkur
var ekki kunnugt um
neina slíka beiðni, um að ræða við
þennan mann.“
Ríkissaksóknari og ríkislög-
reglustjóri sendu frá sér sam-
antekt um málið í gær, þar sem
sagði að samstarfið hefði verið
vegna grunsemda um yfirvofandi
árás alþjóðlegra þrjóta á tölvukerfi
Stjórnarráðsins og að rannsóknin
stæði enn. Þá sagði að innanríkis-
ráðuneytið hefði haft aðkomu að
því á öllum stigum.
Össur er ekki sáttur við útskýr-
ingar embættanna. „Eins og ég
skil varnir ríkislögreglustjóra
og ríkissaksóknara í þessu máli
þá líta þeir svo á að atburðirnir
í ágústlok séu tengdir komu sér-
fræðinga hingað meira en mánuði
fyrr, þegar talið var að yfirvof-
andi væri einhvers konar tölvu-
árás á íslenskar stofnanir. Ég fellst
ekki á þá skýringu. Ég tel að þar sé
um alls óskyldan atburð að ræða,“
segir ráðherrann.
„Það er eitt að kanna yfirvof-
andi árásir og viðbúnað íslenskra
stofnana gagnvart þeim – við
höfðum verið vöruð við því opin-
berlega, Kristinn Hrafnsson benti
meðal annars á það hálfu ári fyrr
að örygginu væri áfátt – en það er
allt annað að rannsaka einhvern
dreng sem taldi sig búa yfir upp-
lýsingum sem vörðuðu Wikileaks,“
segir Össur.
Ögmundur Jónasson er staddur
í Kína ásamt helstu embættis-
mönnum innanríkisráðuneytisins
og ekki náðist tal af þeim vegna
málsins í gær. stigur@frettabladid.is
Kýrskýrt að FBI var
hér í heimildarleysi
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fellst ekki á „varnir ríkislögreglustjóra og
ríkissaksóknara“ í máli tengdu komu FBI hingað til landsins sumarið 2011. Þeir
Ögmundur Jónasson hafi komið FBI úr landi til að vernda ungan íslenskan pilt.
EKKI SÁTTUR Össur
og Ögmundur voru
sammála um að
koma þyrfti FBI úr
landi.
Atburðir sumarsins 2011 í tímaröð
Laddi, verður Elsa Lund
berrössuð líka?
„Hún kemur alla vega til með bera
sig– vel.“
Laddi segist munu verða „allsnakinn“ í
nýjum einleik í Hörpunni því hann muni ekki
fela sig bak við gervi karakteranna sem hann
hefur skapað.
SKRÚBBAÐ OG BÓNAÐ Mótmælendur telja að það þurfi að hreinsa út úr Hæsta-
rétti eftir nýfallinn dóm. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Dómari við Héraðs-
dóm Norðurlands eystra tók sér í
gær frest til dagsins í dag til að
ákveða hvort úrskurða skyldi tvo
unga pilta í einnar viku gæsluvarð-
hald fyrir alvarlega líkamsárás á
afa annars þeirra.
Piltarnir, sem eru átján og nítján
ára, brutust inn á heimili mannsins,
sem er á áttræðisaldri, á Skaga-
strönd snemma á sunnudagsmorg-
un og gengu í skrokk á honum.
Árásina má rekja til grunsemda
um að maðurinn hafi beitt barna-
börn sín kynferðislegu ofbeldi
um langt skeið. Einn dóttursonur
mannsins, frændi árásarmanns-
ins, hefur lagt fram kæru á hend-
ur honum og er það mál komið til
ríkis saksóknara til ákærumeð-
ferðar.
Fréttablaðið hafði áður feng-
ið upplýsingar um að bróðir hans
hefði einnig kært en svo mun þó
ekki vera. Maðurinn hefur hins
vegar verið ásakaður um brot
gegn fleiri piltum og að sögn Gunn-
ars Jóhannssonar hjá lögreglunni
á Akureyri mun skýrast á næstu
dögum hvort fleiri kærur líta
dagsins ljós. - sh
Ræðst næstu daga hvort afi sem ráðist var á verður kærður fyrir fleiri brot:
Ákvörðun um varðhald í dag
Úr gjörgæslu
Maðurinn lá fyrst um sinn á
gjörgæsludeild með alvarlega
höfuðáverka. Læknir á Sjúkra-
húsinu á Akureyri sagði við
Fréttablaðið í gærkvöldi að hann
væri kominn á almenna deild og
að líðan hans væri stöðug.
MÓTMÆLI Um fjörutíu manns komu saman við Hæstarétt snemma í
gærmorgun með moppur og annan hreinlætisbúnað til að mótmæla
nýlegum dómi í máli kenndu við Vítisengla.
Fólkið skrúbbaði húsið utan og skilaboðin voru einföld: Að það
þyrfti að hreinsa út úr Hæstarétti.
Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu í málinu að ofbeldi gegn konu
teldist ekki kynferðisbrot þar sem gerandinn hefði ekki haft kyn-
ferðislegan tilgang með verknaðinum. Niðurstaðan hefur sætt mikilli
gagnrýni. - sh
Hæstiréttur skrúbbaður utan vegna nýlegs ofbeldisdóms:
Mótmæltu með hreinlætisvörum
Konan sem lést þegar hún
hrapaði á göngu í Esjunni á
sunnudag hét Birna Stein-
grímsdóttir.
Hún var 58
ára, fædd
31. júlí 1954,
hjúkrunar-
fræðingur
og búsett í
Kópavogi.
Birna lætur
eftir sig
eiginmann,
þrjú uppkomin börn og fjögur
barnabörn.
Birna var í hópi rúmlega
þrjátíu göngumanna þegar hún
hrapaði efst í Grafardal, vest-
an megin við hátind fjallsins,
klukkan þrjú síðdegis. Björg-
unarmenn komust til hennar
þremur klukkustundum síðar
og reyndist hún þá látin.
Lést í Esjunni
SVÍÞJÓÐ Vanlíðan skólabarna
vegna leiðinlegra samskipta á
netinu er svo mikil að álag í starfi
félagsráðgjafa í skólum í Sví-
þjóð hefur aukist, að því er kemur
fram á fréttavefnum dagbladet.
se. Þar er vitnað í rannsókn sem
gerð var á vinnuaðstæðum 400
félagsráðgjafa í skólum.
Samkvæmt frásögn Lars
Jonjack, félagsráðgjafa í skóla í
Sundsvall, verða börnin reið og
leið vegna meiðandi ummæla í
samfélagsmiðlum. Hann segir
foreldra verða að taka ábyrgð og
reyna að sporna við þessari nei-
kvæðu þróun.
- ibs
Aukið álag á félagsráðgjafa:
Vanlíðan barna
af völdum
samfélagsmiðla
LÖGREGLUMÁL Íbúi á Fit í Reykja-
nesbæ, dvalarstað hælisleitenda,
var handtekinn í hádeginu í gær
grunaður um að hafa kveikt í her-
bergi á annarri hæð hússins.
Þykkt reykjarkóf mætti lög-
reglu og slökkviliði við komuna á
staðinn og eldtungur stóðu út um
glugga. Einn íbúi var fluttur á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og
lagður inn vegna reykeitrunar.
Félagsmálayfirvöld tryggðu að
aðrir íbúar hússins fengju húsa-
skjól. - sh
Handtekinn vegna elds á Fit:
Einn á spítala
eftir íkveikju
SPURNING DAGSINS