Fréttablaðið - 05.02.2013, Page 6
5. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvað heitir framlag Íslands til Euro-
vision-keppninnar í Svíþjóð?
2. Hver er nýkjörinn formaður Sam-
fylkingarinnar?
3. Yfi r hverju hefur nýlega verið kvart-
að til Neytendasamtakanna?
SVÖRIN
1. Ég á líf. 2. Árni Páll Árnason. 3. Að merk-
ingum erfðabreyttra matvæla sé ábótavant.
DÓMSMÁL Sérstakur saksóknari
hefur gefið út ákæru á hendur
Bjarna Ármannssyni, fyrrverandi
bankastjóra Glitnis, fyrir skatt-
svik á árunum 2007 til 2009. Alls
sveik hann rúmar tuttugu milljón-
ir undan skatti á þessu tímabili, að
því er fram kemur í ákærunni.
Í ákærunni, sem er fyrir „meiri-
háttar brot á skattalögum,“ eru
talin upp fimm sjálfstæð brot,
sem snúast um að hann hafi látið
undir höfuð leggjast að telja fram
hagnað af sölu hlutabréfa í fyrir-
tækinu Sjávarsýn, arð-
greiðslur af hlutabréf-
um í E-Trade Securities
LLC, vaxtatekjur af
viðskiptum hjá sama
félagi og vegna danskra
og breskra bankareikn-
inga, og síðast en ekki síst
vegna gjaldmiðlaskipta-
samninga.
Heildartekjur hans af
öllum þessum viðskipt-
um námu 205 milljón-
um á tímabilinu, að því
er segir í ákæru, og af þeim
bar að greiða fjármagns-
tekjuskatt, samtals 20,5
milljónir.
Í yfirlýsingu frá Bjarna
viðurkennir hann að mis-
tök hafi verið gerð við
skattframtalið en að þau
hafi verið leiðrétt og
hann greitt skatt-
inn. Ákæran
komi honum
því verulega á
óvart. - sh
Bjarni Ármannsson kveðst hissa á ákæru sérstaks saksóknara:
Bjarni ákærður fyrir skattsvik
NOREGUR Per Olaf Lundteigen,
þingmaður Miðflokksins í Noregi,
og Dagfinn Høybråten, þingmaður
Kristilega þjóðarflokksins í Nor-
egi, vilja að norsk stjórnvöld biðj-
ist afsökunar vegna framkomunn-
ar við Íslendinga í Icesave-málinu.
Þeir gagnrýna ummæli Rogers
Schjerva, ráðuneytisstjóra í
norska fjármálaráðuneytinu, um
að dómur EFTA-dómstólsins í
Icesave-málinu hafi einnig verið
sigur fyrir Noreg, að því er segir
í frétt á vef Nationen. Þar kemur
fram að Schjerva hafi sagt Noreg
verið besta vin Íslands í málinu.
Lundteigen og Høybråten segja
fjármálaráðuneytið túlka þátt
sinn í málinu frjálslega. Þeir taka
fram að norsk stjórnvöld hafi ekki
reynst Íslendingum vel þegar
hrunið varð 2008. Norsk stjórnvöld
hafi skipað sér í hóp með öðrum
norrænum ríkjum, Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum og Evrópusamband-
inu gegn Íslandi. Lundteigen segir
að Norðmenn hafi átt að gera eins
og Færeyingar og Pólverjar og
veita Íslendingum tvíhliða lán til
þess að styðja þá.
Haft er eftir Høybråten að það
hafi sýnt sig að kröfurnar sem
gerðar voru til Íslands hafi verið
óraunhæfar. Norðmenn verði að
læra af því. - ibs
Þingmenn gagnrýna norsk stjórnvöld vegna framkomu við Íslendinga:
Biðjist afsökunar vegna Icesave
PER OLAF
LUNDTEIGEN
MYND/SENTERPARTIET
DAGFINN
HØYBRÅTEN
MYND/ANNE BRÅTVEIT
BJARNI
ÁRMANNSSON
Save the Children á Íslandi
UMHVERFISMÁL Svandís Svavars-
dóttir, umhverfis- og auðlindaráð-
herra, leggur á fundi ríkisstjórnar-
innar í dag til að auknu fjármagni
verði veitt til þess að vakta og halda
utan um rannsóknir í tengslum við
endurtekinn síldardauða í Kolgrafa-
firði á Snæfellsnesi.
Í desember síðastliðnum er talið
að um 30 þúsund tonn af fiski hafi
drepist í firðinum og svo aftur þús-
undir tonna síðasta föstudag.
„Við gerum ráð fyrir að veita
fjármagni í að vakta þetta ástand
betur og meta þörf og möguleika á
mótvægisaðgerðum,“ segir Svandís.
Hafrannsóknastofnunin vinnur
að því að meta hversu umfangs-
mikill síldardauðinn hafi verið
núna í byrjun mánaðarins. Þá hefur
Umhverfisstofnun og Náttúrustofa
Vesturlands einnig sett upp vökt-
unar- og eftirlitsáætlanir. „Og það
sem við veltum nú fyrir okkur er
að umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
ið í samstarfi við atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneyti muni halda
utan um vöktunaráætlunina, til
þess að tryggja reglulega upplýs-
ingagjöf og síðan að halda utan um
skýrslu um málið frá upphafi til
enda, bæði viðbrögð og vöktun,“
segir Svandís og bætir við að síldar-
dauðinn í firðinum sé einstakur við-
burður og því mikilvægt að fylgjast
mjög vel með þróun mála. „Núna
eru fram undan þessir mánuðir
þegar fuglinn fer að koma og verð-
ur mjög mikilvægt að fylgjast með
því hvort þessi viðburður hafi áhrif
á fuglalífið og lífríkið allt þegar það
fer að lifna meira með vorinu.“
Heimamenn gera hreinsunar átak
í dag en í bítið munu krakkar úr
5.-10. bekk grunnskólans á Grund-
arfirði, og reyndar fleiri, halda upp
í Kolgrafafjörð til að handtína síld
úr fjörunni.
Sigurborg Kr. Hannesdóttir, for-
seti bæjarstjórnar, segir þetta einu
leiðina til að bjarga þeim verðmæt-
um sem liggja í fjörunni, tækjum
verði ekki viðkomið. „Þetta verður
notað í minkafóður og er tilraun til
að draga úr grútarmengun, sem er
orðin hrikaleg nú þegar. Síðan tekur
fyrirtækið Skinnfiskur í Sandgerði
síldina og krakkarnir geta notað
peningana í félagsstarf.“
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri
hjá Hafrannsóknastofnun, sagði í
samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og
Bylgjunnar í gær einboðið að afla-
ráðgjöf stofnunarinnar í síld yrði
töluvert lægri vegna síldardauðans
í Kolgrafafirði. Þorsteinn sagði síld-
ardauðann í Kolgrafafirði einstakan
á heimsvísu. olikr@frettabladid.is
svavar@frettabladid.is
Vill vöktun á lífríki
Umhverfisráðherra leggur til að fjármagni verði veitt til vöktunar og rannsókna
vegna síldardauðans í Kolgrafafirði. Grunnskólanemar fara í dag til að tína upp
síld af fjörum. Síldardauðinn mun hafa áhrif á aflaráðgjöf fyrir næstu vertíð.
Í KOLGRAFAFIRÐI Nú hefur gríðarlegt magn síldar drepist í firðinum í tvígang. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NEYTENDUR Sjússamælar og vín-
glös voru ómerkt eða ekki vottuð
með viðeigandi merkjum hjá
öllum tuttugu vínveitingahúsun-
um og innflytjendum sem Neyt-
endastofa kannaði fyrir stuttu.
Tilgangur könnunarinnar var
að athuga hvort veitingahús færu
eftir reglum um vínmál sem notuð
eru til að mæla skammta áfengis
sem ætlað er til sölu. Stofnunin
mun fylgja þessari könnun eftir
og fara fram á að úr þessum
málum verði bætt. - sv
Neytendastofa skoðar bari:
Sjússar og glös
í ólagi á börum
Þetta verður notað í
minkafóður og er tilraun til
að draga úr grútarmengun,
sem er orðin hrikaleg nú
þegar.
Sigurborg Kr. Hannesdóttir, forseti bæjar-
stjórnar Grundarfjarðar
VEISTU SVARIÐ?
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
Vínber, melónur, ananas, appelsínur, perur og fleiri góðir
ávextir. 4 tegundir af ávöxtum eru á bakkanum – við veljum
það sem er best hverju sinni eftir árstíðum og framboði.
eða á www.somi.is
Frí heimsending*
Pantaðu í síma
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
TORTILLA
OSTABAKKI
Fyrir 10 manns
1.990 kr.