Fréttablaðið - 05.02.2013, Qupperneq 8
5. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
3
7
0
*
M
ið
a
ð
v
ið
b
la
n
d
a
ð
a
n
a
ks
tu
r
ð
v
ið
b
la
n
d
a
ð
a
n
a
ks
tu
r
BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala
Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070
SHIFT_
SHIFT_
Í
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
3
7
0
*
M
ið
a
ð
SUBARU XV – 4x4
Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.590 þús. kr.
Eyðsla:
4,2 l/100 km*
Eyðsla:
6,6 l/100 km*
RENAULT MEGANE II SPORT TOURER
1.5 dísil, sjálfskiptur. Verð 3.890 þús. kr.
NISSAN QASHQAI – 4x4
Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr.
NISSAN JUKE
Bensín, sjálfskiptur. Verð 4.090 þús. kr.
Eyðsla:
4,6 l/100 km*
Eyðsla:
6,3 l/100 km*
ELDSNEYTI
MINNA
NÝIR SPARNEYTNIR BÍLAR
FER 1.428 KM
Á EINUM TANKI
M.v. blandaðan ak
stur
VINSÆLASTI
SPORTJEPPINN
Samkv. Umferðars
tofu 2012
KEMUR Á
ÓVART!
Líka þegar þú pró
far
SPARNEYTINN
SUBARU
Ný vél, aukinn ben
sínsparnaður
EVRÓPUMÁL Leiðtogi jafnaðar-
manna, næststærsta þingflokks
Evrópuþingsins, segir ákvörðun
ríkisstjórnarinnar um að hægja
á aðildarviðræðunum við Evrópu-
sambandið (ESB) engin áhrif hafa
á viðræðurnar. Þá er hann sann-
færður um að hægt sé að finna
lausn á makríldeilunni sem allir
deiluaðilar sætta sig við.
Swoboda var staddur hér á
landi um helgina en hann ávarp-
aði landsfund Samfylkingarinnar
á laugardag undir dagskrárliðnum
„Tölum um tækifærin, atvinnu- og
menntamál innan ESB“. Frétta-
blaðið ræddi við Swoboda af þessu
tilefni.
Ríkisstjórnin ákvað á dögun-
um að hægja á aðildarviðræð-
um Íslands við ESB og verða því
engir nýir kaflar opnaðir í samn-
ingaviðræðunum þar til eftir þing-
kosningarnar í vor. Þá benda skoð-
anakannanir til þess að þó nokkrar
líkur séu á því að flokkar sem eru
á móti aðild að ESB myndi ríkis-
stjórn eftir kosningarnar. Hefur
þessi staða einhver áhrif á aðild-
arviðræður Íslands að sambandinu
frá ESB séð?
„Ég legg mikla áherslu á að
það er íslensku þjóðarinnar að
taka ákvörðun um hvernig hún
vill haga sambandi sínu við ESB.
Ef ríkisstjórnin vill hægja á við-
ræðunum þangað til eftir kosn-
ingar þá er það hennar ákvörðun
og ég sé ekkert vandamál við það.
Ef Íslendingar kjósa ríkisstjórn
sem er á móti viðræðunum þá er
það líka þeirra ákvörðun. Ég held
að það sé skýr vilji innan ESB til
þess að Ísland gerist aðili að sam-
bandinu en það er engin pressa
af hálfu sambandsins um að það
þurfi að gerast á allra næstunni,“
segir Swoboda og heldur áfram:
„Þá er það ekkert leyndarmál að
ESB hefur verið að glíma við sín
eigin vandamál sem þarf að leysa.
Ég get til dæmis nefnt mikið
atvinnuleysi. Ef og þegar það tekst
að leysa þessi vandamál kann að
vera að ESB líti skyndilega álitleg-
ar út bæði fyrir íbúa innan ESB
og sömuleiðis íbúa þeirra ríkja
sem standa utan við sambandið en
myndu kannski vilja ganga í það.
Það þarf því ekki að henta ESB illa
að hægt sé á viðræðunum.“
Spurður um stöðu makríldeil-
unnar milli Íslands og Færeyja
annars vegar og Noregs og ESB
hins vegar segir Swoboda: „Ég er
sannfærður um að það er hægt
að finna lausn á deilunni sem
allir geta sætt sig við. Auðvitað
er áhyggjuefni að sem stendur er
verið að ofveiða makrílstofninn,
sem er ekki sjálfbært til lengri
tíma, en ég held að deiluaðilarnir
hljóti að átta sig á því að það getur
ekki gengið til lengdar,“ segir Swo-
boda.
Að lokum óskar Swoboda Íslend-
ingum til hamingju með dóm
EFTA-dómstólsins í Icesave-mál-
inu og bætir við að dómurinn sýni
fram á að eftirlit með, og gang-
verkið utan um fjármálastarf-
semi, þurfi að vera samræmt milli
landa og þar hafi ESB hlutverki að
gegna. magnusl@frettabladid.is
Íslendinga að ákvarða
samband sitt við ESB
Hannes Swoboda, leiðtogi jafnaðarmanna á Evrópuþinginu, segir það alfarið
ákvörðun Íslendinga hvort og hvernig þeir vilji haga aðildarviðræðunum að ESB.
Swoboda var staddur á Íslandi um helgina og Fréttablaðið tók hann tali.
Hannes Swoboda segir að ESB sé á réttri leið þegar kemur að því að leysa
fjármálakrísuna á evrusvæðinu. „Krísan snýst ekki lengur um evruna, það
eru allir hættir að tala um þann möguleika að evrusamstarfið líði undir
lok. Það er framför. Hins vegar er krísunni auðvitað ekki lokið því að
atvinnuleysi er enn of mikið, laun of lág og hagvöxtur of lítill,“ segir Swo-
boda og bætir við að ESB þurfi að auka fjárfestingar í innviðum og laga
kerfisgalla í hagstjórn og fjármálaeftirliti til að leysa vandann endanlega.
Ekki lengur evrukrísa
HANNES SWOBODA Hannes Swoboda er austurrískur jafnaðarmaður sem hefur
setið á Evrópuþinginu frá árinu 1996. Hann tók við sem leiðtogi jafnaðarmanna í
þinginu á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STJÓRNSÝSLA Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra er nú í viku-
heimsókn í kínversku borgunum
Peking og Sjanghæ, ásamt aðstoð-
arkonu sinni, ráðuneytisstjóra og
tveimur skrifstofustjórum innan-
ríkisráðuneytisins. Heimsóknin er
margþætt, en meðal annars verður
rætt við kínversk yfirvöld varðandi
loftferðasamninga til Kína.
Samkvæmt upplýsingum úr
innan ríkisráðuneytinu hefur flug-
félagið Atlanta óskað eftir því að
komið verði á formlegu sambandi
milli ríkjanna tveggja varðandi
flug og eru samræður komnar á
lokastig.
Framkvæmdastjóri Atlanta er
staddur erlendis en Stefán Eyjólfs-
son, starfsmannastjóri félagsins á
Íslandi, segir kínversk flugmála-
yfirvöld hafa aðrar reglur en önnur
Asíulönd hvað flugleyfi varðar.
„Þau leyfa ekki svokallaða „wet-
lease samninga,“ það er að segja
að við leigjum okkar vélar með
áhöfnum til annarra,“ segir hann.
„Þegar við fljúgum til dæmis
fyrir Saudi Arabian Airlines leigj-
um við vélarnar okkar til þeirra.
En við getum ekki flogið til Kína
vegna þessara reglna.“ Vonast er
til, með heimsókn innanríkisráð-
herra, að hægt verði að gera flug-
félaginu auðveldara að nýta vélar
sínar í þessum heimshluta og gera
mögulega samninga milli Íslands
og Kína í framtíðinni. - sv
Fulltrúar innanríkisráðuneytis í vikuheimsókn í Peking og Sjanghæ:
Ræða flugsamgöngur til Kína
ÖGMUNDUR JÓNASSON Innanríkis-
ráðherra dvelur nú í Kína ásamt fríðu
föruneyti úr ráðuneytinu þar sem rætt
verður meðal annars við stjórnvöld um
samgöngur, neytendamál og ættleiðing-
ar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NÝSKÖPUN Efla á tengsl skóla og
atvinnulífs með framtakinu Verk-
efnamiðlun, sem Íslenski sjávar-
klasinn stendur að. Opnaður hefur
verið vefurinn verkefnamidlun.is,
en þar geta fyrirtæki skráð verk-
efni sem þau óska eftir nemendum
til að sinna. Þegar eru í boði um 50
verkefni af ýmsu tagi.
Þór Sigfússon, framkvæmda-
stjóri Íslenska sjávarklasans,
segir með framtakinu brugðist við
áhuga bæði skóla og atvinnulífsins
á að bæta tengsl þar á milli.
Fyrsta kast-
ið er áhersla
lögð á verkefni
tengd hafinu
og nýsköpun
en vefurinn er
þó opinn fyrir-
tækjum í öllum
atvinnugrein-
um.
„Ég hvet nem-
endur alveg sérstaklega til að skrá
sig þarna inn á vefinn,“ segir Þór
og kveðst vonast til þess að á end-
anum verði þarna til ein verkefna-
miðlun fyrir atvinnulífið allt.
Hann segir verkefnið hafa verið
kynnt í norrænu samstarfi og mik-
ill áhugi sé fyrir því bæði í Fær-
eyjum og Danmörku að setja upp
verkefni með það sem fyrirmynd.
„Þeir hafa óskað eftir hugbúnaðar-
fyrirtækjunum sem hafa aðstoðað
okkur hér heima.“
Verkefnið verður kynnt nemend-
um formlega á morgun á Frama-
dögum sem haldnir verða í Háskól-
anum í Reykjavík. - óká
Verkefnamiðlun.is á að bæta tengslin milli skólanna og atvinnulífsins:
Nemendur vinni fyrir fyrirtæki
ÞÓR SIGFÚSSON