Fréttablaðið - 05.02.2013, Side 10
5. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
VÖRUR SEM
EIGA HEIMA
Í ÞÍNU ELDHÚSI
Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus
HEILBRIGÐISMÁL Matvælastofnun
skoðar nú hvort nauðsynlegt sé
að setja reglur um aldurstakmark
á neyslu á hrísgrjónamjólk hér á
landi þar sem of mikið magn af
arseni, sem er eitraður málmung-
ur og getur valdið krabbameini,
hefur fundist í hrísgrjónadrykkj-
um.
Ný sænsk rannsókn leiddi í ljós
að hrísgrjónaplöntur taka í sig
arsen á vaxtartímanum og ná svo
ekki að losa það úr fyrir uppskeru.
Af þessum sökum hafa verið settar
reglugerðir á Norðurlöndunum og
Bretlandi þar sem aldurstakmark
er sett á neyslu hrísgrjónamjólkur,
allt frá þriggja til sex ára.
Zulema Sullca Porta, sér-
fræðingur hjá Matvælastofnun
(MAST), segir ástæðu til að skoða
þessar reglugerðir hér á landi.
Hún býst við því að MAST gefi
út viðmiðunarreglur í næstu viku
þegar norrænni ráðstefnu sér-
fræðinga um málið er lokið.
„Hrísgrjónin virðast vera
vandamálið, sérstaklega þar sem
vörurnar eru markaðssettar fyrir
börn. Vandamálið með hrísgrjóna-
mjólkina er sú að lítill einstak-
lingur innbyrðir mögulega mjög
mikið magn á hverjum degi og því
getur það talist skaðlegra en aðrar
vörur,“ segir hún og tekur þar
hrískökur og grauta sem dæmi.
„Ungabörn geta drukkið allt að
hálfan lítra á dag og þess vegna
hringja þessar viðvörunarbjöllur.
Þetta er ekki æskilegt fyrir svona
ung börn þegar mjólk er þeirra
aðalfæða.“
Zulema beinir til foreldra
barna með mjólkuróþol að skoða
aðra kosti en hrísgrjónamjólk
á meðan rannsóknirnar standa
yfir. „Fyrstu niðurstöður benda
til þess að við þurfum að hafa
áhyggjur af þessu,“ segir hún.
- sv
Skoða hvort banna eigi hrísgrjónamjólk:
Eitur í hrísgrjónum
veldur áhyggjum
HRÍSGRJÓNAAKUR Arsen myndast
víða í umhverfinu og smitast í plöntur
sem taka í sig mikið vatn, eins og hrís-
grjónaplöntuna.
Fyrstu niðurstöður
benda til þess að við
þurfum að hafa áhyggjur
af þessu
Zulema Sullca Porta,
sérfræðingur hjá MAST
HLAUPAB
ÖND OG
LYFTINGA
BEKKIR m
eð 10–20%
afslætti.
ÞREKTÆK
I í miklu ú
rvali fyrir
byrjendu
r sem len
gra komn
a.
sláttur
www.markid.is / Sími 517 4600 / Ármúla 40