Fréttablaðið - 05.02.2013, Qupperneq 14
5. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
E
nn eitt kvótafrumvarpið hefur litið dagsins ljós. Það sem
nú hefur verið lagt fram er fjórða atrenna ríkisstjórnar-
innar að umfangsmiklum breytingum á stjórnkerfi
fiskveiða; Jón Bjarnason lagði fram eitt frumvarp og ein
frumvarpsdrög og Steingrímur J. Sigfússon leggur nú
fram annað frumvarp sitt um málið.
Ráðherrann hefur látið í það skína að með frumvarpinu sé
komið til móts við ýmsa gagnrýni á síðasta frumvarp. Við fyrstu
sýn virðast breytingar á því
aðallega vera til þess hugs-
aðar að sefa gagnrýnisraddir í
stjórnarflokkunum, sem töldu
að ekki væri nógu langt gengið
í skemmdarverkum á núverandi
fiskveiðistjórnunarkerfi.
Þau þrjú plögg, sem á undan
þessu komu, hafa öll fengið sömu
gagnrýnina, bæði frá talsmönnum sjávarútvegsins og óháðum
sérfræðingum, innlendum og erlendum. Hún felst ekki sízt í því að
með öllum frumvörpunum séu veiðiheimildir teknar af fólki sem
hefur nýtt þær með hagkvæmum hætti og færðar til óhagkvæmari
nota; í byggða-, línuívilnunar-, strandveiði- og leigupotta. Með
þessu sé dregið úr skilvirkni og hagkvæmni í fiskveiðistjórnunar-
kerfinu.
Í nýja frumvarpinu virðist nánast ekkert komið til móts við
þessa gagnrýni, nema þá helzt í því að dregið er úr takmörkunum
á framsali aflaheimilda. Allt pottasukkið stendur í grundvallar-
atriðum óhaggað. Gert er ráð fyrir að nýtingarleyfi útgerðarinnar
séu til 20 ára, en svo á að stofna nefnd um framhaldið. Þannig er
útgerðin enn einu sinni skilin eftir í óvissu um framtíðina og þar
með unnið gegn framtíðaruppbyggingu og fjárfestingu í greininni.
Það er hægt að ná sátt um þrjú grundvallaratriði í fiskveiði-
stjórnuninni; að skýrt sé kveðið á um þjóðareign á auðlindunum
í lögum og stjórnarskrá, að aflaheimildirnar feli í sér nýtingar-
rétt en ekki eignarrétt og að þjóðin fái eðlilegan afrakstur af eign
sinni. Með hækkun veiðileyfagjaldsins hefur síðastnefnda atriðið
verið tryggt – og sennilega gengið heldur langt í gjaldtökunni. Um
hin atriðin er í raun ekki pólitískur ágreiningur. En slíka sátt kýs
ríkisstjórnin ekki.
Einmitt til þess að tryggja þjóðinni arð af auðlindinni ættu
stjórnvöld nú að kappkosta að viðhalda hagkvæmu og skilvirku
fiskveiðistjórnunarkerfi. Þess í stað kjósa þau að láta gagnrýni
atvinnugreinarinnar sjálfrar og óháðra sérfræðinga sem vind
um eyrun þjóta og grafa undan getu sjávarútvegsins til að standa
undir gjaldtökunni. Alls konar delluhugmyndir, sem rötuðu inn í
upphaflegt frumvarp Jóns Bjarnasonar, komast bara alls ekki út
úr málinu aftur.
Frumvarp atvinnuvegaráðherra er svo seint fram komið að
ólíklegt er að það verði að lögum fyrir kosningar. Sem er út af
fyrir sig ágætt. Það er því líkast til fremur hugsað sem kosninga-
plagg. Kjósendur sem vilja sterkan sjávarútveg sem stendur undir
raunverulegri verðmætasköpun ættu ekki að láta blekkjast af
þessum hugmyndum, sem í raun hafa margoft verið skotnar niður
nú þegar.
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og
í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
Í frumvarpi til laga um ný náttúruvernd-
arlög er margt gott og gilt og ber að taka
fagnandi. En betur má ef duga skal. Inn
á milli eru gloppur sem vert er að staldra
við og skoða nánar. Ég vil því hvetja fólk
og félagasamtök sem telja sig málið varða
að senda inn athugasemdir á vef Alþingis
fyrir 8. febrúar næstkomandi. Með því
mætti reyna á það samráð sem oft hefur
verið bent á að viðhaft sé af hálfu stjórn-
valda. Því með samráði má gera gott
betra, ekki satt?
Þá er best að leita til og hlusta á þá
sem kunnugastir eru málum. Það eru
þeir aðilar sem árum saman hafa farið
um fjöll og firnindi og þekkja því landið
eins og lófann á sér. Mikilvægt er að fara
ekki í manngreinarálit með hvaða hætti
fólk ferðast, en þar er átt við gangandi og
akandi útivistarfólk og auðvitað einnig
hestamenn sem hafa margt til málanna
að leggja.
Ferðafrelsi er okkur Íslendingum í blóð
borið og þráin eftir því að komast út í
náttúruna sterk. Okkur ber að sjá um að
allir fái notið náttúrunnar, líka þeir sem
vegna öldrunar, veikinda, fötlunar eða
ungs aldurs geta ekki ferðast um nema til
komi vélknúið ökutæki.
Á vefnum hafa verið hatrammar
umræður með ásökunum um að nú eigi að
nota fötlun sem átyllu til að spæna um allt
á ökutækjum án ábyrgðar, umræða sem
oft er lituð af misskilningi og skorti á því
að geta sett sig í spor annarra. Slíkt tel ég
vera umræðu á villigötum. Mikilvægt er
samt að raddir allra fái að heyrast. Er það
einlæg von mín að á okkur verði hlustað
og samráð verði haft til úrbóta.
Landið er sameign okkar allra og okkur
ber að ganga þannig um að við skilum því
eins til komandi kynslóða og við tókum
við því, ef ekki enn betra. En ég spyr
hvers virði er náttúran ef enginn fær að
njóta hennar? Til að unna þarf að þekkja
og það gerum við með því að ferðast og
kynnast landinu. Of mörg boð og bönn
eru sjaldnast sú leið sem vænlegust er til
bóta. Veljum því frekar fræðslu og leið-
sögn. Það er vænlegra að gefa sér tíma til
að fara yfir málin á yfirvegaðan hátt og
finna lausnir sem leiða til sátta þannig að
allir geti vel við unað. Ég bið því þing-
menn að skoða hug sinn áður en þeir sam-
þykkja náttúruverndarlögin óbreytt og
skora á alla að kynna sér málið á www.
ferdafrelsi.is.
Sá veit er víða ratar
NÁTTÚRA
Laila Margrét
Arnþórsdóttir
ráðgjafi
➜ Ferðafrelsi er okkur Íslendingum
í blóð borið og þráin eftir því að
komast út í náttúruna sterk.
Nú þarf skýr svör
Mál bandarísku lögreglumannanna
sem komu hingað til lands haustið
2011, sem fréttastofa Ríkisútvarps-
ins hefur skilmerkilega greint frá, er
hið skrýtnasta. Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra segist hafa frétt af
hingaðkomu þeirra 25. ágúst og krafist
þess að öllu samstarfi við þá yrði
hætt. Utanríkisráðuneytið hafi síðan
gengið í málið, að sögn Ögmundar,
og lögreglumennirnir horfið af landi
brott. Nú hefur ríkislögreglustjóri
hins vegar sent frá sér yfirlýsingu þar
sem segir að ráðuneytin tvö hafi ekki
haft samband fyrr en 30. ágúst og lýst
nærveru bandarísku lögreglu-
mannanna óæskilega. Nú þarf
Ögmundur að gefa skýr svör
um málið.
Kínverska kjördæmið
Til eru þeir sem eru svo staðnaðir
í pólitískum þroska að þeir nota
merkimiða eins og kommúnista yfir
andstæðinga sína. Þeir gætu kannski
gert sér mat úr þeirri staðreynd að
Ögmundur er staddur í Kína, en þessa
vikuna er hlé á störfum Alþingis svo
þingmenn geti sinnt kjördæmum
sínum. Það þarf hins vegar að vera
af hinum eðla þjóðflokki
gárunga til að tengja
utanför Ögmundar
og skyldur hans
í kjördæmi hans
við hið kommún-
íska Kína.
Vinaheimsókn
Að minnsta kosti einn annar
þingmaður fer út fyrir landsteinana
í kjördæmavikunni, en Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis,
heimsækir breska þingið í dag. Þar
hittir hún forseta neðri málstofu, John
Bercow, og víst er að næg eru um-
ræðuefnin. Ásta Ragnheiður gæti til
dæmis farið yfir Icesave-dóminn með
breskum kollega sínum og útskýrt
hvernig það að þjóðin felldi í tvígang
samninga sem Alþingi samþykkti
skilaði eins farsælli niðurstöðu og
raun ber vitni. Þegar það umræðuefni
þrýtur getur Ásta minnst aðeins á
aðra milliríkjadeilu, um makríl-
kvótann. Þetta verður gaman.
kolbeinn@frettabladid.is
Fjórða atrennan að breytingum á fiskveiðistjórn:
Nýtt frumvarp,
sömu hugmyndir