Fréttablaðið - 05.02.2013, Side 18

Fréttablaðið - 05.02.2013, Side 18
FÓLK|HEILSA Sýkingar af völdum fjölónæmra MÓSA-baktería eru alvarlegt vandamál á sjúkrahúsum víða í heiminum. Enn eru MÓSA-sýkingar ekki algengar hér á landi en til að sporna við því að bakteríurnar nái fótfestu hér hafa flest sjúkrahús á Íslandi sett ákveðnar reglur um markvissa leit að MÓSA við innlögn sjúklinga sem nýlega hafa legið á sjúkrahúsum erlendis. Algengt er að íslenskt heilbrigðis- starfsfólk starfi að hluta til á erlendum sjúkrahúsum. Því vaknar sú spurning hvort þessar tíðu ferðir geti ekki aukið bakteríusmit milli stofnana, þá sérstak- lega með tilliti til MÓSA. „Reynt er að halda MÓSA-bakteríunum frá sjúkra- húsunum eins og hægt er. Ákveðnar reglur gilda um ræktun út af MÓSA þeg- ar sjúklingar eru að færast milli sjúkra- húsa og það sama á við um starfsfólk sem starfar að hluta á erlendum sjúkra- húsum,“ segir Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á sóttvarnasviði Landlæknis- embættisins, og bætir við að sýkinga- varnadeildir sjúkrahúsanna sjái um að framfylgja reglunum. „Við erum með ákveðnar reglur um að fólk sem starfar á sjúkrahúsum erlendis skili MÓSA-sýnum samkvæmt leiðbeiningum,“ segir Ásdís Elfars- dóttir Jelle á sýkingavarnadeild Land- spítala. Misjafnt sé þó hversu oft þurfi að skila sýnunum og fari það eftir því hvar fólkið hefur verið að vinna. „MÓSA er misjafnlega algeng í heiminum. Þeir sem vinna á Norðurlöndunum eða í Hollandi, þar sem við vitum að lítið er um MÓSA, skila sýni eftir fyrstu ferð og síðan á sex mánaða fresti ef farið er reglulega utan,“ útskýrir hún en starfs- menn sem fara til annarra landa þar sem meira er um MÓSA eiga að skila sýni eftir hverja ferð. Ásdís segir slíkar sýkingar afar óalgengar meðal starfs- fólks Landspítala. „Það hefur engin slík sýking dúkkað upp hjá okkur í mjög langan tíma.“ Þórólfur hefur heyrt af einhverju heilbrigðisstarfsfólki sem greinst hefur með bakteríuna. „Ef MÓSA-bakteríur finnast hjá starfsmanni fer sá hinn sami í upprætingarmeðferð um leið,“ segir hann og telur að þetta sé besta fyrir- komulagið sem er í boði. Baráttuna við MÓSA segir hann þó erfiða. „Þessar sýk- ingar eru ekki bundnar við sjúkrahúsin heldur er þessar bakteríur að finna úti í samfélaginu. Heilbrigt fólk getur gengið með þessar bakteríur og fæstir verða veikir. Bakterían hefur því náð fótfestu hér í samfélaginu en aðaláhersla okkar er að reyna að halda henni frá sjúkra- stofnunum eins og hægt er.“ FYLGST MEÐ SMITI SMITHÆTTA Algengt er að heilbrigðisstarfsfólk starfi að hluta til á erlendum sjúkrahúsum. Við það eykst hættan á að bakteríur berist milli sjúkrahúsa. Sýkingavarnadeild Landspítala fylgir sérstökum reglum til að forðast smit. INN OG ÚT AF SPÍTALANUM Starfsmenn spítalanna sem vinna að hluta á sjúkrahúsum erlendis þurfa að skila sýnum með reglu- legu millibili. MÓSA er skammstöfun á Meti- cillin ónæmur Staphylo- coccus aureus. Staphylo- coccus aureus er algeng bakteríutegund sem lifir að staðaldri á húð og einkum í nefi um það bil 20 til 40 prósenta manna án þess að valda nokkrum einkennum eða skaða. Komist hún hins vegar í sár, blóðbraut eða aðra vefi getur hún valdið misalvarlegum sýkingum. Við alvarlegar sýkingar þarf að nota sýklalyf og þá hefur lyfið Meticillin helst verið notað. Nú ber æ oftar á afbrigðum bakteríunnar sem eru ónæm fyrir Meticillini og jafnframt fleiri sýklalyfjum og kall- ast þessi afbrigði MÓSA. MÓSA er enn sjaldgæf á Íslandi, en nái hún bólfestu á sjúkrahúsum getur reynst erfitt og kostnaðarsamt að upp- ræta hana. Heimild: Vísindavefur Háskóla Íslands Lífshlaupið er nú haldið í sjötta sinn og stöðugt bætast fleiri keppendur við. Í fyrra tóku um 20 þúsund manns þátt sem er aukning um 24 prósent frá árinu áður. „Á heimasíðu okkar geta bæði fyrirtæki, skólar og einstaklingar skráð sig og í framhaldi skráð niður þá hreyfingu sem stunduð er. Fólk er mjög spennt yfir þessu, vinnustaðir fara í zumba-tíma, hópgöngur og fleira til að efla hreyf- ingu á vinnustöðum,“ segir Jóna Hildur Bjarnadótt- ir, sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ. Árið 2011 lagði ÍSÍ rannsókn fyrir þátttakendur í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins. Þar svöruðu þeir spurningum um daglega hreyfingu áður en þeir tóku þátt og svo aftur fimm mánuðum eftir þátt- töku. „Niðurstöðurnar voru þær að meirihlutinn sem tók þátt var farinn að hreyfa sig meira en áður. Þeir sem hreyfðu sig einu sinni til tvisvar sinnum í viku voru farnir að hreyfa sig þrisvar til fjórum sinnum í viku og svo framvegis. Þannig ýtir Lífs- hlaupið við fólki.“ Þá geta einstaklingarnir einnig tekið þátt bæði þessar þrjár vikur og allt árið um kring. „Það eru um 1.200-1.300 manns sem gera það. Skráningin fer vel af stað og við vonumst til að setja þátttökumet í ár. Við hvetjum fólk til að fara inn á nýja vefinn okkar www.lifshlaupid.is og skrá sig, eða fylgjast með á Facebook-síðunni okkar.“ LÍFSHLAUPIÐ HAFIÐ Í dag hefst hið árlega Lífshlaup ÍSÍ og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Lands- menn eru hvattir til að huga að daglegri hreyfingu, efla hana og auka. EKKI OF SEINT AÐ SKRÁ SIG Enn er tekið á móti skráningum á www.lifshlaupið.is. MYND/STEFÁN KARLSSON Mígreni Þjáist þú af eða einhver sem þú þekkir Nýtt á Íslandi Vísindalega sannað að MigreLief gagnast við mígreni Fæst í Lyfjaborg Borgartúni 28 - Sími 553-8331 Náttúrulegt v í tamín fæðubótarefni æt lað mígrenis júkl ingum fæst án ly fseði ls . Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum www.gengurvel.is BELLAVISTA náttúrulegt efni fyrir augun, ríkt af lúteini og bláberjum NÁTTBLINDA Útvarps þátturinn Snorri með Orra frá hádegi alla virka daga Save the Children á Íslandi SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR! Skipholti 29b • S. 551 0770 FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.