Fréttablaðið - 05.02.2013, Qupperneq 20
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2013
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is s. 512 5432 |
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Blaðamaður/ritstjórn: Finnur Thorlacius
Einn alvinsælasti jeppling-ur síðustu ára á Íslandi er Honda CR-V. Það sem meira er,
hann er langvinsælasti jepplingur í
Bandaríkjunum og slær léttilega við
heimabílunum Ford Escape og jepp-
anum Ford Explorer. Hann seldist í
meira en 300.000 eintökum á síðasta
ári. Hann er þekktur fyrir áreiðan-
leika og fátíðar bilanir og endist von
úr viti. Svo vel hefur hann enst hér
á landi að 98% allra CR-V bíla sem
selst hafa frá upphafi sölu hans eru
enn á götunum. Það er því greini-
lega nokkuð varið í þennan bíl og
svo var reyndar raunin er honum
var reynsluekið á dögunum. Var þar
um að ræða nýja kynslóð bílsins af
árgerð 2013. Talsverðar breytingar
hafa verið gerðar á bílnum og allar
til að gera góðan bíl betri.
Virkar stærri en forverinn en er
minni
Í fyrsta lagi er bíllinn fallegri að
utan, en fyrri kynslóð hans var
orðin nokkuð á eftir og breyting-
ar því tímabærar. Hann er allur
rennilegri og greinilega hefur verið
unnið ríkulega í loftf læði hans,
allt til að minnka eyðslu bílsins.
Honda hefur þó ekki gert þau mis-
tök að gera hann svo sportlegan að
minnka gluggalínu hans, eins og á
við um svo marga nýja bíla í dag.
Það verður gjarnan til þess að út-
sýni úr bílnum, sérstaklega úr aft-
ursætum, skerðist mjög. Önnur mis-
tök sem Honda gerði ekki var að gera
bílinn stærri, heldur þvert á móti er
bíllinn aðeins minni þó að útlitið
bendi til þess þveröfuga. Vel útfærð
verkfræðileg hönnun hans innan-
borðs hefur hins vegar gert það að
verkum að hann er rýmri en forver-
inn og á það við um öll mál hans.
Meira rými fyrir ökumann og aft-
ursætisfarþega, auk hins flata gólfs í
afturhluta bílsins, skapar góða rým-
istilfinningu. Eftirtektarvert er gott
fótarými aftur í. Skottrými er yfrið
og ætti að duga flestum til ferðalaga.
Í dýrustu Executive-útgáfu bílsins
kemur hann með gullfallegum leð-
ursætum og ýmislegt annað góð-
gæti fylgir þá með eins og rafstýrt
ökumannssæti, glerþak, rafstýrð-
ur afturhleri og lyklalaust aðgengi
og ræsing.
Fín innrétting en of mikið af plasti
af ódýrari gerðinni
Geymslurými öll eru til fyrirmynd-
ar og í miðjustokki eru gríðarlega
rúmmiklar geymslur og geta hæg-
lega látið kvenmannsveski hverfa.
Ekki er skortur á glasahöldurum.
Fimm tommu upplýsingaskjár gefur
mælaborðinu snaggaralegan svip þó
stærri skjáir prýði margan bílinn í
dag. Á skjánum má stýra öllum fjár-
anum í bílnum og á honum birtist
útsýni bakkmyndavélar ef sett er í
bakkgír. Hitastýrð miðstöð er vel
þegin breyting á bílnum. Mæla-
borðið er einfalt en skiljanlegt og
allt til staðar sem þarf. Allar mögu-
legar tengingar eru í bílnum og ekki
er ónýtt að geta stýrt lagavali gegn-
um iPhone. Það eina sem hægt er að
setja út á innréttinguna er notkun
á því er virðist ódýrari gerð plasts,
sem setur hann aðeins niður í sam-
anburði við margan annan nýjan
bílinn í dag. Allt er þetta þó greini-
lega vel smíðað eins og við mátti
búast hjá Honda. Í bílinn má fá rad-
artengdan skriðstilli, akreinaaðstoð
og árekstrarviðvörunarkerfi, en fjar-
lægðarskynjarar að framan og aftan
eru staðalbúnaður.
Kostar frá 6,0 til 7,9 milljónir
Fá má CR-V með 2,0 lítra og 150
hestafla bensínvél eða 2,2 lítra og
155 hestafla dísilvél. Báðar eru þær
þýðgengar og öflugar vélar en eyðsl-
an með dísilvélinni er umtalsvert
lægri. Á móti kemur að bensínbíll-
inn er talsvert ódýrari sem munar
900 þúsund krónum. Bensínbílinn
má aðeins fá sjálfskiptan en dísil-
bílinn bæði bein- og sjálfskiptan. Ef
keyptur er dísilbíll með beinskipt-
ingu munar ekki nema 100 þús-
und krónum á honum og bensín-
bílnum. Eyðsla beinskipts bíls er
að auki einum lítra minni í blönd-
uðum akstri, ekki nema 5,6 lítrar
á hundraðið. Geri aðrir jepplingar
betur. Ódýrasti bíllinn er sjálfskipt-
ur bensínbíll á 5.990.000 kr. Dýrasta
útgáfa hans er sjálfskiptur dísilbíll
í Executive-útgáfu, á 7.890.000 kr.
Akstur Honda CR-V er einkar ljúf-
ur, fjöðrun til fyrirmyndar og bíll-
inn er allur stífur og góður. Ekki ber
mikið á hliðarhalla er lagt er á hann,
stöðugleiki á vegi veitir fína öryggis-
tilfinningu. Það sem helst má setja
út á akstursánægjuna er ný rafræn
stýring sem stelur aðeins tilfinn-
ingu fyrir vegi og minnkar skemmt-
anagildið við aksturinn. Þegar allt
er tekið saman er Honda CR-V fer-
lega fínn bíll sem skorar hátt á flest-
um sviðum. Hann hefur ávallt verið
góð kaup og búast má við að hann
endist gríðarlega vel eins og forver-
ar hans. Endursöluverð er alltof gott
á þessum bíl og oftar en ekki er sleg-
ist um þá, þá sjaldan að fólk vill selja
þá. Hann er á fínu verði sem fyrr og
ætti sem áður að seljast vel hér, enda
heppilegur við íslenskar aðstæður.
Fersk
kynslóðabreyting
REYNSLUAKSTUR HONDA CRV
Mjög vel smíðuð og stílhrein innrétting en Honda hefði mátt vanda sig betur við efnis-
valið.
KOSTIR
➜ Frábært rými
➜ Góð til-
finning fyrir
smíðagæðum
➜ Mikið útsýni
úr bílnum
GALLAR
➜ Full einföld
innrétting og
notkun ódýrs
plasts
➜ Rafræn stýr-
ing dregur úr
tilfinningu í
akstri
Talsvert mikil og í alla staði lagleg
breyting á Honda CR-V.
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 05/12, ekinn 22 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 7.690 þús.
Rnr.2151698.
Frábært úrval af nýlegum, lítið
eknum bílum á frábæru verði!
Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
HYUNDAI SANTA FE II LUX
Nýskr. 01/08, ekinn 65 þús km.
dísel, sjálfskiptur, 7 manna.
VERÐ kr. 4.190 þús.
Rnr.151261.
LAND ROVER DISCOVERY 4S
Nýskr. 05/11, ekinn 52 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Rnr.151731
HYUNDAI IX35
Nýskr. 05/12, ekinn 24 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.990 þús.
Rnr.201051.
HYUNDAI i30 STYLE
Nýskr. 09/08, ekinn 52 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.550 þús.
Rnr.201099.
FORD GALAXY TREND
Nýskr. 06/11, ekinn 38 þús. km.
dísil, sjálfskiptur, 7 manna.
Verð kr. 4.490 þús.
Rnr.130386.
BMW 525Xi - 4x4
Nýskr. 01/08, ekinn 81 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.890 þús.
Rnr.190795.
Glæsilegt eintak kr.
9.880 þús.
Gerðu frábær kauphjá Bílalandi BL
Gott úrval
af 4x4 bílum
Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði!