Fréttablaðið - 05.02.2013, Page 21
Bílar5. FEBRÚAR 2013 ÞRIÐJUDAGUR 3
Sparnaðarráð fyrir heimilið
Hluti af staðalbúnaði Spark LT:
Verið velkomin í reynsluakstur og kaffi
FRÍTT
Í STÆÐI
17,8 mílna
ökuhraði breyttist í
50 mílur
Hraðamyndavélar kosta margan manninn skildinginn.
Það er víðar en á Íslandi sem rándý rar hraðamy nda-vélar bila og það stund-
um við lítinn fögnuð vegfarenda.
Breskur leigubílstjóri fékk 20.000
króna gluggabréf gegnum póst-
lúguna um daginn vegna hraða-
brots hans sem átti að hafa náðst
á hraðamyndavél lögreglunnar.
Þar var honum refsað fyrir að aka
á 50 mílna hraða á svæði þar sem
30 mílna hraði er leyfður.
Hann mundi fyrir tilviljun
svo vel eftir þessari ökuferð sem
þarna var mynduð að hann fór að
rannsaka málið. Með því að bera
saman tvær myndir sem mynda-
vélin tók af bíl leigubílstjórans
kom í ljós að hann var einungis á
17,8 mílna hraða. Það rímaði mjög
vel við minni leigubílstjórans sem
einmitt minntist þess að hann var
að aka aldraðri konu í þessari ferð
og gætti þess mjög að fara hægt og
varlega. Flestir hefðu örugglega
greitt þessa sekt umyrðalaust og
án nokkurrar rannsóknar á stað-
reyndum en það var ágætt minni
leigubílstjórans og réttlætisvitund
hans sem forðaði honum frá þess-
ari óþörfu og óréttmætu sekt.
Í Baltimore voru nýlega teknar
niður hraðamyndavélar að and-
virði 60 milljóna króna vegna
óáreiðanleika þeirra og verða þær
allar endurnýjaðar. Í Reykjavík
voru allar þær þrjár myndavélar
sem staðsettar voru við ljósastýrð
gatnamót teknar niður árið 2009
og því eru þar til gerðir mynda-
vélakassar á víð og dreif um borg-
ina tómir og hafa verið það á fjórða
ár. Til stendur að kaupa nýjar vélar
í þessa kassa. Ekki er til fjármagn
til þeirra kaupa nú, en það stend-
ur til bóta.
Bilaðar hraða mynda -
vélar rukka grimmt Á bílasýningunni í New York í lok mars verður lýst kjöri á Bíl ársins 2013. Það eru 66 þekktir
bílablaðamenn um allan heim sem kjósa þann
bíl, en nú er komið í ljós hvaða tíu bílar það eru
sem koma til greina í kjörinu. Það eru Audi A3,
Range Rover, Mazda6, Mazda CX-5, Merce-
des-Benz A-Class, Peugeot 208, Porsche Boxs-
ter/Cayman, Subaru BRZ/Toyota GT86, Volks-
wagen Golf og Volvo V40. Það vekur sérstaka
athygli að enginn bandarískur bíll er þarna á
meðal þó verðlaunin verði afhent í New York.
Mörgum bílablaðamönnum kemur það reynd-
ar ekki mikið á óvart. Þýskir og japanskir bílar
eru áberandi á listanum, fjórir þeirra eru frá
Þýskalandi og þrír frá Japan.
Eldri sigurvegarar
Fyrri sigurvegarar í þessu kjöri hafa verið Volkswagen up! árið 2012,
Nissan LEAF árið 2011, Volkswagen Polo 2010, Volkswagen Golf 2009,
Mazda2 2008, Lexus LS 460 2007, BMW 3-línan 2006 og Audi A6 fyrir
árið 2005. Aftur eru þýskir bílar mjög áberandi, eiga Þjóðverjar fimm
af þeim átta bílum sem hlotið hafa þennan titil hingað til. Ætli það
verði sex af níu eftir kjörið í mars? Greint verður frá hvaða bílar hafa
náð þremur efstu sætunum í kjörinu á bílasýningunni í Genf 5. mars
en krýning Bíls ársins bíður New York-bílasýningarinnar 27. mars.
Sportbíll ársins
Það er ekki minni spenna fyrir kjöri á sportbíl ársins við sama tæki-
færi. Þar keppa um hituna bílarnir Aston Martin Vanquish, Audi RS5,
BMW M6, BMW M 135i, Ferrari F12 Berlinetta, Mercedes-Benz SL63
AMG og Mercedes Benz SLS AMG, Porsche Boxster/Cayman, Renault
Clio Sport og Subaru BRZ/Toyota GT86. Í þessum flokki bíla eiga sex
þýskir bílar fulltrúa af þeim tíu sem til greina koma. Fyrri sigurvegar-
ar í þessum flokki hafa verið Porsche 911 árið 2012, Ferrari 458 Italia
árið 2011, Audi R8 V10 2010, Nissan GT-R 2009, Audi R8 2008, Audi RS4
2007 og Porsche Cayman S árið 2006, en þá fyrst fór kjör fram í þessum
flokki.
Hverjir keppa um
titilinn Bíll ársins?