Fréttablaðið - 05.02.2013, Qupperneq 30
5. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 22MENNING
TÓNLIST ★★★★ ★
Caput-hópurinn
Stjórnendur Guðni Franzson og Snorri
S. Birgisson
MYRKIR MÚSÍKDAGAR Í HÖRPU 1.
FEBRÚAR.
Það var eitthvert undarlegt suð
í Norðurljósasalnum í Hörpu
á tónleikum Caput á Myrkum
músík dögum á föstudagskvöldið.
Kannski var þetta bilun í hátalara-
kerfinu. Það var býsna truflandi.
Að öðru leyti fóru tónleikarnir vel
fram. Fjórir nýir einleikskons-
ertar litu dagsins ljós. Sá fyrsti
á dagskránni var píanókonsert.
Hann var eftir Jónas Tómasson.
Einleikari var Tinna Þorsteins-
dóttir. Mikil væg rulla var einnig
í höndunum á Eiríki Erni Páls-
syni trompetleikara. Á tímabili
var um hálfgert kammerverk að
ræða. Meginuppistaðan var sam-
spil trompet- og píanóleikarans.
Restin af hljóðfærunum mynduðu
fremur hlédrægan undirleik.
Verkið var skemmtilegt, og það
var prýðilega leikið. Formið var
fallega frjálslegt og óvenjulegt.
Ekki þessi hefðbundna uppbygg-
ing sem stefnir á hápunkt undir
lokin og fjarar svo út með einhvers
konar bergmáli af upphafstónun-
um. Það form hefur verið vinsælt
hjá tónskáldum síðustu árin og er
orðið að hálfgerðri klisju. En Jónas
leyfði sér að gera allt annað. Líf-
legir hápunktar voru að vísu til
staðar en fljótlega náði innhverf-
ari stemning yfirhöndinni. Lag-
línan var sjarmerandi, skáldskap-
urinn auðfundinn, innblásturinn
sterkur. Þetta var með því besta
sem ég hef heyrt eftir tónskáldið.
Kontrabassakonsert eftir Þórð
Magnússon var næstur á dag-
skrá. Hann var líka skemmtileg-
ur. Hljómsveitin samanstóð hér af
strengjum og hörpu og tónefnið
var notalega kæruleysislegt. Fullt
var af skondnum en grípandi tón-
hendingum sem þróuðust í alls
konar áttir. Tónlistin kom stöðugt
á óvart og maður naut hvers tóns.
Hávarður Tryggvason lék einleik
og gerði það af glæsimennsku,
tæknilegu öryggi og innlifun.
Lakasta tónsmíðin á efnis-
skránni var fiðlukonsert eftir
Snorra S. Birgisson. Hann skart-
aði vissulega fallegum laglínum en
var dálítið ofhlaðinn og langdreg-
inn. Konsertinn var saminn fyrir
bróður tónskáldsins, Þórhall, sem
er fiðluleikari. Þórhallur er vissu-
lega hæfileikaríkur en hefur ekki
verið áberandi í tónlistarlífinu. Ég
veit ekki til þess að hann komi oft
fram á tónleikum. Það heyrðist.
Fæstir spila vel opinberlega nema
þeir geri það reglulega.
Lokaverkið á dagskránni var
Ensilumi, sellókonsert eftir Áskel
Másson. Ensilumi er finnska og
þýðir fyrsti snjór vetrar. Tónlist-
in var innhverf, einhvers konar
seiðandi drungi einkenndi hana
alla. Áskell er fremur rómantískt
tónskáld, það var morgunljóst
hér. Tónarnir komu auðheyrilega
beint frá hjartanu, laglínurnar
voru grípandi. Atburðarrásin var
ljóðræn, draumkennd, flæðandi
og eðlileg. Einleikur Bryndísar
Höllu Gylfadóttur var líka frá-
bær, tilfinningaþrunginn, myrkur
og heillandi. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Þrír af fjórum nýjum
einleikskonsertum voru skemmtilegir.
Notalegt kæruleysi
Jón Páll Bjarnason, Reynir Sig-
urðsson, Gunnar Hrafnsson og
Erik Qvick koma saman á Café
Rosenberg í kvöld ásamt söngkon-
unni Jóhönnu V. Þórhallsdóttur.
Hljóðfæraleikararnir fjórir eiga
allir langan feril að baki í djass-
tónlist en þetta er í fyrsta sinn
sem Jóhanna spreytir sig á djass-
inum. Á efnisskrá fimmmenning-
anna eru djassperlur og er ætlun-
in að „halda í óvissuferð út á víðar
lendur gömlu meistaranna í leit að
perlum og gulli,“ eins og segir í
fréttatilkynningu.
Djassað á Rosenberg
Jóhanna V. Þórhallsdóttir djassar í fyrsta sinn.
JÓHANNA ÞÓRHALLSDÓTTIR
Lokastígur 19 - 3 herb. - 72.4 fm.
Trausti fasteignasala, trausti@trausti.is,
s.546-5050, Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Opið hús í dag
frá kl. 17:00 – 17:30
Glæsileg efsta hæð á besta
stað í miðbænum, í fallegu
húsi við Lokastíg (við hlið
Skólavörðustígs). Nýlega
tekin öll í gegn. Svalir með
útsýni. Risloft ekki í fermetra
tölu. Mikil lofthæð að hluta.
Íbúðin var að mestu tekin í
gegn og endurnýjuð árið 2007.
Verð: 30.9 millj.
Nánari upplýsingar í síma:
546-5050
OP
IÐ
HÚ
S
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
08
16
0
8/
12
Gildir til 30. september
Lægra
verð
í Lyfju
15%
afsláttur
Nicotinell
Tropical Fruit
204 stk. 4 mg: 7.598 kr.
204 stk. 2 mg: 5.454 kr.
24 stk. 2 mg: 799 kr.
Halla Gunnarsdóttir er kunn af
fyrri störfum sínum sem blaða-
maður og nú sem aðstoðar maður
innanríkisráðherra. Meðfram
blaðamennsku og pólitískum störf-
um hefur hún líka skrifað bækur.
Árið 2007 kom út ljóðabókin Leit-
in að Fjalla-Eyvindi, ári síðar kom
kom út fræðibókin Slæðusvipt-
ingar og árið 2010 skráði hún ævi-
minningar Guðrúnar Ögmunds-
dóttir.
Á dögunum kom út önnur ljóða-
bók Höllu, Tvö jarðar ber. Bókina
tileinkar hún indverskri vinkonu
sinni, Nityu, en ljóðin fjalla flest
um ferðalag þeirra á Íslandi og
Indlandi.
„Þetta er saga af vináttu okkar
Nityu,“ segir Halla. „Við kynnt-
umst í Ástralíu árið 2006 í kjall-
ara í klaustri, þar sem erlendir
námsmenn bjuggu um stundarsak-
ir áður en þeir fundu sér varan-
legra húsnæði. Hún var að fara í
fyrsta sinn að heiman. Við tengd-
umst strax nánum böndum og
urðum góðar vinkonur. Árið 2009
heimsótti ég hana til Indlands og
fyrir tveimur árum kom hún til
Íslands.“
Ljóðin sem fjalla um Ísland lýsa
því hvernig ferðalagið með útlend-
ingnum fær sögumanninn til að
líta eigið land öðrum augum.
„Það gerist eitthvað skrítið
þegar maður ferðast með útlend-
inga um landið,“ segir Halla.
„Þjóðerniskenndin, sem maður
reynir alla jafna að afneita, hrein-
lega át mig. Mig langaði til að sýna
Nityu hvern einasta foss og hverja
þúfu, upplifa þögnina í íslenskri
náttúru og þar fram eftir göt-
unum. Í hennar sporum hefði ég
sjálfsagt fengið nóg af stjórnsem-
inni og spyrnt við fótum, en það
sýnir kannski menningarmuninn;
hún kemur úr stjórnsömu samfé-
lagi.“
Í bókinni er líka alvarlegur und-
irtónn, þar sem yfir vofir að Nitya
þarf bráðum að ganga í hjónaband.
„Hún var orðin 24 ára og fékk
leyfi frá foreldrum sínum til að
sjá heiminn og rasa aðeins út áður
en hún festi ráð sitt.“ Í bókinni er
meðal annars eitt ljóð sem gerist í
indversku brúðkaupi sem Halla fór
í með vinkonu sinni, þar sem brúð-
urin situr skartklædd með „döpur
augu“.
„Þessi veisla gerði það að verk-
um að ég varð mjög taugaóstyrk
yfir tilhugsuninni um að þetta
biði Nityu, að giftast einhverjum
manni sem hún þekkti ekki. Þetta
varð eiginlega enn meira knýj-
andi þegar hún heimsótti mig til
Íslands, því þá lá fyrir bónorð sem
hún þurfti að velta fyrir sér.“
Halla segir það ekki hafa verið
meðvitaða ákvörðun að skrifa
ljóðabók um þessa atburði.
„Það bara gerðist, eins klisju-
lega og það hljómar. Ég sat á tröpp-
unum hjá vinafólki mínu, á leið í
útilegu og fór að melta þetta ferða-
lag. Í kjölfarið komu ljóðin, svo til
í einni bunu, og næsta árið notaði
ég til að vinna meira úr þeim og
snurfusa.“
Halla ætlar að halda áfram að
yrkja og vonar að hún gefi út fleiri
bækur.
„Vinkona mín, sem fór að læra á
harmóníku, sagði að það væri svo
gott því það reyndi á aðrar heila-
stöðvar en hennar daglegu störf.
Fyrir mig er það eins með ljóðin;
ég vinn í pólitísku starfi þar sem
er eilíft at og finn hvernig maður
skiptir um fasa þegar maður skrif-
ar ljóð. Mér leið að minnsta kosti
vel yfir að koma þessu frá mér.“
bergsteinn@frettabladid.is
Ljóð fl akka um lönd
Halla Gunnarsdóttir sendi á dögunum frá sér sína aðra ljóðabók, Tvö jarðar ber. Ljóðin eru öll innblásin af
ferðalögum Höllu og indverskrar vinkonu hennar.
HALLA GUNNARSDÓTTIR Tileinkar vinkonu sinni Nityu frá Indlandi bókina. Á fer-
ðalögum þeirra vofði yfir að senn biði Nityu það hlutskipti að ganga í hjónarband
með manni sem hún þekkti ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2013
Félagsvist
20.00 Félagsvist verður spiluð hjá
Félagi eldri borgara að Stangarhyl 4 í
Reykjavík.
Kvikmyndir
16.00 Konfúsíusarstofnunin sýnir
kvikmyndina Harðsoðið eftir John Woo
í stofu 101 í Odda Háskóla Íslands.
Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
Tónlist
12.00 Alina Dubik mezzósópran syngur
rússneskar aríur á hádegistónleikum í
Hafnarborg. Tónleikarnir eru styrktir af
Samfélagssjóði Rio Tinto Alcan og eru
þeir öllum opnir.
20.30 Söngkonan Kristjana Stefáns-
dóttir og píanóleikarinn Karl Olgeirsson
flytja tónlist á næsta djasskvöldi KEX
Hostels, Skúlagötu 28. Aðgangur er
ókeypis.
21.00 Jóhanna Þórhallsdóttir og djass-
tríó hennar skemmta á Café Rosenberg.
Fyrirlestrar
12.00 Ágúst Ó. Georgsson fagstjóri
Þjóðháttasafns Þjóðminjasafns Íslands
heldur fyrirlestur um Septemborgu
Gunnlaugsdóttur frá Bjarneyjum.
Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafnsins og er öllum opinn
og ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Ég kann ekki orðið
yfir stuðlaberg
á ensku
og ekki man ég hvernig það
myndaðist.
Það er jafn fallegt hvort eð er
og ég verð dáleidd
af að horfa á hana
dáleidda
yfir enn einum fossinum
heilluð
vanmáttug
og mér finnst
sem hún spyrji
hann svara.
Úr bókinni Tvö jarðar ber
Save the Children á Íslandi