Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.02.2013, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 05.02.2013, Qupperneq 38
5. febrúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 30 „Ég er að lesa þriðju bókina í Game of Thrones-seríunni eftir George R. R. Martin. Þetta eru virkilega flottar bækur.“ Helgi Pjetur Jóhannsson, einn af eigendum Stokks Software. BÓKIN „Það er búið að standa til lengi að gera plötu með lögum Hauks Morthens,“ segir tónlistarmað- urinn Helgi Björnsson sem hélt til Berlínar í gær til að undirbúa tökur á nýrri plötu sem verður til heiðurs Hauki Morthens. Helgi tekur upp plötuna í Berl- ín í mars en hann hefur fengið til liðs við sig þýsku sveitina The Capital Dans Orchestra. Sveit- in er skipuð 14 manns og fræg í heimalandi sínu fyrir samstarf við þýskar stjörnur eins og Ninu Hagen. „Ég hef áður sungið með þeim og langaði að gera eitthvað meira. Þetta smellpassaði svo allt núna með tímasetningar en þeir koma með þennan gamal- dags hljóm sem einkennir tónlist Hauks,“ segir Helgi sem hlakkar til að hefjast handa. Upptökur fara fram í hinu forn- fræga stúdíói Hansa Tonstudio en þar hafa David Bowie og U2 meðal annars tekið upp plötur. „Það er svakalegur hljómur í upp- tökuherberginu þarna og ég á von á miklu stuði hjá okkur á meðan tökur fara fram.“ Undanfarið hefur sveitaróm- antíkin átt hug Helga sem hefur slegið í gegn ásamt Reiðmönnum vindanna með plötunum Ríðum sem fjandinn, Þú komst í hlaðið og Heim í heiðardalinn. Með þess- ari plötu kveður því við nýjan tón en stefnt er á að hún komi út um mánaðamótin maí og júní. Helgi er mikill aðdáandi Hauks Mort- hens og var með tónleikaröð honum til heiðurs árið 2010. „Ég var hvattur til að ráðast í gerð þessarar plötu og hlakka til að hefjast handa.“ - áp Helgi heiðrar Hauk Morthens Hélt til Berlínar í gær til að taka upp nýja plötu í Hansa Tonstudio. GERIR NÝJA PLÖTU Helgi Björns heldur til Berlínar og tekur upp plötu með lögum Hauks Morthens ásamt þýsku hljómsveitinni The Capital Dans Orchestra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Það er mikið lagt upp úr útlitinu á staðnum, hljóm- burðinum og allri aðstöðu fyrir tónleika- og við- burðahald,“ segir skemmtistaðaeigandinn Steindór Grétar Jónsson. Steindór er einn eigenda nýs skemmtistaðar sem ber nafnið Volta og verður opnaður um næstu helgi. Sömu aðilar standa að baki Volta og staðar- ins Harlem sem var opnaður um miðjan desember. „Þó sömu eigendur séu að stöðunum þá eru þeir samt alveg ótengdir og gjörólíkir,“ segir Steindór. Volta verður til húsa að Tryggvagötu 22 og verður á tveimur hæðum. Hann nær yfir aftari hluta þess svæðis sem áður var Þýski barinn auk neðri hæðar- innar og kemur hann til með að taka um 300 gesti. Opnunarhátíð verður á Volta alla helgina. Hún hefst með tónleikahaldi á föstudagskvöldið þar sem hljómsveitirnar Hjaltalín, Ojba Rasta, Bloodgroup og Sóley stíga á svið. Á laugardaginn verður síðan klúbbstemning þar sem breski plötusnúðurinn Tim Green þeytir skífum, auk tvíeykisins Gluteus Max- imus og DJ Yamaho. „Við viljum skapa þarna klúbb- stemningu að evrópskri fyrirmynd og til þess verð- um við meðal annars með heimsklassa hljóðkerfi og metnaðarfulla lýsingu,“ segir Steindór. Aðgangs- eyrir er kr. 2.000 á föstudag og 1.000 á laugardag og miðar aðeins seldir við innganginn. - trs Nýr 300 manna tónleikastaður Skemmtistaðnum Volta er ætlað að skapa umgjörð fyrir viðburði og tónleika. OPNUNARHÁTÍÐ Hjaltalín, Ojba Rasta, Bloodgroup og Sóley spila á opnunarkvöldi Volta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Dagskrá: Skúli Helgason, alþingismaður Allir stundi nám og vinnu við sitt hæfi. Kynning á skýrslu starfshóps. Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins Bilið sem þarf að brúa. Iðunn Kjartansdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Iðunni Hvað hefur áhrif á námsval iðn- og verknáms- nemenda? Heiður Agnes Björnsdóttir, Cand Oecon, MBA Aðferðafræði og framkvæmd markaðssetningar iðn-, verk- og tæknináms. Einar Ben, MA í almannatengslum Samfélagsmiðlar - nýjungar í notkun og fræðslu. Umræður í hópum Ráðstefnustjóri: Baldur Gíslason, stjórnar- formaður Iðnmenntar og skólameistari Tækni- skólans Skráning á skrifstofu Iðnmenntar, í síma 517-7200 eða á netfanginu heidar@idnu.is. iðn-, verk- og tæknináms Markaðs- setning Ráðstefna IÐNMENNTAR 2013 Hilton Reykjavík Nordica 8. feb. kl. 13:00 „Þetta hlýtur að vera tilviljun en þetta er samt mjög dularfullt,“ segir Eurovision-farinn og Dalvík- ingurinn Matti Matt, inntur eftir svörum við því hvað geri Dalvík- inga svo farsæla í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Frá því Ísland tók fyrst þátt í Eurovision árið 1986 hafa 32 flytj- endur farið utan fyrir okkar hönd. Þegar Eyþór Ingi sigraði undan- keppnina hér heima síðastliðið laugardagskvöld varð hann fimmti Dalvíkingurinn til að standa í þeim sporum, séu talin með þau Pálmi Gunnarsson og Hera Björk sem bæði bjuggu í bænum um tíma. Eyþór Ingi, Matti Matt og Friðrik Ómar eru svo allir aldir upp á Dalvík. „Það hefur alltaf verið mikil stemning fyrir keppn- inni í bænum, rétt eins og ann- ars staðar á landinu, en Dalvík er enginn sérstakur Euro-bær,“ segir Matti. „Kaldi ætti kannski að íhuga að búa til sérstakan Euro- vision-bjór því ég held að hann sé það eina sem við höfum verið að drekka annað en fólk annars stað- ar á landinu,“ bætir hann við hlæj- andi, spurður hvað sé í vatninu á Dalvík. Hann segist þess fullviss að Dalvíkingar eigi enn nóg inni og er sannfærður um að fleiri Euro- vision-farar eigi eftir að koma frá bænum. „Mér detta strax í hug þrír sem koma vel til greina, en þeir eru pottþétt fleiri. Það er svo ótrúlega mikið af góðu söngfólki þarna,“ segir hann. Tæplega 1.900 manns búa á Dalvík og því ágætis hlutfall sem hefur sigrað íslensku undankeppn- ina. „Þetta er svona álíka og ef þessir fimm flytjendur kæmu úr löngu blokkinni í Fellunum í Breið- holtinu, það búa álíka margir þar og á Dalvík. Geri aðrir betur,“ segir Matti. Hann studdi Eyþór Inga að sjálf- sögðu síðasta laugardagskvöld. Eurovision-stjörnur framleiddar á Dalvík Fimm Eurovision-fl ytjendur Íslendinga hafa alist upp eða búið á Dalvík. HJARTAÐ SLÆR Á DALVÍK Dalvíkingar hafa séð landsmönnum fyrir fimm Eurovision-þátttakendum hingað til og segir Matti þá enn eiga nóg inni. ➜ Hera Björk bjó að vísu aðeins á Dalvík í tvö ár en sé hún talin með hafa fjórir Dalvíkingar keppt fyrir Íslands hönd á síðustu fimm árum og allir komist upp úr undanúrslitunum. ➜ Pálmi Gunnarsson keppti fyrstur Dalvíkinga í fyrsta skipti sem Ísland keppti í Eurovision árið 1986. Þá flutti hann hinn ódauðlega Gleðibanka, ásamt Eiríki Haukssyni og Helgu Möller, og eins og frægt er lentu þau í 16. sætinu. ➜ Friðrik Ómar Hjörleifsson fór til Serbíu með Regínu Ósk og Euroband- inu árið 2008. Þau fluttu lagið This Is My Life og enduðu í fjórtánda sæti. ➜ Hera Björk lenti í 19.sæti í Ósló árið 2010 með lagið Je ne sais quoi. ➜ Matti Matt var hluti af hópnum Vinir Sjonna sem fóru til Düsseldorf árið 2011. Þeir höfnuðu í 20. sæti með lagið Coming Home. Fjórir Dalvíkingar á síðustu fimm árum „Hjartað slær auðvitað alltaf með Dalvíkingum. Í þokkabót er Eyþór góður vinur minn og Pétur Örn einn af mínum albestu vinum, svo það var fagnað vel og innilega þegar lagið þeirra sigraði. Sjö ára sonur minn orðaði þetta best þegar hann sagðist vera kominn með svima, hann væri svo glaður.“ tinnaros@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.