Fréttablaðið - 11.02.2013, Blaðsíða 8
11. febrúar 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Sagan um vöxt og velgengni CCP
Miðvikudaginn 13. febrúar nk. kl. 12.00
í stofu 132 í Öskju, náttúru fræða húsi Háskóla Íslands.
Hilmar Veigar Pétursson, fram kvæmda stjóri tölvu leikja fyrir tæk is ins CCP,
fjallar um sögu þess og hraðan vöxt í þriðja erindi fyrir lestra rað ar innar
Fyrirtæki verður til.
CCP var stofnað árið 1997 og er líklega þekkt ast fyrir fjöl spilunar net leik inn
EVE Online sem hóf göngu sína árið 2003.
CCP hefur vax ið á undra verð um hraða og nú starfa rúm lega 500 manns hjá
fyrir tæk inu, þar af um 300 í höfuð stöðv un um á Íslandi. Auk þess hefur fyrir-
tæk ið starfs stöðvar í Atlanta, Newcastle, San Fransisco og Shanghai.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Veruleiki sýndarveruleikans
www.hi.is
– FYRIRTÆKI VERÐUR TIL –
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
03
92
Fjöldi númerslausra bíla er íbúum
fjölbýlishúsa við Írabakka 2 til 34
þyrnir í augum. Íbúi sem samband
hafði við blaðið segir ekkert gerast
þrátt fyrir ítrekaða eftirgrennslan
hjá borgaryfirvöldum og lögreglu.
Bílarnir hafi flestir verið óhreyfð-
ir í stæðum fjölbýlishúsanna síðan
í nóvember síðastliðnum og á þá
hefur verið límdur viðvörunarmiði
frá lögreglu.
Eftirgrennslan blaðsins leiddi í
ljós að ekki færri en tíu númerslaus-
ir bílar standa í stæðum við fjöl-
býlishúsið. Íbúi segir málið baga-
legt því bílastæðaskortur valdi því
að farlama fólk og aðrir sem erfitt
eigi um gang fái ekki stæði nálægt
upphituðum stéttum við blokkirnar.
Á stæðunum myndist svellbunkar
sem geti verið afar varasamir.
Samkvæmt upplýsingum frá
dráttarbílaþjónustu Vöku eru bílar
fjarlægðir eftir ákveðnu verklagi í
samvinnu við borgaryfirvöld. Eig-
endur þeirra fá síðan reikninginn
fyrir dráttinn.
Rósa Magnúsdóttir hjá heil-
brigðis eftirliti borgar innar segir
að hafi starfsmenn borgarinnar
sett miða á bílhræ séu eigendum
alla jafna gefnir tíu dagar til að
fjarlægja bílinn. Hún geti hins
vegar ekki svarað fyrir verklag lög-
reglu og þekki ekki reglur hennar
um drátt bíla sem fengið hafi við-
vörun. Heilbrigðis eftirlitið bregðist
við umkvörtunum húsfélaga vegna
númerslausra bíla.
- óká
Númerslausir bílar
hrannast upp
ÁN NÚMERA Tíu númerslausir bílar taka stæði frá íbúum fjölbýlishúsa við Írabakka
í Breiðholti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MERKTUR Límmiðar lögreglu eru á bíl-
unum, sem staðið hafa óhreyfðir mán-
uðum saman. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sendið okkur myndir og upplýsingar um sóða-
skap, hirðuleysi, slysagildrur og fl eira á
póstfangið: thremillinn@frettabladid.is
HVER
ÞREMILLINN!
NETÖRYGGI Bandaríska fyrirtækið Raytheon
hefur hannað leitarvél sem þefar uppi upplýs-
ingar um einstaklinga á samskiptasíðum á borð
við Facebook og Twitter.
Fyrirtækið, sem framleiðir vopn og tekur að
sér verk á sviði öryggisþjónustu og hernaðar,
hefur enn ekki selt neinum þennan hugbúnað.
Breska dagblaðið Guardian hefur hins vegar
komist yfir myndband sem lýsir því hvernig
leitar vélin virkar. Leitarvélin heitir RIOT,
sem stendur fyrir Rapid Information Overlay
Technology. Með henni er auðveldlega hægt að
ná í allar upplýsingar sem einstaklingar hafa
sett inn á samskiptasíður sínar.
Þannig er hægt að fá býsna skýra heildar-
mynd af viðkomandi einstaklingi, til dæmis
hverja hann umgengst, hvaða áhugamál hann
hefur og hvert hann er vanur að ferðast. Allt
þetta er hægt að staðsetja á korti með fáein-
um músarsmellum og fá upp myndir af viðkom-
andi, vinum hans og stöðunum sem hann hefur
komið til.
Í myndbandinu er tekið dæmi af einum
starfsmanni fyrirtækisins, sem heitir Nick, og
sýnt hve auðvelt er að finna út að miklar líkur
séu á því að hitta á hann á tiltekinni líkams-
ræktarstöð klukkan sex að morgni flesta daga
vikunnar. - gb
Bandaríska vopnafyrirtækið Raytheon hefur þróað nýstárlegu leitarvélina RIOT:
Njósnað um einstaklinga á samskiptasíðum
MEÐ FORSET-
ANUM Edward
Campbell, fram-
kvæmdastjóri
Raytheon, tók í
síðustu viku við
orðu úr hendi
Bandaríkja-
forseta fyrir
framlag sitt til
tækninýjunga.
NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL Alþjóðlega mats-
fyrirtækið Moody‘s hefur breytt
horfum á lánshæfismati ríkis-
sjóðs úr neikvæðum í stöðugar.
Byggir ákvörðunin á því að sú
áhætta sem fólst í dómsmálinu
um Icesave-deiluna sé fyrir bí.
Er langtímalánshæfiseinkunn
Íslands nú í lægsta fjárfestingar-
flokki með stöðugar horfur hjá
þeim öllum. Þá kemur fram í
tilkynningu Moody´s að önnur
þróun í efnahagslífi Íslands hafi
verið jákvæð síðasta árið. - mþl
Matsfyrirtækin samhljóða:
Lánshæfismat
Íslands batnar