Fréttablaðið - 11.02.2013, Blaðsíða 10
11. febrúar 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
HYUNDAI IX35
Nýskr. 05/12, ekinn 21 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.890 þús.
Rnr.120115.
Frábært úrval af nýlegum, lítið
eknum bílum á frábæru verði!
Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
NISSAN X-TRAIL
Nýskr. 06/11, ekinn 33 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.990 þús.
Rnr.141351.
MAZDA CX7
Nýskr. 10/07, ekinn 68 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 3.390.000
Rnr.151716
TOYOTA AVENSIS SOL
Nýskr. 07/11, ekinn 11 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.490 þús.
Rnr.-190612.
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 05/12, ekinn 22 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 7.690 þús.
Rnr.-151698.
NISSAN QASHQAI+2 - 7 manna
Nýskr. 06/11, ekinn 34 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð kr. 4.590 þús.
Rnr.151561.
MMC PAJERO INSTYLE
Nýskr. 08/07, ekinn 62 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.790 þús.
Rnr.141379.
TILBOÐSVERÐ
2.790 þús.
Gerðu frábær kauphjá Bílalandi BL
Gott úrval
af 4x4 bílum
Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði!
ALMENNINGSÍÞRÓTTIR Iljanudd
og herðanudd verður í boði í fjöl-
skylduvænni samstæðu heitra
potta sem fyrirhuguð er í Vestur-
bæjarlauginni í Reykjavík.
Að því er segir í umsögn
starfshóps er pottur inn hluti
af átaksverkefni í sundlaugum
borgarinnar og á potturinn að taka
„mið af því að fólk njóti samræðu
í minni hópum og þurfi ekki að
ávarpa alla pottverja sam tímis“.
Því verði potturinn nokkuð stór
með minni svæðum sem sum verði
sérstaklega barnvæn.
Nánar segir um þetta nýja
mannvirki að í því verði vað-
pottur með leiktækjum fyrir börn
auk nuddpotts og hvíldarpotts. Á
milli nudd- og hvíldar pottanna
er komið fyrir herðanuddi. Ilja-
nuddið er í nuddpottinum. Þá á
vatnsyfirborð pottanna að vera
um 45 sentímetrum yfir laugar-
bakkanum til að auðvelda aðgengi
fatlaðra og rýma til á sundlaugar-
svæðinu til að sólar njóti sem
best.
Gróf kostnaðaráætlun fram-
kvæmdarinnar er 115 milljónir
króna. - gar
Ilja- og herðanudd í nýjum 115 milljóna króna risapotti í Vesturbæjarlaug:
Þurfi ekki að ávarpa heilan pott
SVÍÞJÓÐ Fresta þurfti aðgerðum á
Karolinska sjúkrahúsinu í Stokk-
hólmi í Solna og Huddinge í byrjun
febrúar vegna skorts á hjúkrunar-
fræðingum samtímis því sem fjöldi
sjúklinga með inflúensu og aðra
smitsjúkdóma var lagður inn. Fram
kemur í sænskum fjölmiðlum að
fresta hafi þurft aðgerðum á tveim-
ur öðrum sjúkrahúsum í Stokkhólmi
síðastliðið haust og senda hafi þurft
sjúklinga fyrr heim en undir eðli-
legum kringumstæðum.
Á fréttavef Svenska Dagbladet
er haft eftir formanni læknafélags-
ins í Stokkhólmi, Thomas Flodin, að
almennt sé skortur á leguplássum á
sjúkrahúsunum í Stokkhólmi. Sví-
þjóð sé það vestræna ríki þar sem
fæst legupláss séu á hverja 1.000
íbúa. Það er mat Flodins að 400
legupláss til viðbótar séu nauðsyn-
leg til þess að þjónustan verði góð.
Læknafélagið í Stokkhólmi er ekki
sátt við að pláss í nýrri byggingu
Karolinska í Solna verði færri en í
þeirri byggingu þar sem starfsemin
er nú. - ibs
Skortur á leguplássum á stórum sjúkrahúsum í Stokkhólmi:
Þurftu að fresta aðgerðum
AÐGERÐ Gert er ráð fyrir að á næstu
árum fjölgi leguplássum í Stokkhólmi.
Þó fjölgar íbúum einnig, sem kallar á
fleiri legupláss. NORDICPHOTOS/AFP
FJÖLSKYLDUPOTTURINN Nýr
heitur pottur í Vesturbæjarlaug er
hluti átaksverkefnis áranna 2012 til
2014. Potturinn er til vinstri á teikn-
ingunni. MYND/REYKJAVÍKURBORG