Fjarðarpósturinn - 27.10.1983, Page 12
12
FJARÐARPÓSTURINN
—ÍÞRÓTTIR—ÍÞRÓTTIR—ÍÞRÓTTIR—
Góður sigur FH
gegn íslandsmeisturum víkings
FH-ingar unnu góðan sigur á íslandsmeisturum Víkings á dögunum. í
umfjöllun um leikinn var það samdóma álit íþróttafréttamanna dag-
blaðanna að FH ætti besta handknattleikslið íslands í dag. Þá fengu ein-
stakir leikmenn mikið hrós, einkum Kristján Arason, Sverrir markvörður
Kristinsson og Pálmi Jónsson, sem á myndinni hér að ofan sést skora eitt
af 7 mörkum sínum í leiknum.
Næstu leikir FH eru gegn KR í Laugardalshöll 1. nóvember, gegn KA
í Hafnarfirði 5. nóvember og gegn Val 9. nóvember, einnig í Firðinum.
Haukar, sem komnir eru með 3 stig eftir jafntefli gegn KA fyrir norðan,
leika næst 4. nóvember þýðingarmikinn heimaleik gegn Stjörnunni.
Hljómsveitin UPPLYFTING leikur
fyrir dansi.
Föstudagskvöld kl. 22.00 - 03.00
Laugardagskvöld kl. 22.00 - 03.00
Sunnudagskvöld kl. 21.00 - 01.00
Djasshljómsveit Guömundar
Ingólfssonar leikur. Söngkona
Olivetta Stefánsdóttir.
Snyrtilegur klæðnaður
Minnum á hinn frábæra smárétta-
matseðil
Nýtt íþróttafélag í Hafnarfirði:
íþróttafélag Hafnarfjarðar
Nýstofnað íþróttafélag, íþrótta-
félag Hafnarfjarðar hefur ritað
íþróttaráði bréf og óskað eftir fjár-
stuðningi vegna starfsemi sinnar.
íþróttafélag Hafnarfjarðar er
ekki enn orðið fullgilt félag innan
ÍBH og nýtur þar með ekki úthlut-
unartíma í íþróttahúsum bæjarins.
Leigir félagið aðstöðu í íþróttahúsi
Gerplu í Kópavogi og segja for-
svarsmenn félagsins það kostn-
aðarsamt.
Iþróttaráð hefur hafnað beiðni
félagsins um fjárstuðning þar sem
það er ekki enn fullgilt innan ÍBH.
Fjarðarpóstinum lék forvitni á
að vita hverjir væru forsvarsmenn
þessa nýja félags. Skv. upplýsing-
um íþróttafulltrúa lá það ekki fyrir
á fundi íþróttaráðs hverjir það
væru sem að félaginu stæðu, þær
upplýsingar lægju hjá ÍBH. Aftur á
móti gat íþróttafulltrúi þess, að tvö
önnur félög hefðu óskað eftir aðild
að ÍBH, íþróttafélagið Vörður og
Knattspyrnufélag Hafnarfjarðar.
Öll þessi þrjú félög hafa sótt um
aðild að ÍBH, en skv. starfsreglum
þess verða þau ekki fullgild fyrr en
6 mánuðum eftir að bandalagsþing
ÍBH hefur samþykkt aðild félag-
anna. Það er því ljóst, að innan
skamms brennur það á stjórn ÍBH
að úthluta afmörkuðum tímum í
íþróttahúsum bæjarins til fleiri
félaga en nokkru sinni áður.
Takið
eftir...
MARKAÐSVERÐ
Tilboðs-
verð
Kjúklingar 99.00
Egg 84.00
Svali, 18 í kassa 95.60
Cornflakes, 1000g. 97.80
WC pappír frá
PAPCO, 4 rl. í pk. 43.50
Lambahakk 138.00
Opnunartími frá 1. nóvember:
Mánud. - fimmtud. 9 - 18. Kvöldsalan 18 - 23.30
Föstudaga 9-19. Kvöldsalan 19 - 23.30
Laugardaga 9-12. Kvöldsalan 12 - 23.30
Sunnudaga, kvöldsalan 10 - 23.30
(114.00)
(frjálst)
(106.20)
(115.10)
(52.70)
(152.00)
VERSLIÐ
f HVERFINU
HVAMMSEL
SMÁRABARÐI2
SÍMI54120.