Fjarðarpósturinn - 01.06.1984, Síða 6

Fjarðarpósturinn - 01.06.1984, Síða 6
6 FJARÐARPÓSTURINN Samkvæmt heilbrigðisreglugerð ber umráða- mönnum lóða að halda lóðum sínum hreinum og þrifalegum. Eigendur og umráðamenn eru því hvattir til að flytja af lóðum sínum allt rusl, er veldur óþrifum eða óprýði. Óheimilt er að fleygja hvers kyns rusli á annan stað en sorphauga bæjarins og fara skal eftir fyrirmælum umsjónarmanns. Ennfremur er vakin atygli á að samkvæmt lögreglu- samþykkt er óheimilt að geyma hjólhýsi, báta eða óskrásettar bifreiðar á bifreiðastæðum bæjarins, við götur eða á almannafæri. Heimilt er að fjarlægja slíka hluti á kostnað og ábyrgð eigenda- Heilbrigðisráð FRÁBÆRT VERÐ Matar og kaffistel án fyigihkrta: Verð. 12 m. matar og kaffi, 60 stk., kr. 2.500. 6 m. matar og kaffi, 40 stk., kr. 1.700. Búsáhöld og leikföng Strandgötu 11 - sími 50919 Útsvör — aðstöðugjöld Fimmti og síðasti gjalddagi fyrir- framgreiðslu útsvara og aðstöðugjaida til bæjarsjóðs Hafnarfjarðar 1984 var 1. júní. Áttu þá allir að hafa greitt sem svarar 63% af gjöldum sl. árs. Gjaldendur sem ekki hafa þegar gert skil eru hvattir til að gera full skil nú þegar. Dráttarvextir eru 2,5% fyrir hvern byrjaðan vanskilamánuð Innheimta Hafnarfjarðarbæjar CAFUNN gefur um 150 manns Kirkjukaffi á degi aldraðra Að tilhlutan höfuðstöðva kirkjunnar hefur verið mælst til þess að öldruðum verði tileink- aður ákveðinn kirkjudagur, sem er nýmæli. Af þeim sökum fór fram guð- þjónusta í Hafnarfjarðarkirkju á uppstigningardag. Var mess- an fjölsótt og kirkjan nær full- skipuð. Ekki er vitað að slíkur fjöldi af öldruðum hafi mætt til guðþjónustu á ferli Hafnar- fjarðarkirkju áður. Sóknarnefnd gerði ráðstaf- anir til að flytja fólk frá vistun- arstöðunum Hrafnistu og Sól- vangi og einkaheimilum. Feng- in var rúta á vegum kirkjunnar til þessara flutninga. Þá lögðu Kiwanisfélagar fram aðstoð með þeim hætti að aka fólki sem þess óskaði til kirkjunnar. Þakkar sóknarnefnd þeim þeirra góða og fúsa framlag til þessarar samverustundar. Stærsta framlagið til að gera daginn eftirminnilegan var að veitingahúsið Gaflinn bauð þeim sem gátu komið því við í Kirkjukaffi eftir messu. Munu um 150 manns hafa þegið af- bragð góðar veitingar hjá veit- ingahúsinu. Kvenfélagskonur kirkjunnar aðstoðuðu við veitingarnar. Einnig var rútan í ferðum með fólkið. Ekki er vitað til að nokkru sinni áður hafi veitingahús í Hafnarfirði boðið jafnstórum hópi í kirkjukaffi. Það gefur til kynna að eigendur Gaflsins eru miklir rausnarmenn og auðugir af mannkostum til samtíðar sinnar, ekki síst til þeirra sem hafa lokið starfsdegi og göfugt er að gleðja. Enginn vafi er á því að Ljóss- ins faðir mun skrá þessa vel- gjörð í gjörðabók sína. Þar eru skráðar allar velgjörðir frá jarð- vistardögum manna. Þess vegna munu eigendur Gaflsins eiga dýran sjóð eftir þetta fram- lag vegna dags aldraðra. Sóknarnefnd Hafnarfjarðar- kirkju ber fram sínar dýpstu þakkir til eigenda Gaflsins, með óskum allrar blessunar um gæfu og gengi um langa fram- tíð. Fyrir hönd sóknarnefndar Hafnarfjarðarkirkju Guðm. Guðgeirsson. Sumarfatnaður í úrvali. Töskur og pokar. Hagstætt verð. LÍTIÐ INN PERLAN Strandgötu 9, ^ sími 51511 . V Hjúkrunarfræðingar sjúkraliðar Hjúkrunarheimilið Sólvangur, óskar eftir hjúkrunarfræðingum frá 1. september nk. í eftirtalin störf: 1. Næturvakt — hlutastarf. 2. Kvöldvakt — hlutastarf. Frá sama tíma er óskað eftir sjúkra- liðum til starfa. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 50281. FORSTJÓRI

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.