Fjarðarpósturinn - 01.06.1984, Page 13
FJARÐARPÓSTURINN
13
—ÍÞRÓTTIR—ÍÞRÓTTIR—ÍÞRÓTTIR—
UNGT OG EFNILEGT SUNDFÓLK
Sundmeistaramót Hafnar-
fjarðar fór fram 25. maí sl. í
Sundhöllinni. í mótinu tóku
þátt félagar úr Sundfélagi
Hafnarfjarðar, auk sundfólks
úr Ármanni, KR og Njarðvík-
um. Gestunum var sérstaklega
boðið til keppni í þakklætis-
skyni fyrir að leyfa eldri krökk-
um úr SH að æfa með sér í vet-
ur, en þau hafa ekki fengið
nægan æfingatíma hér. Keppn-
in fór vel fram og var jöfn og
spennandi i mörgum greinum.
Sundmeistarar Hafnarfjarðar
urðu Arnþór Ragnarsson og
Guðrún Helgadóttir. Arnþór
vann einnig titilinn Sundkóngur
Hafnarfjarðar en sunddrottn-
ing varð Lovísa B. Traustadótt-
ir.
Unglingameistaramót Hafn-
arfjarðar fór fram viku áður
(18. maí), þar urðu þátttakend-
ur um 40 talsins, náðu flestir
prýðisárangri og mótið í heild
heppnaðist vel. — Myndirnar
sem fylgja voru teknar við þetta
tækifæri.
Bogi Leiknisson og Anna M.
Vilhjálmsdóttir unnu sveina- og
meyjabikara SH.
Höfum ávallt mikið úrval
af skreytingum
við öll tækifæri.
Einnig mikið úrval
af gjafavöru.
Verið velkomin
BLÓMABÚÐIN
Opið frá kl. 9 • 21 alla daga
Sími 50971
Arnþór Ragnarsson og Harpa Sævarsdóttir unnu pilta- og stúlknabikara
SH. Með þeim á myndinni er formaður Sundfélagsins, Magnús B.
Magnússon.
Nokkrir þátttakendur í unglingameistaramóti SH.
Munið norrænu sundkeppnina
Forystusveit hafnfirskra íþróttafélaga brá sér í sund við upphaf norrænu
sundkeppninnar og synti 200 metrana. Vonandi verður það öðrum bæjar-
búum hvatning til þáttöku í keppninni.
I Ganga- og baðvörður o.fl.
Við Engidalsskóla Hafnarfirði er laust til
umsóknar hlutastarf við ganga- og baðvörslu
o.fl.
Gmsóknarfrestur er til 1. ágúst n.k.
Gpplýsingar gefur skólastjóri í síma
54432.
Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar