Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 01.10.1992, Blaðsíða 2

Fjarðarpósturinn - 01.10.1992, Blaðsíða 2
KOMPAN Lóð undir vörubílastöð Vörubílastöð Hafnarfjarð- ar hefur fengið vilyrði hafn- arstjómar fyrir um 2.500 fermetra lóð við Lónsbraut. Vilyrðið er veitt til reksturs vömbílastöðvar. Vinafélög bókasafna Fræðslunefnd Bókavarð- arfélags íslands hefur leitað eftir 10.000 kr. styrk frá bænum vegna komu banda- rísks fyrirlesara hingað til lands, en sá mun kynna Samtök vinafélaga bóka- safna þar í landi. Bæjarráð samþykkti nýverið að veita umbeðinn styrk. Færeyskir í matarboð Bæjarráð samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag að verða við beiðni handknatt- leiksdeildar FH þess efnis að bjóða til kvöldverðar að loknum leik FH og Kyndils frá Þórshöfn 2. október n.k. Leikurinn er liður í Evrópu- keppni meistaraliða. Bæjar- stjóra var falið að ræða við FH-inga um umfang og fyr- irkomulag boðsins. Rollur úr land- námi Ingólfs Skógræktarfélag íslands kynnti nýverið fyrir bæjar- yfirvöldum samþykkt aðal- fundar félagsins þar sem skorað er á sveitarfélögin að setja reglur, sem hefti lausa- göngu búfjár. Sérstaklega er þetta talið mikilvægt í land- námi Ingólfs. Gegn vegi við Urriöakotsvatn Náttúruvemdarráð beitir sér gegn því að nýr Ofan- byggðavegur verði lagður nálægt Urriðakotsvatni. Ráðið kynnti bæjaryfirvöld- um þessa afstöðu sína ný- verið. Glaðningur vikunnar Eftirtalinn áskrifandi Fjarðarpóstsins fær heimsenda ókeypis 16 tommu pizzu að eigin vali, ásamt einum og hálfum líter af Coke. Gildir til 8. okt. n.k. María Gunnarsdóttir Brattukini^^^H^^ „Hæfir bæjarbúar skyldugir til starfa“ Slökkviliðið í Hafnarfirði gengst fyrir eldvarnarviku dagana 4. til 10. október n.k. Slökkviliðsmenn hafa það að markmiði að heimsækja alla grunnskóla svæðisins og stærri fyrirtæki, sem þess óska. Þeir munu fræða um eldvarnir og reyna með átaki og fræðslu að halda brunatjónum á svæðinu í lágmarki. Þá minna þeir fólk á reykskynjaraogágætiþeirra.Eldvarnarvikunnilýkurlaugardaginn lO.októbern.k.meðOpnuhúsiáslökkvistöðinni.Þágefstalmenningi tækifæri á að skoða búnað slökkviliðsins frá kl. 13 til 16. Slökkvihð var stofnað t Hafn- arfirði þann 9. júlí 1909. Þá voru allir bæjarbúar, sem til þess voru álitnir hæfir, skyldugir til að vera í slökkviliðinu. Ef eldsvoði varð, bar þeim að koma á vettvang og hlýða skipunum yfirmanns slökkviliðsins. Verkefni slökkviliðsins var þá ekki eingöngu að slökkva elda, heldur ekki síður að koma í veg fyrir að elduryrði laus og ylli tjóni, alveg eins og gildir í dag. A ár- unum 1931-1932 eignaðist Slökkvilið Hafnarfjarðar sínar Árleg perusala Lions u fyrstu vélknúnu dælur, en fram til þess tíma var vatnið handlangað í strigaskjólum að handpumpum og dælt um grannar slöngur stutta leið. Fastar vaktir hófust á slökkvi- stöðinni 1. desember 1952 og var þá einn á hverri vakt. 1973 var fjölgað og eftir það tveir á vakt. 1974 var enn fjölgað, eftir að sjúkrabíll koma á stöðina og voru þá þrír á vakt í einu, auk þess einn ábakvakt. 1987varfjölgaðumtvo á hverri vakt, þannig að ávallt eru fimm á vakt í einu. I dag eru 23 helgina: fastir starfsmenn á slökkvistöðinni. Vaktimar eru fjórar. Yfirmenn eru slökkviliðsstóri og varaslökkvi- liðsstjóri. Auk þess starfar þar eldvamareftirlitsmaður. Tækjakostur Slökkviliðsins er eftirtalinn:SH#3MAN 12.196árg. 1986. Fyrsti bíll með mannskaps- húsi. Dæluafköst 3.000 ltr/mín. Þessi bíll er einnig tækjabíll slökkviliðsins. SH #5 Ford F 600. árg. 1975. Fjórhjóladrifinn dælu- bfll sem afkastar 2.800 ltr/mín. SH #1 Ford F 600 árg. 1954. Dælubfll sem afkastar 1.900 ltr/mín. SH #6 IH 1700 árg. 1962. Tankbfll með 9.000 ltr. vatnsgeymi og fylgir honum samanbrjótanlegur vatns- tankur og lítil dæla, sem hægt er að bera. Sjúkrabifreiðimar, sem gerðar emútafstöðinni.erutværog íeigu RK-deilda Hafnarfjarðar, Garða- bæjar og Bessastaðahrepps. Allur ágóði til líknarmála Lionsklúbbur Hafnarfjarðar hefðu málefnum klúbbsins góðan firði hafa svo sannarlega unnið gengst fyrir árlegri perusölu skilning í ýmsum styrktarverk- mikiðogfórnfúststörfundanfarin sinni um næstu helgi, 3.-4. efnum. Hann sagði klúbbfélaga ár í bænum. Fjarðarpósturinn október. Allur ágóði af sölunni því enn á ný vænta góðs skilnings hveturbæjarbúa því til að taka vel rennur óskiptur til líknarmála og móttöku um komandi helgi. á móti Lionsmönnum um helg- í Hafnarfirði. Lionsmenn og konur í Hafnar- ina. Starf Lionslúbbs Hafnarfjaðar hefur gengið ágætlega að sögn Baldvins E. Albertssonar, kynn- ingarfulltrúa klúbbsins. Þeir Lionsfélagar hafa m.a. styrkt heimili fyrir þroskahefta í Norð- urbænum. Þá hafa þeir einnig styrkt heimili fyrir vangefna að Klettahrauni 17, Hafnarfirði, og gefið tæki til St. Jósefsspítala. A síðasta starfsvetri gáfu þeir hæg- indastóla til Dvalarheimilis aldr- aðra sjómanna í Hafnafirði, en hér hefur aðeins fátt eitt verið nefnt. Baldvin sagði, að gott líknar- starfklúbbsinsværifyrstogfremst Félagar í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar hafa hér lokið við pökkun á að þakka hjálp bæjarbúa sem sýnt perum og eru til þjónustu reiðubúnir. HÓPUR 23 þýskra gesta frá vinabæ Hafnarfjarðar, Cuxhaven, er staddur í Hafnarfirði þessa vikuna. I hópnum eru 16 kratar, en aðrir eru fulltrúar bæjaryfirvalda í Cuxhaven og atvinnulífsins. Hóp- urinn, nýkominn til landsins, þáði hádegisverðarboð bæjaryfirvalda í A. Hanscn sl. mánudag. Bæjar- stjóri ávarpaði þar gesti á skemmtilegri blöndu af tungumál- um. Grunnurinn var enska en innskot á skandinavísku, og frönsku. Hann bað hópinn hjart- anlega velkominn á skandinavísku „hjertelig velkommen". Bæjar- stjórinn kvaðst síðan vonast til að ferðin til íslands hefði verið á- nægjuleg. Par skaut hann inn frönsku og sagði: „I hope you had Bon voyage“. „Bon voyage" þýðir, eins og margir vita: Góða ferð. - Kannski verður einnig að finna þýsk innskot í ræðu bæjarstjórans, þegar hann kveður hópinn í viku- lokin. TALANDI UM Þjóðvcrjana, þá vakti áhugi þýska sendiherrans á tækjum, snúrum og tólum athygli gesta í Hafnarborg á þriðjudags- kvöld. Sendiherrann sá sjálfur til þess meðmiklu fiktiviðhljóðnema og snúrur að ekkert heyrðist af því sem hann sagði. - Kannski góð að- ferð til að losna við að semja ræður og þess háttar. ÞESSI SAMI sendiherra vakti mikla stemmningu í húsi Skóg- ræktarfélagsins við Hvaleyrarvatn fyrr um daginn. Húsið er revndar mjög svo heimilislegur sumarbú- staður og stendur eitt og afskekkt fyrir ofan Hvaleyrarvatn þar sem skógræktarmenn una sér vel við störf sín. Sendiherrann kom sem sagt inn í húsið, þar sem fullt var af gestum fyrir, bæði þýskuin og framámön- num úr bæjarfélaginu. Sendiherr- ann gekk, eins og góðum gesti sæmir, beint til bæjarstjórans, tók í höndina á honum og spurði: Er þetta skrifstofan þín bæjarstjóri? GAFLARIVIKUNNAR: - Myndi eyöa happadrættisvinningi í brons og stein Fullt nafn? Gestur Þorgríms- son. Fæðingardagur? 27. júní 1920. Fæðingarstaður? Laugarnes. Fjölskylduhagir? Kvæntur, fjögur böm. Bifreið? Nissan Sunny. Starf? Myndhöggvari. Fyrri störf? Ritstörf og kennsla. Helsti veikleiki? Á erfitt með að segja nei. Helsti kostur? Bjartsýni. Uppáhaldsmatur? Allur mat- ur. Versti matur sem þú færð? Enginn. Uppáhaldstónlist? Óperur, sérstaklega ef ég skil ekki text- ann. Uppáhaldsíþróttamaður? Sigrún Huld. Hvaða stjórnmálamanni hef- ur þú mestar mætur á? Guðrúnu Helgadóttur. Hvert er eftirlætissjónvarps- efniðþitt? Fréttir. Hvaða sjónvarpsefni Finnst þér leiðinlegast? Ástralskir framhaldsþættir. Uppáhalds útvarps- og sjón- varpsmaður? Bjöm Th. Bjömsson. Uppáhaldsleikari? Sigurður Sigurjónsson. Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Babels Gæstebud. Hvað gerir þú í frístundum þínum? Vinn. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Sá sem ég hef síðast dáð. Hvað metur þú mest í fari ann- arra? Gamansemi. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Tillitsleysi. Hvaða persónu langar þig mest að hitta og hvers vegna? Michelangelo, þvíhannhefðigetað sagt mér meira um marmara. Hvaða námsefni líkaði þér verst við í skóla? Bókfærslu. Hvað myndir þú helst vilja í afmælisgjöf? Ferð til Japan. Ef þú ynnir 2 millj. kr. í happa- drætti, hvernig myndir þú verja þeim? Eyða í brons og stein. Ef þú gætir orðið ósýnilegur, hvar myndir þú helst vilja vera? Sýnilegur heima hjá mér. Ef þú værir í spurningakeppni, hvaða sérsvið myndir þú velja þér? Grjót. Hvað veitir þér mesta afslöpp- un? Leggja mig eftir matinn. Hvað myndir þú gera, ef þú værir bæjarstjóriíeinndag?Haldaáfram að hlúa að listum. Uppáhalds Hafnarfjarðar- brandarinn þinn? Kann engann. 2

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.