Fjarðarpósturinn - 30.10.2003, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is
Fimmtudagur 30. október 2003
Útgefandi: Keilir ehf.
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Umbrot: Hönnunarhúsið, umbrot@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: íslandspóstur
ISSN 1670-4169
www.fjardarposturinn.is
^ -'W. Það eru margir sem segja okkur Hafnfirðinga
§\ vera sjáifum okkur versta. Við erum svo ákafir
Hf ' « að fá nýja þjónustuaðila og fyrirtæki í bæinn að
i' við gleymum þeim sem íyrir eru. Hér í bæ er
~ jUÉðH hægt að fá næstum hvaða þjónustu sem er og það
■ hlýtur að vera áhugavert og hagkvæmt fyrir
bæjarbúa að leita þangað eftir þjónustu áður en
BHKSÍI annað er leitað. Nokkrir viðmælendur mínir í
atvinnurekstri hafa sagt mér að miklu betra sé að vera annars staðar
þar sem erfitt sé að fá jafnvel bæjarstofnanir að versla við fyrirtæki
í Hafnarfirði. Sem betur fer eru svo til aðrar sögur þar sem
forsvarsmenn fyrirtækja bera lof á það að vera hér í Hafnarfirði.
En það er umhugsunarefni ef fyrirtæki sem veita góða þjónustu á
góðu verði finna sig afskipt hér í bæ af opinberum aðilum. Nokkur
fyrirtæki hafa flutt úr bænum vegna þess að þau fengu ekki nægi-
legar fyrirgreiðslur í lóðamálum og það er auðvitað með eindæmum
að fyrirtæki eins og Góa þurfi að fara í nágrannasveitarfélagið og
það á lóð sem Hafnarfjarðarbær átti. Eg hef að vísu áður bent á að
þegar ósk kom frá lóðareiganda í Garðabæ að fá smá spildu úr landi
bæjarins þá væri kjörið tækifæri í að skipta á því landi og nýrri lóð
Góu til að halda þessu öfluga fyrirtæki í bænum.
Mikilvægt er að Hafnarfjarðarbær geri langtímaskipulag fyrir
iðnaðar- og þjónustuhúsnæði í Hafnarfirði svo menn sofi ekki yfir
sig eins og í síðasta góðæri og fjöldi íbúða í iðnaðarhúsnæði í bæn-
um er undarlegt merki um skort á húsnæði fyrir iðnað og þjónustu.
Guðni Gíslason
Málsháttur vikunnar
Þegar neyðin er stœrst er hjálpin fjœrst.
Víðistaðakirkja
Allra heilagra messa 2. nóvember:
Barnaguðsþjónusta kl. 11
Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna
Guösþjónusta kl. 14
Látinna minnst.
Kór Víöistaðasóknar syngur
Sálumessu eftir Schubert
í þýðingu sr. Braga J. Ingibergssonar
Organisti: Úlrik Ólason
Einsöngur: Sigurður Skagfjörð
----------------
Kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12,
súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Sóknarprestur
www.vidistadakirkja.is
✓
„Crazy-A barmi örvæntingar“ í dag
f dag kl. 12, verða haldnir hádegistónleikar í Hafnarborgog syngur
Kristín R. Sigurðardóttir sópran við undirleik Antoníu Hevasi
píanóleikara. Tónleikamir voru ranglega kynntir fyrir viku en em í
dag og kaffistofa Hafnarborgar er opin á eftir en tónleikamir em í
u.þ.b. 15 mínútur.
Basar og kaffisali á Sólvangi
Síðasta freisting Krists í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvikmyndasafn íslands mynd Martin
Scorsese, Síðasta freisúng Krists ffá árinu 1988. Myndin var afar
umdeild á sínum tíma. Hún er byggð á skáldsögu Nikos Kazantzakis
og segir frá trésmiðnum Jesú ffá Nazaret sem reynir að finna út til
hvers guð ætlast af honum. Hann er ofsóttur af ámm og púkum og
eigin sektarkennd yfir að hafa smíðað krossa fyrir Rómveijana. Jesú
er kominn nálægt markmiði sínu þegar hann verður að takast á við
erfiðustu ffeistingu hvers heilbrigðs karlmanns.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður mynd Hrafns Gunnlaugssonar,
Hrafninn flýgur ffá árinu 1984. Söguþráðurinn byggir á þema
Islendingasagnanna, hefndinni. Norskir víkingar ráðast á fjölskyldu á
Irlandi, drepa hjónin, ræna dótturinni en sonurinn kemst af.
Víkingamir sigla við svo búið til Islands. Tuttugu ámm síðar kemur
sonurinn Gestur til landsins að leita hefnda.
Jafnlfamt vekur safnið athygli á efnistökum sem tengja saman
Hrafninn, Hnefafylli af dollurum (Leone) og Lífvörðinn (Kurusawa)
sem verða á dagskrá síðar í vetur.
„Hafið“ í Hafnarborg
Samsíning Johns Th. Josefsen og Jóns Baldurs Híðberg verður opnuð
í aðalsal Hafnarborgar á laugardaginn kl. 15 og neffiist sýningin
Hafið en Jón sýnir Vatnslitamyndir en John sýnir skúlptúr og
keramik.
Á sama tíma verður opnuð í Sverrissal og í Apótekinu síðari hluti
afmælissýningar Hafnarborgar þar sem áhersla verður lögð á verk úr
listaverkagjöf Sverris og Ingibjargar.
Hinn árlegi basar og kaffisala verður á Sólvangi á laugardaginn
kl. 14. Þar verða fjölmargir fallegir munir sem lúnar hendur hafa
unnið og margt nýtt að sjá. Til sölu verður kaffi sem kostar 400 kr.
fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir böm og rennur allur ágóði til vinnu-
stofu Sólvangs.
Listamaðurinn Pétur Gautur verður með málverkasýningu.
ðll grenitré úðuð
Hafnarfjarðarbær reynir að verjast lúsinni
Nýverið hefur Hafnarfjarðarbær látið eitra öll grenitré bæjarins svo
að þau lendi ekki jafn illa í lúsinni og síðasta vetur en þá skemmdust
mörg falleg og stór grenitré. Að sjálfsögðu voru aðeins úðuð tré í eigu
Hafnarfjarðar og garðeigendur þurfa sjálfir að gera ráðstafanir í sínurn
görðum kjósi þeir það.
Úr íundflrgerðum..
1. Erindisbréf menningar- og
ferðamálanefndar.
Menningar- og ferðamálanefnd
samþykkir erindisbréfið með
tveimur atkvæðum. Fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins leggur fram
bókun:
„Undirrituð telur misráðið af
núverandi meirihluta að sameina
nefndir menningar- og ferðamála.
Málaflokkamir eru viðamiklir og
skipa m.a. æ stærri sess í
atvinnulífi sveitarfélaga. Undirrituð
telur mikla hættu á því að sam-
eining nefndanna, í eina þriggja
manna nefnd, verði til þess að
málaflokkunum verði ekki sinnt
sem skildi - þrátt fyrir allan vilja
nefndarmanna. Þess vegna situr
undirrituð hjá við afgreiðslu
erindisbréfs menningar- og
ferðamálanefndar.“
Valgerður G. Halldórsdóttir
5. Hvaleyrarskóli, leiktæki Mál
nr. BR030447
Lagt fram bréf frá nemendum í
4. HJ í Hvaleyrarskóla ásamt
teikningum barnanna, sem óska
eftir því að fá fleiri leiktæki á
skólalóðina.
Bæjarráð þakkar framlagt bréf
og vísar málinu til Fasteignafélags
Hafnarfjarðar og fjárhagsáætlunar
fyrir árið 2004.
7. Lóðarumsókn Mál nr.
BR030446
Lögð fram umsókn frá Ingvari
og Kristjáni ehf. dags. 21. okt. sl.
um lóð við Herjólfsgötu til að
byggja á henni íbúðir fyrir eldri
borgara.
9. Styrkbeiðnir Mál nr. BR030445
1) Lagt fram bréf frá Lands-
samtökum eldri kylfinga dags. 3.
okt. sl. með beiðni um styrk vegna
móts sem haldið verður á golf-
vellinum á Hvaleyri næsta sumar.
2) Lagt fram bréf frá Al-
næmissamtökunum á íslandi
dags. 9. okt. með beiðni um fjár-
styrk vegna starfseminnar á
næsta ári.
2) Bæjarráð vísar beiðni
Alnæmissamtakanna til fjárhags-
áætlunar fyrir árið 2004.
Æuisögur í
Bókasafninu
Eftir viku, fimmtudaginn 6.
nóvember stendur menningar-
og ferðamálanefnd fyrir upplestri
úr jólabókum klukkan 20 í
Bókasafni Hafnarfjarðar. Sköp-
uð verður kaffihúsa- og kerta-
ljósastemming og lesið upp úr
fjórum spennandi ævisögum sem
koma út fyrir þessi jól, auk þess
sem Ruth Reginalds syngur
nokkur gömul vinsæl lög við
undirleik Magnúsar Kjartansson-
ar. Höfundamir sem lesa upp úr
verkum sínum eru; Hlín Agnars-
dóttir, Þórunn Hrefna Siguijóns-
dóttir, Þráinn Bertelsson og Gísli
Pálsson.
Hafnfirðingum er síðan aftur
boðið á upplestur í Bókasafninu
8. og 13. nóvember þegar lesið
verður upp úr bamabókum ann-
ars vegar og íslenskum skáld-
verkum hins vegar.