Fjarðarpósturinn - 30.10.2003, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is
Fimmtudagur 30. október 2003
(/& laMMM'
afr nmá' I
eiqwMO> puM"
520 7500
Bæjarhrauni 10 • Fax 520 7501
hraunhamar@hraunhamar.is
Aðalskoðun hf.
Helluhrauni 4
sími: 555 33 55
ísnan
GLEROG SPEGLAR
5454300
Hamiðjan
ekkitil
Hafnar-
flarðar
Utséð er með að Hampiðjan
komi með hluta starfsemi
sinnar á nýja hafnarsvæðið í
Hafnarfirði eins og nokkrar
líkur voru á.
Hampiðjan mun flytja alla
starfsemi sína í nýtt húsnæði í
Sundhöfn en áfram verður
töluverð starfsemi erlendis.
Hlýtur þetta að valda von-
brigðum hér í bæ en erfiðlega
hefur gengið að fá hafnsækna
starfsemi á nýja svæðið.
Kaupir
Hafnar-
flarðarbær
slippinnP
Nokkrar líkur em á því að
Hafnarfjarðarbær kaupi slipp-
inn af Vélsmiðju Orms og
Víglundar og skipuleggi þar
íbúðabyggð en þreifingar hafa
verið í gangi um það mál en
hafa strandað á verði sem vél-
smiðjan hefur sett upp en skv.
heimildum blaðsins hefur
mjakast í samkomulagsátt.
Tengt þeim samningi er sam-
komulag um færslu á minni
kvínni út á nýja hafnarsvæðið
en Hafnarfjarðarhöfn þarf að
kosta nokkru til við gerð land-
festinga fyrir kvína.
Telja margir að það yrði
sjónarsviptir fyrir bæinn ef
slippurinn hyrfi og telja að rétt
væri að huga að því að nýta
hann áfram og jafnvel sem
skipasafn þar sem hægt væri að
gera við skip og halda þar
lifandi en snyrtilegri starfsemi.
950 milUóna kr. framkuæmd
Allar útrásir út fyrir stórstraumsfjöru á næsta ári
í framhaldi af fréttum Fjarðar-
póstsins í síðustu viku leitaði
blaðið til Kristins Ó. Magnús-
sonar framkvæmdastjóra Fráveitu
Hafharfjarðar til að fá upplýs-
ingar um hvað gert yrði í fráveitu-
málum bæjarins.
Tvær útrásir
Kristinn sagðist nú vera að
vinna að tillögum að fram-
kvæmdaáætlun sem fæli í sér að
útrásimar í kverkinni við Norður-
garðinn verði tengdar í nýja lögn
út Herjólfsgötu og að Pálshúsum
þar sem ný dælustöð og hreinsi-
stöð verður í sameiginlegri eign
Garðabæjar og Hafharfjarðar og
þaðan yrði lögn lögð um 2 km út
í sjó. Útrásin frá grófhreinsistöð-
inni við Óseyrarbraut verði tengd
út fýrir Hvaleyri eða yfir og í
dælustöð og hreinsistöð í Hrauna-
vrk eða við Straumsvík þar sem
lögn frá nýjustu hverfum bæjarins
yrði einnig tengd í og þar yrði
lögn lögð um 2 km út í sjó.
Hreinsistöðin við Óseyrarbraut
yrði þá sennilega aðeins notuð
sem dælustöð.
Áætlaður kosmaður yrði um
950 milljónir en af þeim fengist
endurgreiddar um 160 millj. frá
ríkinu. Samningum við Garðabæ
hefur ekki verið lokið en vænst er
til að ljúka þeinr í ár eða á næsta
ári.
Bráðabirgðaaðgerðir
Skv. upplýsingum Kristins er
ráðgert að á næsta ári verði reist
dælustöð og neyðarlögn lögð úr
kverkinni við Norðurgarð og út
fyrir stórstraumsfjöru og einnig
yrði lögð bráðabirgðalögn frá
grófhreinsistöðinni og út fyrir
nýja hafhargarðinn. Sagði Krist-
inn að til væri fyrir Jtessum fram-
kvæmdum en einnig væri fyrir-
hugað að leggja nýja lögn í
Vesturgötu vegna væntanlegra
framkvæmda á Norðurbakkan-
um, nýja lögn í Hringbraut auk
stofnlagna á Völlum.
Við þessar ffamkvæmdir ættu
íbúar að losna við rok í lögnunum
sem oft hefur valdið því að vatns-
lásar tæmast.
Taldi Kristinn mögulegt að
hægt væri að ljúka við heildar-
framkvæmdimar á árinu 2005 ef
fjármagn er fyrir hendi en taldi
ekki ólíklegt að Evrópubanda-
lagið lengdi frestinn eitthvað.
QriÁl
Flatahraun 5a - Simi 555 7030
Kaupum
húsbréf
sp»h»
SPARISJÓÐUR
HAFNARFJARÐAR
Sími: 550 2000 www.sph.is
Hjallahrauni 13
565 2525
ekki bara pizzur
Kaffi- og menn-
ingarhús onnað
Ungt fólk fær mjög góða aðstöðu
Gamla bókasafnið var form-
lega opnað sem kaffi- og menn-
ingarhús á fimmtudaginn. Boðið
var uppá kaffi, gos og kleinur en
Geir Bjamason forstöðumaður
flutti ávarp og séra Gunnþór
Ingason blessaði húsið.
Hljómsveitin Úlpa sté á svið
og lék nokkur lög en á meðan
gátu unglingamir setið í sófum
sem em á víð og dreif urn húsið
og hlustað á hljómsveitina eða
horft á sjónvarp sem varpað var
upp á vegg með myndvarpa.
Unglingar geta komið í húsið
til þess að læra, klippa stutt-
myndir, farið á netið eða bara til
þess að slappa af en starfsemin
mun þróast í takti við notkunina.
Ofurlifli borinn
Silja Yr, 13 ára er mjög góður ljósmyndari og tók þessa
skemmtilegu mynd hér að neðan. Gæsimar vom svo sólgnar í brauðið
að þær hópuðust í kringum Hrafnkel Ægi og endaði það með því að
þær rifu kexið úr höndum hans.