FÁ-blaðið - 01.01.1962, Qupperneq 3

FÁ-blaðið - 01.01.1962, Qupperneq 3
Z'--------------------------------------------------- FÁ-BLAÐIÐ er gefiíí út af Félagi áhugaljósmyndara, Reykjavík, pósthólf 1367. I rit- og framkvæmdanefnd eru: Arni H. Bjarnason, Otti Pétursson, Stefán Niknlásson og Ævar Jóhannesson. Blaðið er aðeins fyrir félagsmenn. 1MIF.NTSMIH.IAN IIÓI.AII H-F N____________________________________________________) að jjýða eða nota nýyrði yfir orðmyndir, sem lengi hafa verið þyrnir í augum íslenzku-unnandi manna. Það mun vera umdeilt mál, hve langt eigi að ganga í nýyrðamynd- unum; þetta er því vandasamt verk, sem þýðandinn hef- ur leyst vel af hendi, „farið bil beggja“, eins og hann sjálfur segir. Málið er ekki jjvingað, eins og oft vill verða með nýyrðum. Hjálntar R. Bárðarson á þakkir skilið fyrir þýðingu þessarar ágætu bókar og Setberg s.f. fyrir útgáfuna. Við notum tækifærið og þökkum Hjálmari R. Bárðarsyni fyrir þennan og annan stuðning við íslenzka áhugaljós- myndara. Félagar í F.A.! Sýnum jiakklæti okkar í verki. Búum til fleiri myndir og betri! Á. H. Bj. íliisli sf. Tveir af félögum okkar, þeir Sigmundur Andrésson og Ævar Jóhannesson, hafa stofnað fyrirtæki, er þeir hafa gefið nafnið Geisli s.f. Er markmið jseirra að fram- leiða litskuggamyndir, bíóauglýsingar og aðra lit- myndavinnu. Hafa þeir þegar gefið út eina útgáfu lit- skuggatnynda af Oskjugosinu. Eru það úrvalsmyndir í snyrtilegri möppu. Þessar myndir líkuðu svo vel. að alll upplagið seldist upp á fáeinum dögum. Er það vissulega gleðilegt, þegar félagar okkar skara framúr á sviði ljósmyndatækninnar, en það má segja, að þeir hafa gert, Jjví ýmis efnasambönd, er þeir nota, hafa þeir sjálfir fundið, enda eru litir betri en jjekkist víðast hvar annars staðar. Geri ég ráð fyrir, að þeir félagarnir myndu vera þakk- ^ýélagsmál Nóvemberfundurinn Nóvemberfundur F. Á. var haldinn í Breiðfirðinga- búð, niðri, 27. nóv. s.l. Að loknum venjulegum fundarstörfum tilkynnti for- maður, að erindi það, setn Pétur Thomsen, ljósmyndari, ætlaði að flytja, félli niður vegna veikinda hans. Drap hann síðan á nokkur félagstnál, sem efst eru á baugi, svo sem félagsmerkið, og ítrekaði beiðni til félagsmanna utn tillögur og einnig myndir í væntanlega nýja spjaldskrá félagsins. Þá lagði hann fram nokkur boðsbréf á erlend- ar ljósmyndasýningar, sem Hjálmar R. Bárðarson hafði afhent. Þá gat formaður um ákvörðun stjórnarinnar, að stuðla að stofnun smáklúbba innan félagsins og hét að- stoð Jjess og klúbbsins „íris“ og minntist síðan nokkrum orðum á nýútkomna bók. Ljósmyndabókina, þýdda af Hjálmari R. Bárðarsyni. Síðan var sýnd kvikmyndin Fjölskylda manna, og á eftir var drukkið kaffi. Afhent voru verðlaun fyrir atkvæðaflestu myndirnar á tveimur síðustu fundunum, en jjað hafði dregizt til þessa. Kallaðir voru fratn Haukur Kristófersson, sem átti beztu myndina á septemberfundi og Freddy Laust- sen á októberfundi, og var þeim hvorum afhentur pakki af stækkunarpappír sem viðurkenning. Þar sem Helgi S. Haraldsson var eini þátttakandinn í samkeppnintii „Ljósastaur“, var honum afhent verð- launin, sem veita átti fyrir bezta staurinn, Ljósmynda- bókin, sem Setberg hafði gefið félaginu. Þá stóð upp Hjálmar R. Bárðarson og stofnaði „klúbb“ þar á stundinni. Fékk hann Stefán Nikulásson sér til aðstoðar. Safnaði hann fundarmönnum utan um þá félaga, tók nokkrar myndir, sem næstar voru og tók til við að spjalla um Jjær. Fékk liann fundarmenn til að taka þátt í umræðunum. Varð af Jjessu hinn mesti fróð- leikur og ánægja, enda hlaut Jjáttur þeirra félaga ágætar undirtektir. látir þeim félagsmönnum, er ættu góðar litskuggamynd- ir, ef Jjeir sýndu og ef til vill seldu Jjeim myndir. Er ég nú óska þeim allra heilla í framtíðinni með Jjetta nýstofnaða fyrirtæki þeirra, býst ég við, að ég tali fyrir munn allra félaga F.Á. //. St. Bj. FÁ-BLAÐIÐ 3

x

FÁ-blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FÁ-blaðið
https://timarit.is/publication/947

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.