Helsingi - 01.06.1945, Blaðsíða 2

Helsingi - 01.06.1945, Blaðsíða 2
2 Eitt þúsund og þrjátíu atlcvœði haji jrjáls og jordómslaus hugsun hlotið á íslandi í árslok 1944 1 030 eintök höfðu verið pöntuð af riti mínu „Einum helsingja“ á síðasta degi liðna ársins. Og eins og þeir muna sem „Opið bréf“ hafa lesið, þá er verð ritsins ákveðið 5 krónur fyrir þá sem sendu pantanir sínar fyrir nýjár. Askriftargjöldin fyrir þennan eintakafjölda koma því til að nema rúmum 5000 krónum þegar þar að ber. En sú upphæð mundi nægja fyllilega til að láta prenta 3—4 arka rit (50—60 bls.) og greiða allan annan beinan kostn- að þó upplag yrði nokkuð stórt. Ákalli mínu hefir því verið svar- að út á meðal þjóðarinnar — þ. e. a. s. hinni einföldu, ópersónubundnu mannréttindakröfu einstaklingsins, hefur því verið fullnægt og fram á meira, hvorki gat ég né get farið persónulega. Mér haíði um nýjár reijjð gert það kleift, sem einum einstakling innan mannlegs samfé- lags, að koma málsskjölum mínum fram fyrir þann eina dómstól er um það mál gat fjallað á réttum grund- velli. Og þessu frumskilyrði fyrir framþróun mannlegs samfélags íafði verið fullnægt þegar í nóvem- ber. En all-verulegur hluti ákalls míns* í „Opnu bréfi“ stefndi lengra og setti markið víðsfjarri öllum per- sónulegum tilfinningamálum. Það var stofnun „Helsingjasjóðs“. Og eins og er margítrekað í sjálfu „Opna bréfinu“ gat aðeins eitthvert jjvílíkt markmið gefið slíku ákalli tilverurétt'. Vesæll per- lónuleiki eins einstaklings, hvers 6em væri, gæti ekki varið gagnvart sjálfum sér slíkan hávaða um sína eigin tilveru aðeins, þó líf lians og vit lsfegi við og þó það væri lág- marksréttur hans sern mannlegrar veru sem hann hrópaði á. En þegar hér er komið málum er hið raunverulega takmark nokkuð langt undan, þó atkvæðatalningu í fylgislest frjálsrar hugsunar á ís- landi sé lokið, fyrir árið 1944. — Sjóðurinn skyldi stofnaður með því, sem umfrarn yrði beinan kostn- að við útgáfu ritsins sjálfs. Því hvað snertir útgáfu „Opna bréfs- ins“ og síðar fjölrituðu „Orðsend- ingarinnar“ prentaðs bréfs til kaup- sýslumanna o. fl. Þá hefi ég sjálfur haft í hyggju og hefi, að reyna að standa straum af því, — enda mundi þá langt til lands, hvað snertir sjóð- stofnun, ef þau útgjöld, sem nú orðið nem? yfir 4000 krónur, — ættu að greiðast af tekjum „Eins helsingja“ þegar til þeirra kemur. En frá byrjun stóðu vonir mínar til þess, að svo mætti fara að hægt yrði að nota þá upphæð sem mest óskerta sem atkvæðin — pantanirnar á árinu 1944, koma til með að gefa, — einmitt fyrir það fé verður minningarsjóður frjálsr- ar hugsunar að stofnast, — það er hans fé raunverulega. Enda virtust mér líka góðar horfur þar um í byrjun þessa árs. Eg reiknaði með því af gamalli reynslu og kunnugleika á því sviði, að rit með jafn augljósa útbreiðslumögu- leika, mundi fá það miklar auglýsing- ar, að nægði fyrir prentun og hefting- arkostnaði og lét því prenta bréf til kaupsýslumanna og annarra auglýs- andi fyrirtækja, í nokkur hundruð ein- tökum og sendi út til stærstu bæjanna og Reykjavíkur eða sem næst 350 fyrir- tækjum og helstu auglýsendum. Fer bréfið hér á eftir lítið eitt stytt: Með skírskotun til liins .„Opna bréfs“ míns, leyfi ég mér nú að fara þess vinsamlegast á leit við yður, að þér auglýsið í ritinu „Einn liels- ingi,“ sem um þessar mundir er að verða tilbúið að fara í prentun í prentv. Odds Björnssonar, Akureyri. Bið ég yður að athuga eftirfarandi, áður en þér takið ákvörðun. 1. Væntanlegur gróði rennur í stofn- deild „Helsingjasjóðs“, sem Jónas Rafnar yfirlæknir verður stjórnar- formaður fyrir, með tveimur með- stjórnendum, kosnum, hver af sín- um aðila, starfsfólki og sjúklingum. 2. Á stofnendaskrá „Helsingjasjóðs,“ þ. 31. des. s. 1., voru 183, karlar og konur, úr öllum sýslum landsins og allur meginþorri þess fólks, hafa ýmist forustu á hendi hver á sínu sviði, eða nýtur almennrar viður- ------------------H E L S I N G I kenningar fyrir störf og hæfileika, ýmist í héraði eða hjá allri þjóðinni. 3. samanlagðar einkapantanir þessara 183, sem mynduðu stofnendaskrá sjóðsins 31. des., námu þá 1030 ein- tökum. 4. I árslok námu því lofuð áskriftargj. atkvæðagreiðslunnar,brúttó 5150.00 kr. — fimm þúsund eitt hundrað og fimmtíu krónum. En takmarkið er, að stofndeildin afhendist með þeirri upphæð óskertri, verði þess nokkur kostur. Ég heiti því á yður og aðra aug- lýsendur, er þetta bréf sjá, að styrkja þessa smávægilegu viðleitni mína, til góðs og nokkurs gagns, í samfélagi mínu og þjóðfélagi okkar, með þyí að senda ritinu auglýsingu frá fyrirtæki yðar. 5. Fé það, er síðar á þessu ári og næsta, mun koma inn fyrir ritið, frá bókabúðasölu og annarri lausasölu, víðsvegar um landið, get ég ekki tek- ið með í neina áætlun né byggt neitt á í sambandi við prentsmiðju, papp- ír og bókbandskostnað og önnur bein útgjöld. Bæði verð ég þá er á- líður, búinn að fjarlægja mig frá verksviði sjóðsins, hvað snertir for- sjá hans og fjármálaumsvif og stjórnin tekin við, að afstaðinni kosningu á hinum tveimur með- stjórnendum yfirlæknis. — Og í öðru lagi getur stofndeildar upphæð sjóðsins, ekki miðazt við aðrar tekj- ur en þær, sem fást frá áskriftum ritsins á árinu 1944. 6. Bið ég yður vinsamlegast að taka til alhugunar, að allar líkur liggja til þess, að auglýsingarnar í þessu riti fái víðlendari úlbreiðslu, en dæmi eru fyrir áður hér á lanái. í fyrsta lagi verða nú útsölumenn í flestum hreppum í öllum sýslum landsins, auk allra kauptúna og kaupstaða, þar sem 2—3 útsölumenn verða í sumum þeim stærstu“. í þessu bréfi ákvað ég útkomutím- ann í marzmánuði og tel ég bréfið bera það með sér að allar ástæður voru til rað gera það í góðri trú. En nú fór mjög á aðra leið. Ilverju svo sem það sætti, þá urðu undirtektir auglýsenda gjörsamlega öfugar við alla reynslu og mér þekkjanleg dæmi, — og er vont að verjast því að sýnast þær skjóta nokkuð skökku við rökrétta hugsun frá bæjardyrum þeirra séð, sem rriikið þurfa að auglýsa eða sem vilja auglýsa í góðgerðaskyni og til styrktar •einhverju, er til gagns megi verða. En kannske einhverj um öðrum en Minaiagarsiöður frjálsrar huosunar ou útgáfa Elns Helstngja.

x

Helsingi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helsingi
https://timarit.is/publication/949

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.