Fjarðarpósturinn - 28.04.2005, Blaðsíða 5
www.fjardarposturinn.is 5Fimmtudagur 28. apríl 2005
Ís
la
n
d
sm
ei
st
ar
ar
F
H
2
00
4
Dagskrá kvöldsins:
• Veislustjóri: Gunnar Svavarsson
• Ræðumaður og gestur: Gunnar I. Birgisson, alþingismaður
Skemmtiatriði:
• Björgvin Halldórsson, stórsöngvari
• Jóhannes Kristjánsson, grínari á heimsmælikvarða
• Söngkonan frábæra, Hera Hjartardóttir
• Idol stjarnan Hildur Vala
• Karlakórinn Þrestir
• FH mafían frumflytur nýtt FH lag og syngur
öll gömlu góðu FH lögin
• Óvæntar sögur úr boltanum
• Glæsilegt happdrætti MFL karla
Nánari upplýsingar og miðar:
Pétur Ó. Stephensen sími 894-0040 pos@itn.is
Kristinn A. Jóhannesson sími 822-5383.
Árni Björn Ómarsson sími 899-5889 abo@simnet.is
Húsið opnað klukkan 19:30.
Borðhald hefst stundvíslega klukkan 20:00.
Miðar seldir í Kaplakrika og Súfistanum í Hafnarfirði.
Verð aðeins kr. 3.500
Herrakvöld
og vorfagnaður FH föstudaginn 6. maí
N ú m æ t a a l l i r á H e r r a k v ö l d o g v o r f a g n a ð F H !
G l æ s i l e g u r v e i s l u k v ö l d v e r ð u r
St
af
ræ
na
p
re
nt
sm
ið
ja
n
Íslenskir sumardagar verða
haldnir í Fjarðarkaupum 28. apríl
til 7. maí. Sem fyrr er lögð
áhersla á að framleiðendur kynni
nýjungar í íslenskri framleiðslu
og áhugaverða framsetningu á
vöru og þjónustu. Íslenskir sum-
ardagar í Fjarðarkaupum eru lið-
ur í landsátakinu „Þitt val skiptir
máli“ sem hófst í ágúst í fyrra.
Sannkölluð sumarstemning
verður í Fjarðarkaupum á Ís-
lenskum sumardögum, fjöldi
kynninga og viðburða þar sem
stórir sem smáir fá óvæntan
glaðning og skemmtilegir gestir
koma í heimsókn.
Íslenskt og gott fyrir
viðskiptavini
Þeir viðskiptavinir, sem velja
íslenskt, geta dottið í lukku-
pottinn með því að skrifa nafn
sitt og símanúmer á þar til gerða
miða í Fjarðarkaupum. Dagana
2.-7. maí geta heppnir hlustendur
Bylgjunnar unnið glæsilega
vinninga með því einu að svara
laufléttum spurningum auk þess
sem dregið verður úr innsendum
miðum frá viðskiptavinum
Fjarðarkaupa.
Meðal vinninga er skemmti-
sigling fyrir fjölskylduna með
hvalaskoðunarbátnum Húna,
gjafabréf frá Íshestum og Golf-
klúbbnum Keili og glæsilegur
kvöldverður fyrir tvo á Fjöru-
kránni. Allir vinningshafar fá að
gjöf frá Samtökum iðnaðarins;
gjafakippu af sérmerktum Toppi.
Mánudaginn 9. maí verður síðan
dregið úr innsendum miðum á
Bylgjunni um flugferð fyrir tvo
að eigin vali með Flugfélagi
Íslands og glæsilegar gjafakörfur
frá íslenskum framleiðendum.
Íslenskir dagar eru liður í
landsátakinu „Þitt val skiptir
máli“ en að því standa Samtök
iðnaðarins og aðildarfyrirtæki
þess.
Íslenskir sumardagar
í Fjarðarkaupum
Sumarstemmning, grill, kynningar, uppákomur, leikir o.fl.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Frá íslenskum landbúnaðardögum
Fyrirlestrarröðinni „Fróðleiksmolar í
Pakkhúsinu“ lýkur fimmtudagskvöldið
28. apríl. Við fögnum sumri og í takt við
hækkandi sól fjallar fróðleiksmoli apríl-
mánaðar um „menningarútivist“.
Fyrirlesarar eru tveir valinkunnir útvist-
ar- og fróðleiksmenn þeir Jónatan
Garðarsson og Ómar Smári Ármannsson.
Áhugafólk um útivist og menningu er
hvatt til að fjölmenna.
„Fróðleiksmolarnir“ hefjast stundvíslega
kl. 20 í sal Byggðasafnsins í Pakkhúsinu
Vesturgötu 8 og er aðgangur ókeypis.
„Menningarútivist“
Fróðleiksmolum í
Pakkhúsinu lýkur
Matjurtagarðar
Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði
tilkynnist hér með að þeim ber að
greiða leiguna fyrir 1. maí nk. ella má
búast við að garðlöndin verði leigð
öðrum.
Sundhöll Hafnarfjarðar
Bað- og laugarvarsla
Hafnarfjarðarbær auglýsir lausa stöðu
við bað- og laugarvörslu kvenna 100%
starf í Sundhöll Hafnarfjarðar.
Umsækjandi þarf að standast hæfnis-
próf samkvæmt öryggisreglugerð fyrir
sundstaði. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningi S.T.H. og Hafnarfjarðar-
bæjar.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður
Sundhallar Hafnarfjarðar Einar Stur-
laugsson í síma 5550088 ( 6645743 ) eða
á staðnum.
Umsóknir á þar til gerðum umsóknar-
eyðublöðum berist eigi síðar en 5. maí
2005 til Sundhallar Hafnarfjarðar
Herjólfgötu 10, merktar forstöðumanni.
Verslum í Hafnarfirði!
. . það e r s tyðs t að fa ra!
w w w . f j a r d a r p o s t u r i n n . i s