Fjarðarpósturinn - 28.04.2005, Qupperneq 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 28. apríl 2005
Við kunnum
að meta
eignina þína!
Áfram Haukar!
Þær standa í stórræðum, kon-
urnar í Kvennakór Hafnarfjarðar
um þessar mundir, en kórinn
stendur fyrir 6. landsmóti ís-
lenskra kvennakóra sem haldið
verður hér í bæ um helgina.
Fimmtán kórar, hvaðanæva af
landinu og einn frá Kaupmanna-
höfn, rúmlega 400 konur, munu
hefja upp raust sína og gefst
bæjarbúum kostur á að hlýða á
fjölbreyttan söng.
Mótið verður sett á föstudags-
kvöldið og fara allar konurnar í
óvissuferð í boði Hafnarfjarðar-
bæjar og væntanlega mun það
setja svip sinn á bæinn.
Á laugardag verður kórunum
skipt upp í hópa þar sem ýmis
tónverk verða æfð, bæði allir
kórarnir saman og hver í sínu
lagi. Þeir syngja tónverk eftir
íslensk og erlend tónskáld og
koma margir þjóðkunnir lista-
menn að því, má þar nefna Elínu
Ósk Óskarsdóttur söngkonu,
Björgvin Þ. Valdimarsson tón-
skáld, Aðalheiði Ragnardóttur
danskennara, Antoníu Hevesi
píanóleikara og ungverska kór-
stjórann Gabriellu Thész. Móts-
stjóri verður Hrafnhildur
Blomsterberg en hún stjórnar
bæði Kvennakór Hafnarfjarðar
og kór Flensborgarskóla.
Tónleikar verða í Víðistaða-
kirkju kl. 16 á laugardaginn þar
sem almenningi gefst kostur á að
hlýða á fallegan kórsöng þessara
15 kóra. Opið hús verður á
meðan á tónleikum stendur og er
því hægt að líta inn eins og
hverjum hentar.
Mikið verður svo um dýrðir á
hátíðarkvöldverði þar sem hafn-
firskar konur munu skemmta
kórsystum sínum.
Á sunnudag verða áfram kór-
æfingar og lýkur mótinu með
tónleikum í íþróttahúsinu við
Strandgötu þar sem allir kórarnir
munu syngja saman.
Tónleikarnir hefjast kl. 14 og
er aðgangur ókeypis. Mótinu
verður síðan slitið kl. 16 og
halda þá kvennakórar landsins,
syngjandi og sáttir, hver til síns
heima.
Yfir 400 syngjandi blómarósir
Kvennakór Hafnarfjarðar stendur fyrir landsmóti kvennakóra
Þrestir á vortónleikum
með Erni Árnasyni
Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði heldur vortónleika í kvöld,
fimmtudaginn 28. apríl í Hafnarborg í Hafnarfirði kl. 20
og laugardaginn 30. apríl kl. 16 í Neskirkju.
Einsöngvari með kórnum er Örn Árnason.
Söngstjóri Jón Kristinn Cortez, undirleikari Jónas Þórir.
Á efnisskrá er fjölbreytt úrval laga
eftir innlenda og erlenda höfunda.
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
–
0
50
4
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Húsið Eyrarhraun brann til
kaldra kola síðla þriðjudags.
Neglt hafði verið fyrir glugga
hússins nokkrum dögum áður
en börn og unglingar höfðu
ítrekað unnið skemmdir á hús-
inu. Ljóst er að kveikt var í hús-
inu og er lögregla kom þar að
með slökkvitæki gat hún ekkert
ráðið við neitt enda húsið lokað.
Þá rauk víða úr húsinu og logaði
út um einn glugga. Töluverður
tími leið þar til slökkvilið kom,
um 6 mínútum eftir að ljós-
myndari Fjarðarpóstsins kom
að og komst slökkvibíll ekki ná-
lægt húsinu.
Eftir samráð við Hafnarfjarð-
arbæ var húsið látið brenna nið-
ur enda var þá farið að loga úr
húsinu stafna á milli.
Ekki hafði verið ákveðið
hvað gera átti við húsið en meta
átti hvort það væri þess virði að
varðveita það og gera upp.
Eyrarhraun stóð inni í hraun-
inu ofan við Langeyrarmalir,
aftan við þar sem nú eru byggð-
ar blokkir fyrir eldri borgara.
Eyrarhraun látið
brenna til grunna
Hafði ítrekað verið skemmt
Slökkviliðsmaður rífur plötu frá inngangi hússins.
Fylgst með húsinu brenna.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Slökkvilið kemur á staðinn.
Frá tónleikum Óperukórs Hafnarfjarðar og Sópranos
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n