Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 22. september 2005
Víðistaðakirkja
Sunnudagurinn 25. september:
Sunnudagaskólinn kl. 11:00
Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri.
Messa kl. 13:00
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Úlriks Ólasonar
Kyrrðarstundir á
miðvikudögum kl. 12:00
súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
Opið hús fyrir eldri borgara á
miðvikudögum kl. 13:00
Spil, spjall og kaffiveitingar.
Foreldrastundir á
fimmtudögum kl. 13:00
Gefandi samvera
fyrir heimavinnandi foreldra
www.vidistadakirkja.is
Allir velkomnir
Sóknarprestur
Nú hljóta peningarnir að streyma til góð-
gerðarmála í Hafnarfiði en nú þykir fullvíst að
stór hluti stofnfjáreigenda (áður ábyrgðarmanna)
hafa selt bréf sín fyrir stórar upphæðir. Flestir
þeirra sem selja vita ekki hver raunverulegur
kaupandi er en stjórn sjóðsins fær þær upplýs-
ingar og þarf að fjalla um hverja sölu fyrir sig.
Ljóst er að í boði eru um 4 tugir milljóna fyrir
hvern stofnfjáraðila en fróðlegt væri að vita hvað
síðast stofnfjáraðilinn borgaði fyrir sinn hlut
fyrir þremur árum síðan. Ég var að lesa athyglisverða sögu Spari-
sjóðsins, Sparisjóður Hafnarfjarðar í 100 ár þar sem fram kemur að
þrír eftirlifandi árbyrgðarmenn Sparisjóðs í Hafnarfirði sem lagður
var niður árið 1900 létu eignir hans og skuldir renna inn í
nýstofnaðan Sparisjóð Hafnarfjarðar árið 1902 án þess að gera neitt
tilkalla til eigna í sjóðnum. Sjóðurinn var stofnaður sem sjálfs-
eignarstofnun enda kemur skýrt fram í lögum hans að ábyrgðar-
menn áttu aðeins rétt til endurgjalds fyrir útlagðan kostnað og gátu
ekki notið ágóða af varasjóði. Hvergi er að finna frásögn um að
sjóðnum hafi verið breytt í eign stofnfjáraðila né heldur er fjallað
um stofnfjáraðilana sem nú hafa yfirgefið skútuna og hafnast um
tugi milljóna kr. Þessir menn hljóta að horfa stoltir framan í
meðborgara sína, fólkið sem hefur gert Sparisjóðinn að því sem
hann er í dag án þess að fá krónu fyrir. Peningagræðgin varð sið-
ferðinu yfirsterkari og lítið þýðir að fela sig á bak við heimildar-
ákvæði í lögum. Sparisjóðurinn er orðinn bitbein hópa sem vilja ná
yfirráðum í Sparisjóðnum og spennandi verður að sjá hvort
Fjármálaeftirlitið geri einhverjar athugasemdir við þessi kaup en
fullyrt er að fámennur hópur standi á bak við kaupin.
Guðni Gíslason
1. Forstigskynning v/bensín-
stöðvar við Fjarðargötu (Olís).
Jóhann Einarsson frá Teikni-
stofu Ingimundar Sveinssonar sá
um forstigskynninguna að sjálfs-
afgreiðslustöð Olís v/Fjarðargötu.
Einar Marinósson og Sindri
Sveinbjörnsson frá Olís mættu
einnig til fundarins. Helga Stefáns-
dóttir og Anna Sofia Kristjánsdóttir
frá umhverfis- og tæknisviði sátu
einnig fundinn.
Einnig sátu fundinn fulltrúar í
skipulags- og byggingaráði, um-
hverfisnefnd og miðbæjarnefnd.
Þjónustu- og þróunarráð þakkar
fyrir kynninguna.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
óskar bókað: „Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins mótmæla stað-
setningu bensínstöðvar í miðbæ
Hafnarfjarðar. Samkvæmt greinar-
gerð Línuhönnunar frá janúar
2005 er engin þörf fyrir bensínstöð
í miðbæ Hafnarfjarðar né við
Kaplakrika þar sem mjög stutt er í
næstu bensínstöðvar.“
Steinunn Guðnadóttir (sign)
Bergur Ólafsson (sign)
Fulltrúar Samfylkingar óska
bókað: „Hér var eingöngu um for-
stigskynningu að ræða og engar
formlegar ákvarðanir hafa verið
teknar.“
Hörður Þorsteinsson (sign)
Ingimar Ingimarsson (sign)
Viktor Björnsson (sign)
1. Hunda- og kattahald,
greinagerð
Gunnar Svavarsson sem situr í
starfshópi um hunda- og kattahald
í Hafnarfirði kemur og kynnir
erindið. Síðast á fundi umhverfis-
nefndar/st 21 21. ágúst sl.
Bréf frá Hundaræktarfélagi
Íslands dags. 24. ágúst 2005 lagt
fram. Umhverfisnefndin þakkar
kynninguna. Kallað verður eftir
fagaðilum frá Hundaræktarfélagi
Íslands og fulltrúa frá heilbrigð-
iseftirliti Hafnarfjarðar vegna
áframhaldandi vinnu við greina-
gerðina.
3. Stjórn Reykjanesfólkvangs,
opið málþing
Stjórn Reykjanesfólkvangs býð-
ur til opins málþings um stöðu
fólkvangsins þann 20. september
nk. í Norræna húsinu.
Lagt fram
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 verður sýnd
amerísku myndina Woman of the Year
frá 1942 í leikstjórn George Stevens.
Þetta er fyrsta myndin sem hið
ódauðlega kvikmyndapar Katherine
Hepburn og Spencer Tracy léku í. Þetta
er gamanmynd um baráttu kynjanna.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
Óskarsverðlaunamyndin Giant frá árinu
1956 í leikstjórn George Stevens.
Aðalleikarar myndarinnar eru hinn ungi
James Dean sem var einmitt útnefndur
til Óskarsverðlauna fyrir myndina og
Elisabeth Taylor sem þykir standa sig
með afbrigðum vel í myndinni. Myndin
segir frá sambandi yfirstéttarstúlkunnar
Leslie (Taylor) og verkamannsins Jett (
Dean).
Bæjarmálafundur
Bæjarmálaráðsfundur Samfylkingarinn-
ar í Hafnarfirði verður haldinn mánu-
daginn 26. september kl. 20 að
Strandgötu 21.
Sýning Eiríks Smith
Sýningu Eiríks Smith líkur á mánu-
daginn svo þeir sem ætla að sjá
sýninguna hafa helgina og mánudaginn
til þess. Glæsileg sýning sem enginn
ætti að missa af.
Kristín Halliday í Hafnarborg
Á sunnudaginn kl. 20 mun Kristín
Þuríður Halliday, sópran halda tónleika í
Hafnarborg, Hafnarfirði. Þetta eru fyrstu
tónlekar Kristínar hér á landi en hún er
lýrískur sópran, sem hefur numið við
Musical Arts í New York og haldið tón-
leika víðsvegar um Bandaríkin og í
Þýskalandi.
Efnisskráin verður afar fjölbreytt. Má þar
nefna verk eftir Handel, Vivaldi, Bach,
Schubert, Pucchini, Gaunot og Amerísk
söngvaskáld.
Undirleikari er Antonía Hevesi, píanó
ásamt Einari Jóhannessyni, klarínettu-
leikara í Der Hirst auf dem Felsen og
Peter Tomkins óbóleikara í Domine
Deus úr Gloríu Vivaldis.
Kristín Þuríður, sem búsett er í Mary-
land, Bandaríkjunum mun að þessu
sinni aðeins halda þessa einu tónleika
hér á landi.
sunnudaginn 25. september
Guðsþjónusta kl. 11
Prestur sr. Þórhallur Heimisson.
Íhugunarefni: „Íslenska skjaldarmerkið og kristin
táknfræði.“
Organisti: Antonía Hevesi, Kór kirkjunnar leiðir söng.
Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma í
safnaðarheimili og í og í Hvaleyrarskóla
Kyrrðarstund miðvikudaginn 29. sept.
kl. 12.00. Antonia Hevesi leikur á
orgel kirkjunnar. Sr. Þórhallur
Heimisson leiðir stundina.
Léttar veitingar í safnaðar-
heimili eftir kyrrðarstundina.
www.hafnarf jardark i rkja. is
Útgefandi: Keilir ehf.
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Umbrot: Hönnunarhúsið, umbrot@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Gunnar
Guðbjörnsson
á hádegistón-
leikum
Næsta fimmtudag
Októberhádegistónleikar
Hafnarborgar verða fimmtu-
daginn 29. september kl. 12 en
þá fær Antonía Hevesi til sín
lýríska tenórinn Gunnar Guð-
björnsson sem sungið hefur er-
lendis undanfarin ár. Hann syng-
ur þar tvö ítölsk ljóð og tvær arí-
ur við undirleik Antoníu.
Tónleikarnir hafa verið vel
sóttir og Antonía hefur einstakt
lag á að gefa tónleikunum létt
yfirbragð með skemmtilegum
kynningum sínum.