Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Page 12

Fjarðarpósturinn - 22.09.2005, Page 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 22. september 2005 Seljum Gaflarann til styrktar augndeild St. Jósefsspítala Lionsklúbbur Hafnarfjarðar Hefur selt Gaflarann frá 1999! 30. sept. - 2. okt. Verð á merki aðeins 500 kr. Berum stolt Gaflarann til styrktar góðu málefni © H ön nu na rh ús ið – 0 50 9 Að eiga barn á grunnskólaaldri krefst mikils af foreldrum. Það er að ýmsu að hyggja. Vænt- ingar okkar til barna okkar eru oft miklar og við leggjum oft á þau þungar byrðar, t.d. hvað varðar gæslu á yngri systkinum og fleiri „skylduverka“ á heimilinu auk náms, íþrótta- og félagsstarfa. Öflug tenging heim- ila og skóla eru nauð- synleg. Ein helstu rök- in fyrir því að foreldrar tengist skólum náið byggjast á niðurstöðum fjölda rannsókna að þátttaka foreldra og áhugi hafi veruleg áhrif á námsgengi barna. Foreldrum er annt um að börn sín taki framförum í námi og foreldrar þurfa einnig að fá að vita hvaða forsendur liggja að baki þegar frammistaða barna þeirra er metin. Hver sem bakgrunnur foreldra kann að vera er samstarf við þá auðlind sem Áslandsskóli hefur allt frá upphafi talið skynsamlegt að virkja. Nauðsynlegt er að slíku samstarfi séu sett skýr markmið og það einkennist af trausti, bjartsýni og virðingu. Þannig skapar það verulega möguleika á að hafa jákvæð áhrif á skólastarfið. Þó svo að kennari sé að jafnaði einn með nemendum í kennslu- stofunni fer því fjarri að það sem þar gerist sé einkamál hans. Allt skólasamfélagið ber sameigin- lega ábyrgð á árangri kennsl- unnar. Umhyggja, áhugi og virk þátttaka foreldra í námi barna eru bráð- nauðsynleg atriði til að árangur verði fram- úrskarandi. Því hefur þátttaka foreldra í menntandi og þrosk- andi viðfangsefnum á heimilinu og í skól- anum mikil áhrif á námsárangur barna. Það að t.d. lesa með eða fyrir börnin, sjá þeim fyrir bókum, sækja fundi er tengjast námi þeirra og starfi í skólanum ásamt þátttöku í námsferðum eru allt hlutir sem hægt er að finna sig í. Þátttaka í skólakynningum, nám- skeiðum sem boðið er uppá eða einfaldlega að merkja við í lestr- arbókina, allt hefur þetta áhrif til betri vegar. Það er því nauðsynlegt, nú í upphafi skólaárs, að við foreldrar lítum í eigin barm og skoðum hvort við sýnum námi barna okkur nægilegan áhuga. Áhuga sem fleytt gæti nemendum upp brattar brekkur á námsferlinum. Öll höfum við mikið að gera við að færa bjargir í bú en það má ekki hafa þau áhrif að við gleymum að rækta það dýr- mætasta sem við eigum. Höfundur er skólastjóri. Sýnum námi barna okkar áhuga Leifur S. Garðarsson Nú þegar ljóst er að Síminn hefur verið seldur fyrir yfir 60 milljarða vakna spurningar hvernig þeim fjár- munum skuli varið. Jú ríkisstjórn íhalds og framsóknar hefur gefið frá sér yfirlýsingar um hvernig þeim fjármun- um skuli varið. Ekki er að sjá að eldri borgarar séu hátt skrif- aðir á þeim fram- kvæmdalista. Þeir eru þó stór hluti kjósenda þessa lands og sá hópur fer vaxandi. Ekki króna til hagsbóta fyrir eldri borgara er þar sjáanleg. Fólkið er skóp þess fjármuni með atorku og tæknikunnáttu sinni að langmestu leyti og er að fara á eftirlaun flestir hverjir í dag. Nei það er ekki króna til þessa fólks hjá ríkistjórn íhalds og fram- sóknar, hvað með fjármagn til hjúkrunarheimili fyrir aldraða sem sárlega vantar ekki síst í Suðvesturkjördæmi. Við skulum einnig minnast þess að 10 þúsund eldri borgarar eru með innan við 110 þúsund kr. til framfærslu sinnar á mánuði og af því eru að sjálfsögðu skattar teknir, hvað verður þá eftir? Það væri fróðlegt ef ríkistjórn- arflokkarnir gætu gefið þessu fólki uppskrift að því hvernig þeir gætu lifað af innan við 100 þúsund kr. á mánuði. Það er einnig at- hyglisvert að sjá þá aðila sem komið hafa í dagsljósið undanfarna daga og tala um að ekki megi auka laun eða kjarabætur til handa launþegum, þetta er oft á tíðum sama fólkið og er með nokkur hundruð þúsund kr. í mánaðar- laun, geta þessir aðilar talist sannfærandi í sínum málflutn- ingi? Ég held varla. Er ekki enn og aftur nauðsyn- legt að eldri borgarar og laun- þegar á þessu landi hugsi alvarlega sinn gang og veiti þeim atkvæði sitt hvort sem er í sveitar- stjórnarkosningum eða alþingis- kosningum er raunverulega eru tilbúnir að auka velferð fólksins í landinu. Þar er Samfylkingunni fyrst og fremst treystandi til góðra verka. Höfundur er vararþingmaður Samfylkingar í Suðvesturkjör- dæmi. Jón Kr. Óskarsson Aldraðir ekki inni í myndinni

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.