Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 05.01.2006, Síða 1

Fjarðarpósturinn - 05.01.2006, Síða 1
www. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s 1. tbl. 24. árg. 2001 Fimmtudagur 5. janúar Upplag 8.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi ISSN 1670-4169 Nú um áramótin sameinuðust allar heilsugæslur á höfuð- borgarsvæðinu í eina stofnun, sem ber nafnið Heilsugæsla höf- uðborgarsvæðisins. Innan hinnar nýju stofnunar verða heilsugæslustöðvarnar í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópa- vogi, Mosfellsbæ, Reykjavík og á Seltjarnarnesi, alls 15 heilsu- gæslustöðvar, auk Heilsuvernd- arstöðvarinnar í Reykjavík og Miðstöðvar heimahjúkrunar í Reykjavík. Starfsmenn stofn- unarinnar eru alls um 600, for- stjóri hennar er Guðmundur Einarsson sem verið hefur for- stjóri Heilsugæslunnar í Reykja- vík. Engar breytingar verða á þjónustu heilsugæslustöðvanna við sameininguna, en tvær nýjar heilsugæslustöðvar verða opnað- ar í janúar, Heilsugæslan Glæsi- bæ í Reykjavík og Heilsugæslan Fjörður í verslunarmiðstöðinni Firði en sú stöð verður opnuð 9. janúar nk. Þar verða starfandi 6 læknar og verða allir komnir til starfa innan fárra mánaða. Yfirlæknir stöðvarinnar er Guðrún Gunnarsdóttir en hjúkr- unarforstjóri er Ingibjörg Ás- geirsdóttir. Ný heimasíða fyrir Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins verður opnuð um miðjan janúar. Nýtt lögreglu- embætti stofnað á höfuðborgar- svæðinu Björn Bjarnason, dómsmála- ráðherra kynnti á þriðjudag niðurstöðu sína um nýskipan lögreglumála þar sem m.a. er gert ráð fyrir að að stofnað verði nýtt lögregluembætti sem taki við hlutverki embættanna í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík en áður hafði verið ætlað að löggæsla færi frá sýslumönnunum í Hafnarfirði og Kópavogi til lögreglustjór- ans í Reykjavík. Ekki er ólíklegt að breytingin taki gildi um næstu áramót verði frum- varp um málið samþykkt. Ný heilsugæslustöð, verður opnuð í Firði á mánudaginn. Heilsugæslusameining Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins tekin til starfa Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Ýsa var það heillin Þrettánda- brenna á Völlum Gengið frá Suðurbæjar- laug kl. 18.30 Jólin verða kvödd með dansi og söng á þrettándahátíð sem Hafn- arfjarðarbær og Haukar standa fyrir við Ásbraut. Gengið verður í blysför frá Suðurbæjarlaug kl. 18.30 á morgun að Ásvöllum í fylgd álfa, púka og jólasveina. Skemmtidagskrá hefst kl. 19 á svæðinu vestan við íþróttamið- stöðina. Brenna, söngur og glens verður milli Ásbrautar og Reykja- nesbrautar og lýkur skemmtun- inni með veglegri flugelda- sýningu í boði SPH um kl. 20. Kaffi, heitt kakó, blys og kyndlar til sölu á staðnum á vægu verði. Fólk er hvatt að koma ekki með skotelda á svæðið vegna slysahættu.

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.