Fjarðarpósturinn - 29.06.2006, Qupperneq 2
Í Hafnarfjarðarhöfn má þessa
dagana sjá börn á kajökum og
litlum seglbátum og hafa margir
gaman að fylgjast með börnun-
um. Sumum hefur þó brugðið að
sjá sportbát sigla á töluverðri
ferð mjög nálægt krökkunum
sem eru jafnvel ekki nema 10
ára. Ljósmyndari Fjarðarpóstins
fylgdist með slíkri siglingu á
þriðjudaginn. Þar var greinilega
á ferð starfsfólk Siglingaklúbbs-
ins Þyts sem voru að gera öldur
fyrir krakkana á kanóunum.
Virtist báturinn fara all nærri á þó
nokkurri ferð, svo nálægt að á
stundum gusaðist yfir krakkana.
Það má sennilega ekki mikið
út af bregða við svona leik og
lesandi spyr hvort svona sé
verjandi?
Háskasigling?
Hraðbátur notaður til að búa til öldugang
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 29. júní 2006
Víðistaðakirkja
Helgistund á sumarkvöldi
sunnudaginn 2. júlí, kl. 20:00
Kór Víðistaðasóknar syngur
Organisti: Gróa Hreinsdóttir
www.vidistadakirkja.is
Allir velkomnir
sóknarprestur
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Sunnudagur 2. júlí
Morgunsöngur kl. 10.30
Ath. breyttan messutíma
Prestur: Yrsa Þórðardóttir.
Organisti: Antonía Hevesi.
www.hafnarf jardark i rkja. is
Af fundargerðum:
Firði -
Firðinum
Fundargerðir ráða og nefnda
bæjarins eru sjaldnast nein
skemmtilesning enda eru þær
oft afspyrnuléglegar og skortir
oft það sem prýða á góðar
fundargerðir. T.d. mátti sjá í
fundargerð bæjarráðs að lögð
hafi verið fram tillaga um
breytingar á samþykktum
bæjarins en látið hjá líða að
geta hverjar tillögurnar voru!
Hvaða gagn er af slíku. Til
hvers halda menn að fundar-
gerðir séu?
Hins vegar má lesa margt
annað úr fundargerðunum t.d.
hvort sá sem skrifar sé Hafn-
firðingur eða ekki. Í fund-
argerð bæjarráðs um bílastæði
í miðbæ Hafnarfjarðar er
upplýst:
„Lagt fram bréf frá fram-
kvæmdastjóra Fjarðarins með
fyrirspurn varðandi bílastæði í
miðbæ Hafnarfjarðar“.
Gott og blessað en hver er
bæjarstjóri Fjarðarins. Fyrir
alllöngu kom út bókasyrpa,
„Fólkið í Firðinum“. Skyldi
þarna vera átt við sama Fjörð?
Nei, í fundargerð bæjarráðs er
átt við framkvæmdastjóra
Fjarðar (Fjörður, verslunar-
miðstöð) en í titli bókarinnar er
átt við Hafnarfjörð. Já, það
getur verið munur á Firði og
Firðinum!
Mikið hefur verið rætt um ójafna stöðu
kynjanna í skipun nefnda hjá Reykjavíkurborg.
Svipuð umræða kom upp í bæjarstjórn á
þriðjudag og Rósa Guðbjartsdóttir skrifar um
þetta grein í Fjarðarpóstinum í dag. Reyndar
skoraði yngsti bæjarfulltrúinn á Rósu að bæta úr
bágri stöðu kvenna í nefndarskipan D-listans og
skipa konur í framkvæmdaráðið en þar skipaði
D-listinn bara karla. Ég ætla ekki að elta ólar við
kynferði fólks, enda gömlu kynin tvö ekki orðin
einráð á þeim markaði án þess að það hafi komið við sögu í
umræðum um hlutfall kynjanna. Hitt er það hvort alltaf sé valið
hæfast fólkið í nefndir og ráð bæjarins. Þessum nefndum og ráðum
er ætlað að vera sérfræðiráðgjafar bæjarfulltrúanna sem við
bæjarbúar kusum í meingölluðu flokkavænu kosningakerfi. Því er
mikilvægt að þar sé alltaf valið hæfasta fólkið og áhugasamast til
starfa en ýta þarf til hliðar viðmiðunum eins og dugnaði í
kosningabaráttu og slíku. Nær væri að taka upp verðlaunakerfi eins
og bærinn er með fyrir íþróttafólkið. Ekki væri amalegt að fá póli-
tískan verðlaunapening fyrir vel unnin störf.
Nú er líka í tísku að búa til stjórnarhópa hinna ýmsu aldurshópa
og ungmennaráð og öldungaráð er gott dæmi um slíkt. Auðvitað
þarf unga fólkið fríar getnaðarvarnir og aðstöðu fyrir brettafólk. Það
er flott að virkja ungt fólk til starfa fyrir stjórnkerfi bæjarins. En því
má ekki gleyma að þetta eru fulltrúar breiðs og innbyrðis ólíks
hóps. Hvernig nær slíkt ráð að endurspegla vilja þessa hóps?
Hvernig næst að draga fram skoðanir sem flestra? Mikilvægt er að
með þessari skipan sé ekki slegið á hendur þeirra sem kannski vilja
koma athugasemdum og ábendingum sínum beint til bæjarstjórnar-
manna og kannski ætti að gera enn betri farveg fyrir slík tengsl
bæjarbúa við kjörna bæjarfulltrúa. Hvati að slíkum ábendingum
getur komið úr skólastarfi, úr íþróttastarfi, skátastarfi, kirkjulegu
starfi eða úr samskiptum ungs fólks á götum úti.
Fulltrúa foreldra má líka skoða með þessum formerkjum, eru þeir
ekki oftast að vinna út frá sínum eigin skoðunum og reyna að vinna
eftir bestu getu? Hversu vel getur einn einstaklingur verið fulltrúi
foreldra í Hafnarfirði. Stór hluti af okkur eru foreldrar og við höfum
öll mismunandi skoðanir. Með þessu er ég enn og aftur að hvetja til
fleiri uppbyggjandi íbúaþinga. Venjum bæjarbúa á íbúaþing!
Guðni Gíslason
Sveinssafn opið á sunnudag
Sveinssafn í Krýsuvík er opið n.k.
sunnudag, 2. júlí, en reglulegur opn-
unartími safnsins er fyrsti sunnudagur í
mánuði yfir sumartímann.
Ný sýning á verkum Sveins Björns-
sonar, sem ber yfirskriftina „Siglingin
mín“ var opnuð í safninu í vor og
dregur fram þróun siglingarstefsins í
myndlist Sveins eins og það hefur
þróast í myndheimi hans í hátt í 40 ár.
Þetta er fjórða sýning safnsins í
Krýsuvík frá því að Sveinshús (bláa
húsið gegnt gamla fjósinu) var opnað
sem safn í júní árið 2000.
Innileg fjarvera - síðasta
sýningarhelgi í Hafnarborg
Patrick Huse sýnir nú ljósmyndir og
málverk í Hafnaborg. Patrick Huse
hefur lengi verið þekktur listamaður í
heimalandi sínu, Noregi, og hér á
Íslandi eru líka margir sem þekkja til
hans enda er sýningin hans í
Hafnarborg sú fimmta sem hann kemur
með hingað til lands. Sýningunni lýkur
á mánudaginn.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Fjöltækni-
nám fer af
stað
Fræðsluráð Hafnarfjarðar
samþykkti á fundi sínum í fyrra-
dag eitt stöðugildi kennara og
80% stöðuhlutfall stuðnings-
fulltrúa vegna fjöltæknináms.
Kostnaði verður mætt með til-
færslum á fjárheimildum yfir-
standandi árs.
Fjöltækninám er viðbótar
kennsluúrræði ætlað nemendum
í 8.-10. bekk sem ekki finna sig í
samskiptum við nemendur í
sínum skóla og verður rekið
samhliða og undir sömu stjórn
og fjölgreinanámið.
Fjöltækninámið verður viðbót
við Fjölgreinanámið sem er
undir stjórn Sveins Alfreðssonar
sem stýrt hefur því með mjög
góðum árangri.
Nýr
Krýsuvíkurvegur
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Eldhress nemandi í Fjölgreina-
náminu með steiktan fisk.