Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 29.06.2006, Qupperneq 3

Fjarðarpósturinn - 29.06.2006, Qupperneq 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 29. júní 2006 Loksins gagn- stétt á ný Loksins er búið að steypa gangstétt við Lækjargötuna en þar hefur ekki verið gangstétt síðan Rafha-húsin voru rifin og hafa gangandi vegfarendur verið mjög óánægðir með þá vanvirðingu sem þeim er sýndur við framkvæmdir víða um bæinn. Ökumenn liðu ekki svona seinagang. Mér finnst mjög gaman að fara út að labba með börnunum mínum og jafnvel annarra. Einhvern veginn endar maður alltaf niður í bæ og labbar yfir þetta fína torg sem þar er með engu á. Ekki það að mér finnist ekki gott að setjast á bekkinn eða kíkja í búðarglugga, það er bara að krílunum leiðist. Það er ekkert spennandi fyrir börn í miðbænum nema á einhverjum sérstökum dögum eins og fyrir kosningar eða hátíðisdaga. Til eru allskonar útfærslur af grindum eða einhverskonar leikföngum sem hægt væri að setja á torgið þannig að það væri gaman að labba niður í bæ og setjast niður og leyfa krökkunum að príla eða hvað sem væri í boði. Ég er viss um að ef eitthvað yrði gert fyrir börn í miðbænum myndi það laða að fleira fólk. Guðrún Gunnarsdóttir. Torgið í miðbænum Í Fjarðarpóstinum í síðustu viku ákvað einn af forystumönn- um Sjálfstæðisflokks- ins í Hafnarfirði, Guð- mundur Jónsson við- skiptafræðingur, að reikna niðurstöður kosninganna í Hafnar- firði upp á nýtt. Var það gert í þeim tilgangi að sýna fram á að stór hluti kjósenda, þeir sem heima sátu, hefðu allir kosið Sjálf- stæðisflokkinn hefðu þeir komið á kjörstað. Síðan var reiknað og reiknað og fundið út að Sam- fylkingin hefði fengið 40,2% í stað 56,4% og kosningasigur þess flokks hefði því byggst á misskilningi og það yrði líklega að kjósa upp á nýtt - tölurnar væru ekki í samræmi við það sem búist var við. D-listinn alltaf helmingi minni En það er sama hvort menn úr forystusveit flokksins vilji gjald- fella niðurstöðurnar eða ekki þá liggur það ljóst fyrir að D-listinn fékk alltaf meiri en helmingi minna fylgi en Samfylkingin. Hafi Samfylkingin fengið 40,2% í stað 56,4% þá fékk Sjálfstæðis- flokkurinn 20% fylgi og Fram- sóknarflokkurinn 2,1% í stað 3,1% og V-listinn 8,9% í stað 12,4%. Þetta hlýtur að vera grín, samt merkilegt að forsytumenn Sjálf- stæðisflokksins vilji stíga fram eftir kosningar og reikna sig út af blaðinu. Niðurstaðan er skýr í Hafnarfirði og söguleg hér í bæ. Samfylkingin vann stærsta kosn- ingasigur sem nokkur flokkur hefur unnið hér í bæ og um leið fékk Sjálfstæðisflokk- urinn lægsta fylgi sitt frá því að hann fór að bjóða fram í bænum eða frá 1930. Innanbúðarmál? Niðurlag greinar- innar vekur hinsvegar upp spurningar hjá okkur bæjarbúum. Hvernig má það vera að einn af forystu- mönnum Sjálfstæðisflokksins vegi svo ódrengilega, sem raun ber vitni, að nýjum oddvita flokksins. Fyrr má nú reyna að rota en dauðrota nýkjörinn odd- vita sem aðeins hefur haft tæki- færi í nokkrar vikur að sýna hvað í honum býr sem oddviti. Öðru vísi mér áður brá innan úr herbúðum flokksins. Það hefði frekar verið spurning að hlúa að þeim sprota sem nú leiðir flokkinn, allavega gefa honum tækifæri, en ég kannski ekkert að vera að skipta mér að því hvernig sjálfstæðismenn haga sínum innanbúðarmálum. Maður les bara um það í staksteinum fjöl- miðlanna og þekkir ekki hvernig kaupin gerast í eyrinni hjá D- listanum. Sinn er siður í hverri sveit. Höfundur er varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og nemi í garðyrkjufræðum. Sjálfstæðisflokkurinn með lítið fylgi Ingimar Ingimarsson Þegar litið er á stjórnkerfi Hafnarfjarðarbæjar vekur það óneitanlega athygli að æðstu stjórnendur og em- bættismenn bæjarins eru nánast eingöngu karlar. Bæjarstjóri, bæjarlögmaður, fjár- málastjóri og starfs- mannastjóri eru allt karlar. Stjórnendur helstu stjórnsviða bæj- arins, fræðslusviðs, fjölskyldusviðs, rekstr- arsviðs og umhverfis- og tæknisviðs eru jafnframt eingöngu karlar. Kona hefur hins vegar gegnt stöðu sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs. En völd og áhrif þess sviðs munu minnka umtalsvert og helstu verkefni þess felld undir bæjarráð, þegar til verður nýtt framkvæmdasvið í stjórnkerfi bæjarins. Athyglisverð ráðning Meirihluti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði gaf fyrir tveimur árum út (í nafni bæjarins) fallega útlítandi „Jafnréttisstefnu Hafn- arfjarðar“. Þar er Hafnarfjörður skuldbundinn til að vinna að jafnrétti kynjanna og er þar eitt aðalmark- miðið að jafna þátt- töku og áhrif karla og kvenna. Ég er að sjálfsögðu þeirrar skoðunar að konur og karlar skuli metin að verðleikum við stöðuveitingar. Það er engu að síður mjög athyglisvert að í „jafnréttisbænum“ Hafnarfirði, þar sem Samfylk- ingin hefur haft óskoruð völdin síðastliðin fjögur ár, skuli konur vart komast á blað þegar ráðið er í helstu stjórnunarstöður innan bæjarkerfisins. Það verður athyglisvert að fylgjast með ráðningu á yfir- manni hins nýja og umfangs- mikla framkvæmdasviðs Hafn- arfjarðarbæjar. Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í Hafnarfirði. ,,Jafnréttisbærinn'' Hafnarfjörður - Treystir Samfylkingin ekki konum? Rósa Guðbjartsdóttir Mannlaust Thorsplanið á miðjum þriðjudegi. eða einstaklingur vanur í eldhúsi óskast strax í Fjörukrána Nánari upplýsingar hjá Jóhannesi Matreiðslumaður www.f jorukra in . is • St randgötu 55 Með tilkomu krókaaflamarks- kerfisins svokallaða hefur smíði á minni bátum dregist verulega saman en smíði á stærri bátum aukist en í þetta kerfi má nota allt að 15 rúlesta báta. Einn slíkur var afhentur eigendum sínum á þriðjudaginn í Hafnarfjarðarhöfn en þar tók Tryggvi Ársælsson, útgerðarmaður og skipsstjóri á Tálknafirði við Cleopötru 38 frá Trefjum en það er einn stærsti báturinn sem fyrirtækið smíðar en viku áður afhenti fyrirtækið einn slíkan bát til Grindavíkur. Báturinn er allur hinn glæsi- legasti, um 12 metra langur, gengur um 25-30 mílur og er búinn til línuveiða. Að sögn Tryggva kemur báturinn í stað minni Kleópötru sem var um 8½ brúttólestir. Nýr bátur frá Trefjum Um helmingur bátaframleiðslunnar til útlanda Hjónin Tryggvi Ársælsson og Eyrún Sigþórsdóttir. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n www.fjardarposturinn.is H a f n f i r s k a b æ j a r b l a ð i ð s í ð a n 1 9 8 3 Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.