Fjarðarpósturinn - 29.06.2006, Qupperneq 4
Slasaði sig á
skilti á
Strandgötunni
Vegfarandi slasaði sig á skilti
ASÍ á föstudag sem Fjarðar-
pósturinn varaði við degi áður og
enn hefur skiltið ekki verið
fjarlægt en járnstykki gengur út í
þrengda gangstéttina í höfuð-
hæð.
Hver ber ábyrgðina? Fulltrúar
bæjarins hafa hunsað athuga-
semdir bæjarbúa. Bæjarstjóri! Þú
bergð ábyrgð!
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 29. júní 2006
Frábær árangur hefur náðst í
forvörnum í Hafnar-
firði. Vímuefnaneysla
ungs fólks hefur snar-
minnkað og afbrotum
fækkað umtalsvert.
Mörg samstarfsverk-
efni sem foreldrar hafa
verið í lykilhlutverki
hafa skilað góðum ár-
angri. Hins vegar er
sumarið sérstakur
áhættutími.
Rannsóknir frá Rannsóknum
og greiningu sýnir að þegar
bornir eru saman nemendur í 10.
bekk grunnskóla vorið 2004 (sjá
mynd) og sami árgangur nem-
enda í fyrsta bekk framhalds-
skóla um haustið:
- Reykja daglega - úr 11,7% í
15,1%.
- Ölvaðir síð. 30 daga - úr
26% í 53%
- Prófað hass - úr 9,0% í
12,7%.
Þessi aukning á neyslu unga
fólksins getur sannarlega haft
margar slæmar afleiðingar;
auknar líkur á mis-
notkun vímuefna, auk-
in slysahætta s.s. í um-
ferðinni og meiri líkur
á að lendi í neikvæðri
kynferðislegri upp-
lifun.
Niðurstaðan gæti
verði sú að foreldrar
geti enn og aftur verið
jákvæðir örlagavaldar
í lífi barna sinna í
sumar með því að:
• Útvega ekki börnum sínum
áfengi
• Ræða við börnin s.s. um
vímuefni og kynlíf
• Vera vakandi um barnið sitt,
hvað er unglingurinn að gera?
• Sporna gegn eftirlitslausum
partýjum
• Eyða sumrinu saman og
öðlast sameiginlega jákvæða
reynslu
Gangi ykkur vel.
Höfundur er forvarnafulltrúi.
Forvarnir á sumrin
Foreldrar eru bestir í forvörnum
Geir Bjarnason
26,0
48,0
53,4
66,6
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
100
Hafa orðið drukknir a.m.k. einu
sinni á sl. 30 dögum
Hafa orðið drukknir a.m.k. einu
sinni um ævina
%
Nemendur í 10. bekk í apríl 2004
15-16 ára nemendur í framhaldsskólum í október 2004
Þær spretta upp snyrtistofurnar
við Stakkahraun. Nýjasta stofan
þar er Airbrush & Makeup
Gallery sem Sólveig Birna
Gísladóttir, förðunarmeistari
rekur. Þar býður Sólveig upp á
brúnkumeðferð, „þá bestu sem
gerist“, segir hún. Bæði konur og
karlar, þó konur í meirihluta nýta
sér svona þjðónustu en hjá
Sólveigu er aðstaða hin full-
komnasta, hitaklefi með góðri
loftræstingu þar sem litarefni er
sprautað á til að ná fram jafnri
áferð. Slík meðferð tekur um 10-
20 mínútur og er hægt að velja
um nokkra litatóna.
Segir Sólveig þetta vinsælt
fyrir brúðkaup, árshátíðir, sól-
arlandaferðir og þegar einstakl-
ingarnir vilja líta vel út.
Sólveig býður einnig upp á
almenna förðun fyrir öll tækifæri
og er með gott úrval af snyrti-
vörum í sölu, aðallega frá NYX.
Auk þessa eru förðunarnám-
skeiðin mjög vinsæl að sögn Sól-
veigar en hún býður sauma-
klúbbum, vinahópum og öðrum
upp á námskeið í förðum.
Sólveig er mjög ánægð að vera
komin með starfsemina í Hafnar-
fjörð enda er hún orginal Hafn-
firðingur að eigin sögn, dóttir
Birnu Loftsdóttur og Gísla
Torfasonar. Áður var Birna með
starfsemi í Smáralindinni.
Ný förðunarstofa
Brúnkumeðferð með „airbrush“-tækni
Sólveig Birna Gísladóttir,
förðunarmeistari.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Elsta fánastæði bæjarins er á
baklóð Strandgötu 27 að sögn
Gunnars Eyjólfssonar sem
flaggaði þar á nýrri stöng á
þjóðhátíðardeginum.
Heimildir herma að þarna
hafi verið flaggað þarna árið
1903.
Elsta fánastæðið?
Gunnar Eyjólfsson við hús sitt
á Strandgötu 27.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Ratleikur Hafnarfjarðar er nú
farinn af stað, ellefta árið í röð.
Jónatan Garðarsson, sem er
einna fróðastur manna um
nágrenni Hafnarfjarðar lagði
leikinn og leitast við að fræða
um leið þátttakendur um ná-
grennið og sögu okkar.
Þrír leikir við allra hæfi
Að venju eru þrír leikir í
gangi, Léttfeti, Göngugarpur og
Þrautakóngur. Til að ljúka
Léttfeta þarf að finna 8 spjöld
og auðveldast er að finna fyrstu
8 spjöldin. Göngugarpar þurfa
að finna 20 spjöld og
Þrautakóngar öll 28 spjöldin.
Málmendurvinnslufyrirtækið
Fura er aðalstyrkaraðili leiksins
í ár en ýmis fyrirtæki styrkja
leikinn auk þess sem fyrirtækin,
Fjallakofinn, Hress og KFC
styrkja leikinn með því að
leggja til vinning sem dregnir
verða út í september.
Síðasti möguleiki á
að skila lausnum er
17. september nk.
Hafnarfjarðarbær
gerði samning við
Hönnunarhúsið um
gerð og umsjón Rat-
leikskortsins og eftirlit með
spjöldunum en ábendingum um
skemmd eða horfin
spjöld skal koma í
þjónustuver Hafnar-
fjarðarbæjar.
Það kostar ekkert
að taka þátt í leikn-
um og aðeins þarf að
nálgast ratleikskortið í þjón-
ustuverið og ganga af stað.
Ratleikurinn farinn af stað
Ratleikskortin má nálgast í þjónustuveri bæjarins
Velheppnuð Jónsmessuhátíð
Þátttaka hefði þó mátt vera meiri
Fólk skemmti sér konunglega í
Hellisgerði á vel heppnaðri
Jónsmessuhátíð sl. föstudags-
kvöld. Skemmtiatriðin mæltust
vel fyrir, voru fjölskylduvæn og
og ekki sakaði að veðrið var
ágætt. Alcan styrkti hátíðina að
þessu sinni og gaf börnum vatn
og box til sápukúlugerðar og
svifu sápukúlur víða um garðinn.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n