Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 29.06.2006, Síða 7

Fjarðarpósturinn - 29.06.2006, Síða 7
Úrslit: Fótbolti Úrvalsdeild karla: Víkingur R - FH: 0-0 FH - Grindavík: (miðv.dag) Úrvalsdeild kvenna: Stjarnan - FH: 5-0 FH - Valur: 0-15 1. deild kvenna: Haukar - KFR/Ægir: 3-0 1. deild karla: Leiknir R. Haukar: 2-5 Næstu leikir: Fótbolti 29. júní kl. 20, Ásvellir Haukar - KA (1. deild karla) 4. júlí kl. 19.15, Kaplakriki FH - Þór/KA (úrvalsdeild kvenna) 5. júlí kl. 20, Fjölnisvöllur Fjölnir - Haukar (1. deild kvenna) 6. júlí kl. 19.15, Kaplakriki FH - KR (úrvalsdeild karla) www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 29. júní 2006 Íþróttir Auglýsingar: 565 3066 Viking Cup 2006 í Kaplakrika Um þar síðustu helgi fór fram alþjóðlegt skylmingamót í skylmingum með höggsverði, Viking Cup 2006, sem gefur stig á heimslista. Keppnin er liður í Coupe du Nord mótaröðinni og gefa 8 efstu sætin stig á heims- lista skylmingamanna. Kepp- endur komu frá Danmörku, Bret- landi, Bandaríkjunum og Ástra- líu. Ragnar Ingi úr FH sigraði Danann Jörgen Kjöller í undan- úrslitum. Í úrslitum skylmdist Ragnar við Charles Worsham frá USA en sá leikur endaði 15-9 og var því sigur Ragnars nokkuð örugg- ur. Kristján Hrafn Hrafnkelsson ungur strákur úr FH gerði sé lítið fyrir og komst í áttamanna úrslit og tryggði sér þannig sitt fyrsta heimslistastig en hann tapaði naumlega fyrir Dananum Jörgen Kjöller 15-12 í að komast í undanúrslit. Aðrir keppendur frá FH voru Guðjón Ingi Gestsson 10. sæti, Ingimar Bjarni Sverr- isson 12. sæti og Arnar Bjarki Jónsson 13. sæti. Í kvennaflokki á sama móti náði Sigrún Guð- jónsdóttir 5. sæti og fékk fyrir það eitt heimslistastig og eru það hennar fyrstu stig. Eldsneytisverð 21. júní 2006 í Hafnarfirði: Sölustaður 95 okt. dísil Atlantsolía 124,8 119,2 Esso, Rvk.vegi. 126,4 120,8 Esso, Lækjargötu 126,4 120,8 Orkan, Óseyrarbraut 124,7 119,1 ÓB, Fjarðarkaup 124,7 119,1 ÓB, Melabraut 124,8 119,2 Skeljungur, Rvk.vegi 126,4 120,8 Öll verð miðast við sjálfsafgreiðslu og eru fundin á vefsíðu olíufélaganna. *16 kr. afmælisafsláttur 14. júní. Fatahreinsun JAKKAFÖT .................................... 1.550,- HEIMILISÞVOTTUR (30 stk, 15 lítil og 15 stór) ......3.790,- SKYRTUR ........................................ 380,- KÁPUR.......................................... 1.365,- GARDÍNUR (pr. kg.) ................................ 775,- ÞVOUM OG HREINSUM ALLAN FATNAÐ GLUGGATJÖLD OG MARGT FLEIRA ALLT Á HREINU SÍÐAN 1965 HRAUNBRÚN 40 SÍMI 555 1368 Lovísa Sólveig Erlingsdóttir úr FH var valinn í 17 ára lands- liðshópinn sem tekur þátt í opna Norðurlandamótinu í knatt- spyrnu sem fram fer í Finnlandi í byrjun júlí. Lovísa er 16 ára, fædd 1989 og byrjaði að leika með m.fl. FH í fyrrasumar, þá í 3. flokki og leikur nú með 2. og mfl. Lovísa er dóttir Erlings Krit- enssonar og Gyðu Úlfarsdóttur. Stelpurnar halda utan á sunnu- daginn og leika fyrsta leikinn gegn Hollendingum á mánu- daginn. Ísland leikur í riðli með Svíþjóð, Þýskalandi og Hollandi. Liðið keppir við Holland 3. júlí, við Þýskaland 4. júlí og Svíþjóð 6. júlí. Lovísa í landsliðið Afreksmannasjóður ÍBH út- hlutaði fyrir skömmu fjárfram- lögum til íþróttafélaganna í Hafnarfirði vegna verkefna og þjálfunar ungra og efnilegra íþróttamanna. Í ræðu Hafsteins Þórðarsonar, formanns sjóðsins kom fram að afrek Hafnfirskra félaga hafa verið mörg síðustu misseri og árangur á landsvísu mjög góður. Þessum góða árangri sé ekki síst að þakka, öflugu æsku og upp- eldisstarfi félaganna. „Til þess að ná enn betri árangri á alþjóða- mælikvarða þarf að hlúa enn betur að ungu afreksfólki ekki síður en þeim sem lengra hafa komist og er það markmiðið með þessari úthlutun“, sagði Hafsteinn. Að þessu sinni var úthlutað samtals kr. 675.000. Alls var sótt um fyrir 27 íþróttamenn úr 6 íþróttafélögum í samtals 8 íþróttagreinum og hlutu þeir allir styrk, 25 þúsund kr. hver. Hrafnhildur Lúthersdóttir, SH, sund, Björn Ingi Pálsson, DÍH, dans, Hanna Rún Óladóttir, DÍH, dans, Ragna Björk Ólafsdóttir, Keili, golf, Axel Bóasson, Keili, golf, Adrian Freyr Rodriguez, Björk, Taekvondo, Hildur Baldursdóttir, Björk, Taekvondo, Margrét Edda Jónsdóttir, Björk, Taekvondo, Tómas Björn Guð- mundsson, BH, badminton, Heiðar B. Sigurjónsson, BH, badminton, Ragnheiður Anna Þórsdóttir, FH, frjálsar íþróttir, Kristján Sigurðsson, FH, frjálsar íþróttir, Bogi Eggertsson, FH, frjálsar íþróttir, Guðmundur Heiðar Guðmundsson, FH, frjálsar íþróttir, Þorkell Einars- son, FH, frjálsar íþróttir, Kristján Hrafn Hrafnkellsson, FH, skylmingar, Sigrún Guðjóns- dóttir, FH, skylmingar, Halldór Guðjónsson, Björn Danél Sverr- isson, Sigurður Ágústsson, Sig- urður Arnarson, Ingibjörg Pálmadóttir, Aron Pálmarsson, Ólafur Gústafsson, Guðjón Helgason, Bjarni Aron Þórðar- son og Ólafur Guðmundsson, FH, handknattleikur. Tekjur sjóðsins eru framlög Hafnarfjarðarbæjar og ÍBH auk framlaga styrktaraðila. Úthlutað úr Afreksmannasjóði ÍBH Styrkþegarnir ásamt stjórn Afreksmannsjóðs ÍBH og fulltrúa Varðar, eins styrktaraðila sjóðsins. Lj ós m .: K ris tja na Þ ór dí s Á sg ei rs dó tti r Lovísa Sólveig Erlingsdóttir. Evrópumeistaramót karla í ólympískum hnefaleikum fara fram í Búlgaríu 13.-24. júlí nk. Einn efnilegasti boxari landsins, hafnfirðingurinn Stefán Breið- fjörð Gunnlaugsson, mun taka þátt í mótinu og verður þar með fyrsti Íslendingurinn til að fara á Evrópumót í ólympískum hnefa- leikum. Eins og mörgum er kunnugt varð Stefán Íslandsmeistari í millivigt 19 ára og eldri fyrir stuttu og var jafnframt valinn boxari kvöldsins. Evrópumeistaramót kvenna mun svo fara fram í Póllandi þann 3.-10. september nk. Ann- ar stórefnilegur boxari úr röðum HFH, Arndís Birta Sigursteins- dóttir, mun taka þátt í því móti og verður fyrsti kvenboxarinn til að taka þátt í Evrópumóti. Stefán og Arndís hafa æft undir leiðsögn Oscar Luis Justo hjá Hnefaleikafélagi Hafnar- fjarðar en Oscar hefur gífurlega mikla reynslu bæði sem boxari og þjálfari. Hann hefur mikla trú á þeim Stefáni og Arndísi sem æfa nú 14 sinnum í viku fyrir mótið. Að sögn Ágústu Heru Birgis- dóttur, formanns HFH og móður Stefáns Breiðsfjörðs hafa fjöl- margir bæst í hóp iðkenda á síðustu misserum og þá ekki síst fólk sem vill stunda skemmtilega líkamsrækt án þess þó að keppa í hnefaleikum. „Fólk er smám saman að vakna til vitundar um það að þetta er ekki hættuleg íþrótt, þvert á móti. Við hjá HFH sjáum það daglega með berum augum þegar fjölmargir flykkjast á æfingar til að rækta sál og líkama og skemmta sér vel.“ Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar hóf starfsemi sína í janúar á þessu ári og er nú eitt stærsta hnefaleikafélag landsins með hátt í 100 virka iðkendur sem fjölgar stöðugt. Stefán fyrstur á Evrópumót í ólympískum hnefaleikum Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Stefán Breiðfjörð Gunnlaugsson Drasl á bryggju Ótrúlegt var að sjá sóðaskap- inn á bryggjunni í Flensborg- arhöfn á þriðjudaginn. Og sérstaklega þar sem vitað er að starfsmönnum hafnarinnar er umhugað að halda hafnar- svæðinu hreinu. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.