Fjarðarpósturinn - 13.07.2006, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. júlí 2006
Verslum í Hafnarfirði!
. . . það e r svo s tu t t að fa ra!
Við kunnum
að meta
eignina þína!Annasamt íHafnar-
fjarðarhöfn
Skv. upplýsingum Más
Sveinbjörnssonar, fram-
kvæmdastjóra Hafnarfjaðar-
hafnar hefur verið mjög eril-
samt í höfninni „kjaftfull höfn
og haugur af skipum“ eins og
hann orðaði það á sjómanna-
máli.
Skemmtiferðaskipið Le
Diamant mun koma tvisvar og
leggjast að í Suðurhöfninni en
ekki hafa verið teknar neinar
ákvarðanir um að reyna að
fjölga slíkum skipum enda
kalli það á miklar aðgerðir á
Hafnarsvæðinu og aðkomu
fleiri aðila.
FH-ingar halda áfram á sigur-
braut í fótboltanum. Á þriðjudag
mætti liðið eistneska liðinu
Tallina VMK í Meistaradeild
Evrópu og sigraði 3-2 eftir að
hafa verið yfir 1-0 í hálfleik og
var síðan ávallt fyrri til að skora.
Tryggvi Guðmundsson kom
FH-ingum yfir á 32. mínútu eftir
gott samspil og Sigurvin Ólavs-
son bætti við örðu marki á 67.
mínútu eftir glæsilega fyrirgjöf
en mínútu síðar minnkaði
TVMK muninn og jafnaði síðan
með marki úr vítaspyrnu. Þrem-
ur mínútum eftir venjulegan
leiktíma skoraði varamaðurinn
Atli Guðnason glæsilegt mark
eftir góða fyrirgjöf langt fram á
völlinn. Glæsilegur árangur gegn
hinu sterka eistneska liði. Liðin
leika svo síðari leikinn á mið-
vikudaginn í Kaplakrika og
standa FH-ingar vel að vígi með
þrjú mörk skoruð á útivelli.
Sigurvegarinn úr þessari viður-
eign liðanna mætir pólska liðinu
Legia Varsjá.
FH sigraði í Tallin!
Á góðri siglingu í Meistaradeild Evrópu
Góður fiskdagur
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Þegar dekkið
gafst upp
Ökumaður þessa bíls hefur
vart vitað hvað á hann stóð
veðrið er afturhjól bílsins fór
undan með öxli. Óþarft er að
geta þess að hjálparlaust komst
hann ekki áfram.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n