Fjarðarpósturinn - 07.12.2006, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 7. desember 2006
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Sunnudaginn 10. desember
Fjölskylduhátíð á aðventu kl. 11
Horft til jóla — Barnakór Hafnarfjarðarkirkju syngur undir stjórn
Helgu Loftsdóttur við undirleik Önnu Magnúsdóttur.
Hljómsveitin Gleðigjafar leikur og syngur.
Eftir stundina í kirkjunni er boðið upp á góðgæti
í safnaðarheimilinu, Strandbergi.
Tekið á móti framlögum til góðgerðarmála
– Sætaferð verður frá Hvaleyrarskóla kl. 10.55 –
Æðruleysismessa kl 20 – Horft til jóla
Prestar: Sr. Ólafur Jens Sigurðsson og
sr. Gunnþór Þ. Ingason.
AAmaður (Diddi) segir sögu sína.
Hljómsveitin Gleðigjafar leikur og
syngur. Opið hús í Ljósbroti Strand-
bergs eftir messuna. Allir velkomnir.
www.hafnarf jardark i rkja. is
Jólasögustund á Bókasafni
Hafnarfjarðar
Í dag, fimmtudaginn 7. desember,
klukkan 16.30, munu krakkar úr stóru
upplestrarkeppninni lesa jólasögur á
barna- og unglingadeild. Allir vel-
komnir.
Ég man þau jólin
Jólatónleikar verða í Hafnarborg í
kvöld og 13. desember. Þema
tónleikanna er: „Gömlu góðu amer-
ísku jólalögin“ sem þekkt eru með
Frank Sinatra, Bing Crosby, Tony
Bennet, Mahailiu Jackson ofl. í
skemmtilegum djass, swing og
acapella útsetningum
Jólaþorpið
Laugardag kl. 14
Kynnir Ásgeir Páll, Skoppa og Skrítla,
Bríet Sunna, Varúð!! – Grýla á vappi,
magadanshópurinn Börn vindsins og
Kvennakór Hafnarfjarðar
Sunnudag kl. 14:
JÓLIN (eru alveg að) KOMA í
Hafnarfirði, jólaball með Gunna og
Felix, Grýla og jólasveinn.
Hafnarborg
Ofið úr þögninni, sýning Sigrúnar
Guðjónsdóttur, Rúnu í Sverrissal og
Apóteki. Á sýningunni eru stein-
leirsmyndir og verk unnin á pappír
með akrýl, olíukrít, pastel og bleki.
„Locations“ ljósmyndasýning
Spessa aðalsal. Þarna má fyrst og
fremst sjá myndir af stöðum sem bera
ummerki mannsfólksins, staði þar
sem fólk hefur komið sér fyrir, hvort
sem er í bæ, sveit eða uppi á fjöllum.
Guðný Magnúsdóttir sýnir í Boga-
skála rennd og glerjuð steinleirsform á
sýningu sem hún nefndir Snjór.
Jean Antonine Posocco sýnir mynd-
skreytingar „Vertö þægör eða ég
rassskelle þeg“ Grýla.
Yngvi Guðmundsson sýnir í kaffistofu
"Vinkonur Snæfríðar" Fótfrá og fim fljó.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 verður sýnd
ítalska kvikmyndin La cittá delle
donne (1980) eða Kvennabærinn
eins og hún hefur verið kölluð á
íslensku eftir Federico Fellini.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
franska kvikmyndin La femme D’á
Côté eftir Francois Truffaut (1981).
Myndin segir frá Bernard sem lifir
hemingjusömu lífi með eiginkonu
sinni og syni. Dag nokkurn flytur par
inn í næsta hús og þarna verða
óvæntir endurfundir Bernards og
konunnar sem höfðu verið í eldheitu
ástarsambandi mörgum árum áður.
Leikarar: Gérard Depardieu, Fanny
Ardant og Henry Garcin.
Aðventukvöld
Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og
Hafnarfjarðarkirkja efna til aðventu-
kvölds í sjötta sinn í Hafnarfjarðar-
kirkju þriðjudaginn 12. desember
kl. 20.
Edda Andrésdóttir fréttamaður flytur
hugvekju, Lay Low, Lovísa Elísabet
Sigrúnardóttir, syngur tvö lög, Karla-
kórinn Þrestir syngur undir stjórn Jóns
Kristins Cortez. Séra Þórhallur Heim-
isson leiðir athöfnina og organisti er
Jón Stefánsson.
Að athöfninni lokinni býður Krabba-
meinsfélag Hafnarfjarðar upp á kakó,
piparkökur og konfekt í safnaðarheim-
ilinu.
Jólafundur Hraunprýði
Jóla- og afmælisfundur Slysavarna-
deildarinnar Hraunprýði verður haldinn
í Skútunni þriðjudaginn 12. des-
ember, hefst með borðhaldi kl. 19.30.
Veislustjóri er Svavar Halldórsson
fréttamaður NFS. Brynja Valdís uppi-
standari, verður með uppistand.
Carlos Sanches sýnir suðræna sveiflu
og salsadansa. Glæsilegt jóla-
happdrætti. Jólahugvekja. Aðgöngu-
miðar verða seldir í versluninni Gjafa-
hús 7., 8. og 9. desember Allar konur
velkomnar.
Má birta hvað sem er í fjölmiðlum? Má
auglýsa hvað sem er? Blaðamenn vinna gjarnan
eftir siðareglum en þeim einum sem eru í
Blaðamannafélagi Íslands er skylt að fara eftir
þeim. Aðrir fara gjarnan eftir þeim og setja sér
sínar eigin siðareglur sem jafnvel geta verið
strangari en skráðu reglurnar.
T.d. er ekki að finna eina einustu ljósmynd í
Fjarðarpóstinum sl. fimm ár þar sem sést í fólk
sem reykir. Það er engin tilviljun. Þetta er aðeins
lítið dæmi en engar reglur banna slíkar birtingar. Hins vegar er
bannað með lögum að birta áfengisauglýsingar og því birtir
Fjarðarpósturinn engar slíkar. Það er einfalt mál og ætti ekki að
vefjast fyrir neinum. Varðandi almenn skrif í fjölmiðli hlýtur tilfinn-
ing blaðamannsins hvað sé rétt og forsvaranlegt að ráða hvað birt
er. Auðvitað sýnist sitt hverjum og við því er ekkert að gera og hver
og einn hefur rétt á að láta skoðun sína í ljós, líka á því sem skrifað
er í fjölmiðla enda eru blaðamenn og útgefendur ekki hafnir yfir
gagnrýni, síður en svo.
Sem betur fer hafa fjölmargir sagt undirrituðum skoðun sína á því
sem hér er skrifað og annars staðar í blaðinu og hafa skoðanir
eðlilega verið skiptar. Aldrei er skoðun lesanda látin eins og vind
um eyru þjóta en þess í stað fær hún að vera með í að móta skoðun
þess sem hér ritar, stundum mikið, stundum lítið.
Nú eru jólin framundan og oft mikið álag á fólki og eitt stærsta
vandamál nútíma Íslendings er þrautin að velja. Velja á milli eins og
annars sem fá má fyrir peninga. Kannski voru forfeður okkar
lánsamir að hafa ekki svona mikið fé en kannski því mun meiri
hamingju. Njótið aðventunnar í Guðs friði.
Guðni Gíslason
Víðistaðakirkja
2. sd. í aðventu 10. desember
Barnaguðþjónusta kl. 11:00
Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna.
Guðsþjónusta kl. 13:00
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Úlriks Ólasonar
Kyrrðarstundir
á miðvikudögum kl. 12:00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
Fjölskylduráð:
2. Áfengisauglýsingar
Fjölskylduráð samþykkir að
leggja til við bæjarstjórn: „Bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar samþykkir að
veita Sportaranum, Flatahrauni 5A
áminningu vegna brots á 20. gr.
áfengislaga um bann við aug-
lýsingum á áfengi; sbr. auglýsingu
í 44. tbl. Víkurfrétta frá 30. nóv-
ember 2006.
Áminningin hefur gildi í tvö ár frá
því að hún hefur verið birt leyfis-
hafa.“
Og
„Fjölskylduráð samþykkir að fela
forvarnarfulltrúa og upplýsinga-
fulltrúa að ræða nú þegar við rit-
stjóra Víkurfrétta og kynna honum
framangreinda tillögu sem og for-
varnarstefnu bæjarins.
Fjölskylduráð leggur áherslu á
að í samningum um birtingu aug-
lýsinga á vegum sveitarfélagsins
verði framvegis kveðið á um að
undanbragðalaust sé farið eftir
lögum og reglum um bann við
birtingu áfengisauglýsinga.“
Framkvæmdaráð:
3. Undirhlíðar, færsla á vegi
Helga Stefánsdóttir gerði grein
fyrir hugmyndum um færslu á vegi
við Undirhlíðar.
Framkvæmdaráð óskar eftir
nánari upplýsingum frá Vega-
gerðinni og leyfirhafa námunnar.
4. Vatnsmiðlunartankur í
Áslandi
Þráinn Hauksson futtrúi hönn-
uða kynnt ný drög að hönnun
vatnsmiðlunartanks í Áslandi.
Framkvæmdaráð heimilar vatn-
veitustjóra og hönnuðum að kynna
málið í skipulags- og byggingarráð
og óskar eftir deiliskipulagsbreyt-
ingu í samræmi við drögin.
Hjartað elskar fisk
Fjör í Firði
„Það var mikið fjör í verslunar-
miðstöðinni Firði um helgina og
auðséð að jólin eru að nálgast,“
segir Albert Már Steingrímsson í
samtali við Fjarðarpóstinn.
Í Fjörð kom rúmlega 9 þúsund
manns á laugardaginn og tæp 36
þúsund alla vikuna.
Rás 2 var með beina útsend-
ingu úr Firði frá kl. 11-16 á
laugardaginn og hafði Snæfríður
Ingadóttir, sem annaðist útsend-
inguna, orð á því við Albert hvað
vinaleg og fjölskylduvæn versl-
unarmiðstöðin Fjörður er.
Skemmtileg stemming að hafa
handverksmarkaðinn og svo
auðvitað jólaþorpið á Thors-
planinu.
Afgreiðslutíminn í Firði hefur
lengst eins og venja er fyrir jólin
og er nú opið alla daga og frá 14.
desember er opið til kl. 22 alla
daga.