Fjarðarpósturinn - 07.12.2006, Qupperneq 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 7. desember 2006
www.fjardarposturinn.is
eina hafnfirska bæjarblaðið
VR og VH
sameinuð
Sameining VR og Versluna-
mannafélags Hafnarfjarðar var
samþykkt með miklum meiri-
hluta greiddra atkvæða í kosn-
ingu meðal félagsmanna VH.
Á kjörskrá voru 752, kjörsókn
var 28% eða 213. Já sögðu 200
félagsmenn eða 94% þeirra
sem kusu en nei sögðu 6% eða
13. Engir seðlar voru auðir eða
ógildir. Sameiningin tók gildi
frá og með 1. janúar 2006.
Stangaveiði-
félag Hafnar-
fjarðar 55 ára
Stangaveiðifélag Hafnar-
fjarðar fagnar 55 ára afmæli 6.
des n.k. Af því tilefnni verður
opið hús í sal félagsins að
Flatahrauni 29 á laugardaginn
frá kl. 14-18 þar sem margt
fróðlegt og gott verður á boð-
stólum, t.d. kynning á félaginu.
Eiríkur St. Eíríksson verður
með kynningu og sölu á
stangaveiðihandbókum sínum,
Ingimundur Bergsson verður
með kynningu og sölu á veiði-
kortinu. Heitt kakó, kaffi, gos,
stór afmælisterta, heitar vöffl-
ur. Nú er tilvalið fyrir allt veiði-
fólk og áhugamenn um stanga-
veiði að kíkja og gæða sér á
veitingum.
Erill hjá
lögreglunni
Síðasta helgi var mjög anna-
söm í umdæmi lögreglunnar á
Álftanesi, í Garðabæ og Hafn-
arfirði. Mikið var um útköll
vegna ölvunar og alls konar
pústra, einkum í heimahús og
talsvert var um skemmdarverk,
meðal annars rúðubrot bæði í
húsum og bifreiðum. Þurfti
lögreglan að hafa afskipti af
fjölda fólks, bæði unglingum
og fullorðnum vegna þessara
mála. Engir alvarlegir áverkar
hlutust af.
Fjögur mál tengd fíkniefnum
komu til kasta lögreglunnar um
helgina, þar af eitt þar sem aðili
er grunaður um sölu fíkniefna.
Hjá honum voru haldlögð um
30 gr. af meintu amfetamíni.
Hin málin eru vegna vörslu
og/eða neyslu fíkniefna, en í
þeim var haldlagt lítilræði af
meintu amfetamíni.
Aðventukvöld
Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðar-
kirkja efna til aðventukvölds í Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 12. desember kl. 20.
Edda Andrésdóttir fréttamaður
flytur hugvekju.
Lay Low, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir,
syngur tvö lög.
Karlakórinn Þrestir syngur
undir stjórn Jóns Kristins Cortez.
Séra Þórhallur Heimisson leiðir athöfnina.
Organisti er Jón Stefánsson.
Að athöfninni lokinni býður Krabbameinsfélag
Hafnarfjarðar upp á kakó, piparkökur og konfekt
í safnaðarheimilinu.
Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar
og Hafnarfjarðarkirkja
Krabbameinsfélag
Hafnarfjarðar Ástjarnarsókn
Kirkjukórsæfingar
fimmtudaga kl. 18 í Áslandsskóla. Alltaf pláss fyrir nýtt söngfólk.
Æskó 9.-10. bekkjar í Áslandsskóla
fimmtudaga kl. 20-22
Foreldramorgnar
þriðjudaga kl. 10 - 12 í samkomusal Hauka, Ásvöllum.
TTT í Áslandsskóla
á þriðjudögum kl. 17 - 18.
Æskó 8. bekkjar í Áslandsskóla
á þriðjudögum kl. 20 - 22.
Barnakórsæfing
miðvikudaga kl. 16.30 - 18 í samkomusal Hauka, Ásvöllum.
Enn pláss fyrir nýja meðlimi, stráka og stelpur.
www.ast jarnarkirkja . is
Jólaljósin í
Hafnarfjarðarkirkjugarði
Ljósin verða afgreidd frá og með
laugardeginum 16. desember
til og með laugardagsins 23. desember
Opið frá kl 13 - 19 alla daga
Vinsamlega athugið að ekki er hægt að
greiða með debet- eða kredit kortum
Lokað aðfangadag
Ingibjörg Jónsdóttir
Sími 555 4004
Tónleikum aflýst
Áður auglýstum jólatónleikum
Kvennakórs Hafnarfjarðar er aflýst.
Við óskum öllum gleðilegra jóla
Kvennakór Hafnarfjarðar
Hrafnhildur Lúthersdóttir, 15
ára sundkona úr Sundfélagi
Hafnarfjarðar er ein af efnileg-
ustu sundkonum Íslands.
Hún er nýkomin heim af
Norðurlandamóti unglinga sem
haldið var um helgina í Finn-
landi þar sem hún varð önnur í
100 m bringusundi og bætti
besta tíma sinn og hún varð
þriðja í 50 m bringusundi og
bætti besta tíma sinn þar einnig.
Ung á sigurbraut
Hrafnhildur Lúthersdóttir synti vel í Finnlandi
Lj
ós
m
.:
H
af
st
ei
nn
In
gó
lfs
so
n
Jólatrén við Reykjavíkurveg
eru komin með nýjar ljósaseríur
og er sk. köngulóarvefur, sem
sýndur var hér í blaðinu, horfinn
af trjánum. Fjölmargir höfðu
samband við Fjarðarpóstinn og
eflaust enn fleiri við Hafnar-
fjarðarbæ til að kvarta yfir þess-
um ósóma eins og sumir kölluðu
ljósin. Greinilegt er að hlustað er
á vilja íbúana og nú geta bæjar-
búar glaðst yfir jólatrjánum á
Reykjavíkurveginum eins og
víða annars staðar í bænum.
Köngulóarvefurinn horfinn