Fjarðarpósturinn - 07.12.2006, Blaðsíða 22
22 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 7. desember 2006
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir HarðarsonSverrir Einarsson
Eldsneytisverð
6. desember 2006 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 111,2 112,0
Atlantsolía, Suðurhö. 111,2 112,0
Esso, Rvk.vegi. 112,7 113,5
Esso, Lækjargötu 112,7 113,5
Orkan, Óseyrarbraut 111,1 111,9
ÓB, Fjarðarkaup 111,2 112,0
ÓB, Melabraut 111,2 112,0
Skeljungur, Rvk.vegi 112,7 113,5
Öll verð miðast við sjálfsafgreiðslu og
eru fundin á vefsíðu olíufélaganna.
Líður þér ekki vel? Finnurður fyrir
þunglyndi, kvíða, sorg? Varðst þú
fyrir ofbeldi í æsku? Er
hjónabandið ekki í lagi?
Einstaklings miðuð meðferð -
Hugræn meðferð - Hjónaráðgjöf.
Tímapantanir í s. 868 2118
Gréta Jónsdóttir, Fjölskyldu- og
hjónaráðgjafi
Óska eftir að taka á leigu 2-3
herbegja íbúð í Hafnarfirði.
Gunnþóra, sími 896 3163.
Tökum að okkur
jólahreingerningar, flutningsþrif og
stigaganga. Vönduð og góð
þjónusta. Uppl. í síma 692 9392
og 867 9898.
VILTU PENING
Svartur 80GB IPOD tapaðist á
Brekkugötu 26 í Hafnarfirði
mánudaginn 4. des. Í honum eru
myndir og tónlist sem er sárt
saknað. VEGLEG PENINGA-
FUNDARLAUN ERU Í BOÐI. Eigandi
er Þröstur í síma 896 0315
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
Tapað - fundið
Þrif
Húsnæði óskast
Ráðgjöf
www.vaxtarvorur.com
Spjallvefur um líkamsrækt
Gjafakort í nudd
í jólapakkann
Heilsustofa Lilju og Ella
Bæjarhrauni 2, 2. h. sími 699 0858
HEILSA
Fjárfestu í líkamanum og komdu
þér í gott form með Herbalife.
Heilsuráðgjöf, eftirfylgni.
Ingibjörg, hjúkrunarfr. 691 0938
Það var mörgum illa brugðið
um síðustu helgi þegar nokkrir
fulltrúar sem sitja í kjörnefnd
Sjálfstæðisflokksins í
Suðvesturkjördæmi
fóru að krukka í niður-
stöðu prófkjörs okkar
og henda fólki út. Með
vinnubrögðum þessara
örfáu einstaklinga var
réttlætiskennd margra
misboðið. Steinunni
Guðnadóttur sem hlaut
10. sætið í prófkjörinu
er hent út en hún hlaut
1844 atkvæði í 1.-6. sæti listans,
en sá sem hlaut 9. sætið með
1865 atkvæði heldur sínu sæti.
Aðeins þriðjungur flokksbund-
inna Sjálfstæðismanna í Hafnar-
firði kom á kjörstað eða um 1100
manns, meðan um 60% kjörsókn
var í hinum sveitarfélögunum.
Því eru þetta enn furðulegri og
óskiljanleg vinnubrögð kjör-
nefndar.
Töpuð orrusta
Undirritaður var kosninga-
stjóri framboðs Steinunnar.
Ákvörðun hennar um framboð
kom fram 5-6 vikum fyrir próf-
kjör. Þessi tími var afar skemmti-
legur, allt á fullri ferð, fjöldi
fólks gekk í flokkinn, mikil gleði
og kraftur ríkjandi. Með niður-
stöðu kjörnefndar er þessi
orrusta töpuð, en það verður
blásið til nýrrar sóknar
síðar, stuðningsmenn
Steinunnar hafa ekki
lagt árar í bát,
skemmtilegu starfi
verður haldið áfram.
Stöndum saman
Einn af okkar
fremstu leiðtogum
Rósa Guðbjartsdóttir
mun skipa 7. sætið á
lista Sjálfstæðis-
flokksins fyrir Alþingiskosning-
arnar í vor. Eitt helsta áherslu-
atriði okkar í prófkjörsbaráttunni
var að Hafnfirðingur skipaði 6.
sæti listans, þannig að það
sjónarmið varð ofan á. Það er
a.m.k. okkar sigur. Ég hvet
stuðningsmenn Steinunnar að
taka ávallt hagsmuni Sjálfstæðis-
flokksins fram yfir alla aðra
hagsmuni, kjörnefndir koma og
fara, en Sjálfstæðisflokkurinn er
hin styrka stoð. Stöndum öll
saman undir forystu okkar öfl-
ugu og glæsilegu fulltrúa Þor-
gerðar Katrínar og Rósu, aðeins
þannig sigrum við saman í vor.
Höfundur er
viðskiptafræðingur
Steinunn úti
Guðmundur
Jónsson
Komið er út Átthagaspil um
Hafnarfjörð en spilið hefur að
geyma fjölmargar spurningar um
Hafnarfjörð og bæjarlíf og geta
þátttakendur í spilinu þannig
fræðst um ýmsa hluti í
skemmtilegum leik.
Það er Astrid Örn Aðal-
steinsson á Vopnafirði sem
gefur spilið út en nú eru
komin út spil fyrir 4 sveit-
arfélög.
Fjölmargir aðstoðuðu við
gerð spilsins og flestar myndir
sem prýða spjöldin koma frá
ljósmyndara Fjarðarpóstsins,
Guðna Gíslasyni, en spurn-
ingar gerðu Jón Már Halldórsson
og Jónatan Garðarsson.
Spilið fæst í Bókabúð Böðvars
og Mambó í Firði.
Átthagaspil um Hafnarfjörð
Á forsíðu Fjarðarpóstsins
þann 16. nóvember s.l. var grein
þar sem fjallað var um að
leikritið/forvörnina Hvað ef?
Mér brá nokkuð í brún þegar ég
las að forvarnarfulltrúi bæjarins
fannst að hér væri gengið of
langt. Hún segir að of langt sé
gengið með því að sýna
sjálfsvíg ungrar konu. Í gegnum
leikritið er síðan leitt í ljós að
hún var hætt á eiturlyfjum en
var þunglynd eftir notkun
þeirra. Árum seinna bindur hún
enda á líf sitt. Ég (og allir sem
ég hef rætt málið við, sem flest
voru ungmennin sem leikritinu
er beint að) er fullkomlega
ósammála. Hér er gengið mátu-
lega nógu langt.
Flestir forvarnarfyrirlestrar
sem unglingar eru látnir hlusta á
eru annaðhvort frá kennaranum,
lögreglunni eða frá fyrrverandi
fíklum. Fyrri tveir eru venjulega
3. persónu fyrirlestrar sem eiga
það til að hljóma eins og
predikanir. Og fíklarnir eru
venjulega menn sem eru búnir
að komast á stað þar sem þeir
eru þokkalega sáttir við lífið.
Sem er ekki alltaf sannleik-
urinn.
En í þessu leikriti er sýndur
blákaldur sannleikurinn. Ef fólk
ræður ekki við það hefur
leikritið náð því sem það á að
gera. Því að þá eru meiri líkur á
að sú manneskja hugsi sig mun
betur um áður en hún tekur
eitthvað sem hún veit ekki hvað
er.
Ég segi: Ekki gera neitt við
leikritið nema styðja það og
dreifa. Það á að vera skylda
allra að sjá það meðan þeir eru í
grunnskóla.
Ingimar Bjarni Sverrisson.
Mátulega langt gengið
Þessa dagana eru haldnir fjöl-
margir jólatónleikar í Tónlistar-
skólanum. Lætur nærri að allir
nemendur skólans komi fram á
einhverjum þeirra.
Sunnudaginn 10. desember
kl. 15 verða jólatónleikar
Kammersveitar skólans. Á tón-
leikunum verða flutt verk eftir
W. A. Mozart „Jólakonsert“ eftir
A. Corelli og Omnia Vincit eftir
stjórnandann sjálfan Óliver
Kentis. Gestaspilarar með sveit-
inni verða félagar úr Sinfóníu-
hljómsveit áhugamanna.
Að loknum tónleikum verður
sveitin með kaffisölu til styrktar
ferðasjóði sveitarinnar.
Þriðjudaginn 12. desember
verða jólatónleikar og jólaball
Forskólans kl. 17.10 og 18.30
Miðvikudaginn 13. des. verða
tvennir tónleikar. Jólatónleikar
Grunndeildar hefjast kl. 18 og
Jólatónleikar Miðdeildarinnar
verða kl. 20.
Fimmtudaginn 14. desember
verða síðan jólatónleikar Fram-
haldsdeildarinnar. Á öllum
þessum tónleikum verður flutt
mjög fjölbreytt tónlist. Tón-
leikarnir fara fram í Hásölum og
eru allir hjartanlega velkomnir á
tónleikana og aðgangur ókeypis
Jólatónleikar Tónlistarskólans