Fjarðarpósturinn - 07.12.2006, Page 23
Jólasveinar voru við ÓB
stöðina við Fjarðarkaup fyrir
skömmu og glöddu börn og
kaupendur því þeir sem hitta
karlana á ÓB stöðvunum fá 5 kr.
afslátt af lítranum og gætu fengið
jólagjöf í kaupbæti.
Hægt er að fylgjast með á Rás
2 eða www.ob.is hvenær karl-
arnir mæta á þína stöð. Heppinn
viðskiptavinur fékk einn daginn
ferð fyrir tvo til Evrópu og 80
aðrir fengu skemmtilegan
jólaglaðning
Jólasveinar við ÓB
Jólasveinar veita 5 kr. aukaafslátt
www.fjardarposturinn.is 23Fimmtudagur 7. desember 2006
www.fjardarposturinn.is
Handbolti
Úrvalsdeild karla:
Haukar - Fram: 31-28
Haukar - ÍR: 31-29
1. deild karla:
Grótta - FH: Miðv.dag
FH - Afurelding: 21-34
Selfoss - Haukar 2: 27-30
Körfubolti
Úrvalsdeild karla:
ÍR - Haukar: 103-90
Úrvalsdeild kvena:
Haukar - Breiðablik: 91-60
Evrópukeppni kvenna:
Gran Canaria - Haukar: 94-67
Næstu leikir:
Handbolti
10. des. kl. 16, Akureyri
Akureyri - Haukar
(úrvalsdeild karla)
10. des. kl. 20, Ásvellir
Haukar 2 - Afurelding
(1. deild karla)
Körfubolti
7. nóv. kl. 19.15, Ásvellir
Haukar - Montpellier
(Evrópukeppni kvenna)
10. des. kl. 19.15, Hveragerði
Hamar - Haukar
(úrvalsdeild kvenna)
Íþróttir
Eina hafnfirska fréttablaðið!
— kemur skilaboðum til bæjarbúa
Fatahreinsun
JAKKAFÖT .................................... 1.550,-
HEIMILISÞVOTTUR (30 stk, 15 lítil og 15 stór) ......3.790,-
SKYRTUR ........................................ 380,-
KÁPUR.......................................... 1.365,-
GARDÍNUR (pr. kg.) ................................ 775,-
ÞVOUM OG HREINSUM ALLAN FATNAÐ
GLUGGATJÖLD OG MARGT FLEIRA
ALLT Á HREINU SÍÐAN 1965
HRAUNBRÚN 40
SÍMI 555 1368
Hrafnista Hafnarfirði
Vinnustofa
Óskum eftir að ráða starfsmann á
vinnustofu Hrafnistu í Hafnarfirði
Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af að vinna
með fólki. Kunni að mála, vinna með gler og
búa til skemmtilega hluti úr margvíslegu efni.
Upplýsingar gefur Magnea í síma 585 9529
eða á magnea @hrafnista.is
Umsóknareyðublöð liggja frammi á símavakt.
Einnig er hægt að sækja um
á heimasíðu Hrafnistu, www.hrafnista.is
www.hrafnista.is
Ástjarnarsókn
Sóknarbörn þjóðkirkjunnar
í Áslandi og á Völlum
Minnum á
safnaðarfundinn
sem verður haldinn í kvöld 7. desember kl. 20.00
í Samkomusal Haukanna
Dagskrá:
Tillaga um að óskað verði eftir því að embætti sóknarprests í
Ástjarnarsókn verði auglýst laust til umsóknar.
Sóknarnefnd Ástjarnarsóknar.
www.ast jarnarkirkja . is
Nei eða já? Sumir foreldrar
kaupa áfengi fyrir börnin sín og
telja að þeir geti þannig frekar
stjórnað drykkju þeirra.
Þá er verið að horfa á
að með þessu sé hægt
að takmarka magnið,
kenna börnunum að
drekka einhverjar
„réttar“ tegundir, að
leyfa þeim frekar að
drekka léttar tegundir
en að missa þau í
hættulegri vímuefni og
með þessu telja foreldrarnir sig
tryggja að barnið drekki ekki
hættulegan landa.
Hinsvegar virðist raunin vera
önnur því að það er ýmislegt sem
bendir til að þessi rök haldi ekki
nema að takmörkuðu leiti.
• Við erum með því að kaupa
áfengi handa þeim, að viður-
kenna að þau megi drekka og þá
bera foreldrar fulla ábyrgð á því
sem upp kemur í kjölfarið.
• Rannsóknir sýna að með þessu
þá verði unglingar oftar ölvaðir
en þeir unglingar sem þurfa að
fara erfiðari leiðir við
öflun áfengis.
• Með því að láta okk-
ar eigin ungling fá
áfengi erum við í leið-
inni að auka aðgengi
annarra unglinga að
áfengi.
• Nýlegar rannsóknir
sýna að með því að
útvega unglingum
áfengi eru foreldrar að bæta við
neysluna hjá unglingnum.
Almennur árangur af for-
varnastarfi er skýr tölfræðilega
en gagnvart einstökum börnum
erum við að tryggja þeim en betri
uppvaxtarskilyrði.
Eyðum hátíðunum með unga
fólkinu og verum góðar fyrir-
myndir.
Höfundur er forvarnafulltrúi.
Á ég að kaupa vín,
fyrir börnin mín?
Geir Bjarnason
Mikið var. Virðulegur formaður
framsóknaríhaldsins hélt ræðu
um helgina og kynnti undir
baráttu fyrir næstu alþingiskosn-
ingar. Byrjað var að rakka niður
fyrrverandi formenn
framsóknaríhalds og
íhaldsins, þeim gefið á
baukinn og líkt og hjá
framsóknarmönnum þá
var það gert nokkrum
mánuðum eftir að við-
komandi formenn yfir-
gáfu stólana. Þannig
eru nú framsóknar-
íhaldsmenn og tindátar
þeirra, þora ekki að ræða málin
nema viðkomandi aðilar séu
víðsfjarri, horfnir af vettvangi.
Hvar er umræðan og lýðræðið í
slíkum flokkum? Ég held það sé
ekki til, það er bara einræði
sálarinnar sem þar ræður ríkjum
eða hefur ráðið ríkjum. Tveggja
manna tal. Er einhver von á bata,
þeir sem þekkja til sögu þessara
flokka telja að slíkt sé ekki til
staðar og hafa aldrei verið, ein sál,
ein rödd og hún skal ráða.
Þessum flokkum íhalds og
framsóknaríhalds er
ekki treystandi til
jákvæðra hvetjandi
verka það hefur svo
sannarlega sýnt sig á
umliðnum árum. Nið-
urlæging íhalds og
framsóknaríhalds hef-
ur sýnt sig á alltof
mörgum sviðum und-
anfarin ár. NATO -
Bandaríkjamenn horfnir á braut
og formenn flokkanna fóru með
skottið á milli fóta sér á fund
Bush en ekkert gerðist, komu aft-
ur með skottið enn meira lafandi
á milli fóta sér eftir viðskilnað
Bandaríkjamanna á Keflavíkur-
flugvelli, en sú niðurlæging og
skömm.
Svo biður hæstvirtur utanríkis-
ráðherra íslensku þjóðina afsök-
unar vegna leka á Keflavíkur-
flugvelli. Þetta hefði nú NATO átt
að greiða eða Bandaríkjamenn,
nei íslendingar þurfa greiða allan
pottinn. Kannski var brottför
Bandaríkjamanna og samninga-
viðræður ríkisstjórnarinnar bara
„tæknileg mistök“. Það er svo
margt sem er tæknileg mistök
þessa dagana, ja ég held bara að
íhaldið og framsóknaríhaldið séu
ein stór tæknileg mistök. En þau
þarf að leiðrétta og ekki seinna en
12. maí 2007, það skulum við
jafnaðarmenn hafa að fyrsta og
síðasta markmiði okkar.
Fram til baráttu jafnaðarmenn
látum ekki „tæknileg mistök“
ráða för á næstu árum. Íslensk
þjóð á betra skilið.
Höfundur er varaþingmaður
Samfylkingar í Suðvestur-
kjördæmi.
Hinir staðföstu
Jón Kr. Óskarsson
Lífið er
saltfiskur