Fjarðarpósturinn - 07.12.2006, Síða 24
Sóknarbörn í Kálfatjarnarsókn
í Vogum hafa óskað eftir því að
embætti prests við sóknina verði
auglýst eins og lög heimila. Var
sú ósk staðfest á safnaðarfundi
22. nóv. sl. og mun úrskurðar-
nefnd Þjóðkirkjunnar gefa álit
sitt áður en kjörmenn afgreiða
tillöguna. Verði kosið, verður
það í fyrsta sinn sem þessum
heimildarákvæðum verður beitt
eftir að æviráðning presta var
afnumin árið 1996.
Það sem gerir stöðu sitjandi
sóknarprests, Carlosar Ferrer
sérstæða, er að hann er í fullu
starfi sem prestur í Ástjarnar-
sókn í Hafnarfirði og í Kálfa-
tjarnarsókn í Vogum en þessar
tvær sóknir mynda Tjarnar-
prestakall.
Á safnaðarfundi í kvöld leggur
safnaðarnefnd fram tillögu um
að óskað verði eftir því að
embætti sóknarprests í Tjarnar-
prestakalli verði auglýst laust til
umsóknar og segir Hafsteinn
Eggertsson, sóknarnefndarfor-
maður að í þeirri tillögu felist
engin gagnrýni á sitjandi prest,
heldur sé verið að bregðast við
samþykktinni í Kálfatjarnarsókn.
Í lögum um starfshætti
Þjóðkirkjunnar er ekkert sem
segir að sóknarnefnd skuli gera
tillögu að kosningu þó önnur
sókn í sama prestakalli hafi
samþykkt slíka tillögu og er
málið flókið enda eru engin
fordæmi um slíka stöðu.
Verði ofan á að embætti prests
verði auglýst, jafnvel þó ekki
væri áhugi á slíku í Ástjarnar-
sókn, er lítil sókn að hafa mikið
vald yfir stórri sögn að mati eins
viðmælanda Fjarðarpóstsins.
Rætt var innan sóknarnefndar
fyrir alllöngu að sækja um að
Ástjarnarsókn hefði prest í 100%
stöðu en í dag deila sóknirnar
starfi prests til helminga. Í
Ástjarnarsókn eru yfir 3000
sóknarbörn og fer þeim ört
fjölgandi en í stefnumörkun um
framtíðarskipan sókna frá 2000
kemur fram að meginreglan sé
sú að meðaltalsmannfjöldi sá,
sem hver prestur á að þjóna, sé
um 2000 til 3000 sóknarbörn.
24 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 7. desember 2006
Við kunnum
að meta
eignina þína!
Nýir eigendur
bjóða ykkur velkomin á
g2 / cut hárstúdíó
lækjargötu 34b 565 5400
... málið er
bara eitthvað
gott fyrir
hárið ...
bed-head tigi catwalk d:fi crew-shave
Það er ekki á hverjum degi
sem fimm ættliðir nást saman á
mynd. Meðfylgjandi mynd var
tekin fyrir skemmstu á Hrafnistu
af fimm ættliðum. Sá elsti og sá
sem ber ábyrgð á öllu saman er
Páll Þorleifsson f.v. húsvörður í
Flensborgarskóla aðrir á mynd-
inni eru dóttir hans Gréta Páls-
dóttir, sonur hennar Pálmar Óli
Magnússon, sonur hans Smári
Pálmarsson og dóttir hans Embla
Sól Smáradóttir. - Engin furða að
Hafnfirðingum fjölgi hratt.
Fimm ættliðir
Haukar leika við franska liðið
Lattes Monpellier í Evrópu-
keppninni í körfubolta kvenna í
kvöld kl. 19.15 á Ásvöllum.
Haukastelpurnar eru efstar í
deildarkeppninni hér heima en
hafa tapað öllum sínum leikjum
í Evrópukeppninni en oft sýnt
mikla baráttu.
Evrópuleikur í
kvöld í körfubolta
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Eigendur Fjarðarkaupa vígðu á
sunnudaginn nýtt hlið að svæði
Skógræktarfélags Hafnarfjarðar
en Fjarðarkaup kostaði gerð nýs
skiltis og hliðs.
Sigurður Einarsson, arkitekt
hannaði hliðið og Halldór Þór-
ólfsson smíðaði það en báðir eru
þeir félagar í Skógræktarfélag-
inu.
Eftir athöfnina var viðstöddum
boðið í heitt súkkulaði og rjóma-
pönnukökur í skála félagsins.
Gáfu Skógræktarfélaginu hlið
Við vígslu á hliðinu.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Verður kosið um prest?
Sérstæð staða komin upp í Ástjarnarsókn - safnaðarfundur í kvöld
Carlos Ferrer sóknarprestur.