Fjarðarpósturinn - 31.01.2008, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 31. janúar 2008
FH-ingar undirbúa nú sitt
sjötta þorrablót og Risaball í
Kapla krika 9. febrúar og sem
fyrr er Björgvin Halldórsson
list rænn ráðunautur þeirra og í
sam tali við Fjarðarpóstinn segir
Björg vin að úrval lista -
mann anna verði glæsi -
legt. Má þar nefna
Ragga Bjarna og Þorgeir
Ást valds son, Geir Ólafs -
son, stórs öngvara, South
River Band og Eyjólf
Kristjáns son.Verður
Katrín Júlí us dóttir, þing -
maður veislu stjóri ásamt
Björgvini sjálf um.
Hljómsveitin Von frá
Sauðár króki leikur fyrir
dansi, hörku hljómsveit
að sögn Björgvins en
hann verður gesta söng v -
ari með þeim ásamt
Siggu Beinteins og Stef -
áni Hilm ars syni.
Sveitaball á mölinni
Árlegt Risaball og þorrablót verður í Kaplakrika
9. febrúar – og aldrei glæsilegra en nú
Björgvin Halldórsson.
Fulltrúar íbúa á Álftanesi
lögðu í gær fram athugasemdir
við skipulagsbreytingarnar á
Álfta nesi en þá rann út réttur
íbúa til að gera athugasemdir.
Sam tals voru þetta mótmæli um
það bil sjöhundruð íbúa. Sig urð -
ur Magnússon bæjarstjóri sagði
við móttöku athuga semd anna að
hann fagnaði áhuga íbúanna á
skipu lagsmálunum og að þeir
kæmu athugasemdum sínum til
bæjar yfirvalda. Bæjarstjórn og
skipulags- og byggingarnefnd
hefðu vandað mjög vinnuna við
skipulag miðsvæðisins og nú
yrði vandlega farið yfir athuga -
semdir og reynt að koma til móts
við óskir sem þar kæmu fram.
Annars vegar voru lögð fram
mótmæli um 600 íbúa þar sem
lagningu Skólavegar og lokun
hluta Breiðumýrar var mótmælt.
Lagt var til að hætt yrði við lagn -
ingu Skólavegar og að íbúða -
svæð ið við Suðurtún og Skóla -
tún og Breiðumýrin yrði höfð
óbreytt.
Hins vegar voru lögð fram
mótmæli um 100 íbúa Suðurtúns
og næsta nágrennis. Í því
mótmælabréfi var færslu á Norð -
ur nesvegi til austurs og breyttri
land notkun mótmælt og um -
hverfis mats krafist. Þá var bens -
ín stöð sem lögð er til í deili -
skipulagi hafnað. Enn fremur var
Skólavegi án opinnar Breiðu -
mýrar hafnað.
Sigurður Magnússon bæjar -
stjóri: „Meginmálið er að litlar
athuga semdir voru gerðar við
grund völl skipulagsins um hinn
græna miðbæ heldur við fá og
ein angr uð atriði. Nú þarf skipu -
lags- og byggingarnefnd og
bæjar stjórn að svara íbúunum
fljótt og vel og gera breytingar
sem koma til móts við athuga -
semdir íbúanna, en það er mikil -
vægt að framkvæmdir geti hafist
sem fyrst. Nokkurs misskilnings
gætir hjá sumum þeim sem gera
athugasemdir. Það var til dæmis
ekki ætlunin að byggja háhýsi á
spildu milli þjóðvegar og
byggðar í Suðurtúni. Þessi spilda
er utan miðsvæðaskipulagsins og
engar tillögur eru gerðar um
deiliskipulagningu húsa þar, síst
af öllu háhýsa.“
Undirskriftalistar með
athugasemdum afhentir
- bæjarstjóri segir að leitað verði farsælla lausna
Gerður Björk Sveinsdóttir og Brynja Guðmundsdóttir afhentu
Sigurði Magnússyni bæjarstjóra Álftaness mótmælabréf.
Undirskriftalistar bæjarbúa
sýna hversu annt þeir láta sér
um nærumhverfi sitt og fagna
ég því. Bæjarstjórn og skipu -
lags- og byggingarnefnd munu
nú fara vandlega yfir efni þeirra
og gera breytingar sem koma til
móts við þær athugasemdir sem
þar eru gerðar, en mikilvægt er
að framkvæmdir geti hafist sem
fyrst. Ánægjulegt er að þær
ábend ingar sem við höfum
fengið miðast við fá og af -
mörkuð atriði. Grundvöllur
skipu lags hins græna miðbæjar
heldur sér.
Sigurður Magnússon,
bæjarstjóri Álftaness
Yfirlýsing frá Sigurði Magnússyni,
bæjarstjóra Álftaness
Vegna athugasemda íbúa á Álftanesi við
fyrirhugaðar skipulagsbreytingar
Aldrei drukkið
mjólk
Friðrik Oddsson, meintur
stofnfjáreigandi, Fiddi, hefur
vakið athygli í mjólkur aug -
lýsingu frá MS þar sem hann
lýsir því yfir að hafa byrjað að
missa tennurnar á þrítugsaldri og
leiðir að því líkum að það geti
verið vegna þess að hann drekki
aldrei mjólk. Hann er sagður
áhugaleikari á heimasíðu MS.
Hann hefur vonandi ekki fengið
greitt fyrir aug lýsinguna í mjólk!
EF?
A
f
v
e
f
M
S