Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 11.06.2009, Síða 2

Fjarðarpósturinn - 11.06.2009, Síða 2
Nú er búið að mynda borgarstjórn í Borgar - byggð. Reyndar kalla þeir hana þjóðstjórn og þá eru allir flokkar komnir í meirihluta. Þetta þykir mér afar merkilegt og sýnir kannski ljóst að vilji fólks er til þess að vinna saman í stað þess að mynda minnihluta og meirihluta án þess að brotið hafi á í nokkrum málum. Jóhanna alræðis gekk svo langt að kalla minnihlutann stjórnarandstöðu strax eftir að hún tók við án þess að þeir gætu í raun verið í andstöðu við eitt eða neitt enda hafði þá ekkert verið gert. Í Grindavík er farin merkileg leið en margt er skrýtið undir steini þar í pólitíkinni. Þar gengu tveir bæjarfulltrúar til liðs við VG sem ekki átti fulltrúa í bæjarstjórn. Annar frá Frjálslynda flokknum og hinn frá Samfylkingu. Ætla þeir samt að verja samstarf Sam - fylkingar og Framsóknarflokks. Menn spyrja sig eðlilega hver tilgangur hafi verið með flokksræðinu. Fólki er bannað að kjósa fólk, verður að kjósa flokka. Fólkið í flokkunum sem kosnir voru í sveitarstjórnir geta svo yfirgefið flokkana - enda hafi þeir verið kosnir sem einstaklingar ??? og jafnvel gengið til liðs við flokk sem ekki náði inn í kosningum eða var jafnvel ekki til þá. Það er löngu tímabært að afnema flokksræðið í sveitarstjórnum enda enginn stefnumunur sem tengja má við flokkana heldur miklu frekar við einstaklingana. Með persónukjöri geta flokkarnir ekki tekið með sér farþega inn í sveitarstjórnir, fólk sem fær örfá atkvæði í prófkjöri eða er handvalið og fylgir með dugmiklu fólki í efstu sætunum inn í sveitarstjórnir. Þetta þarf að afnema. Nú fer að líða að sveitarstjórnarkosningum og ekki seinna vænna fyrir bæjarbúa að huga að því hverjum sé best treystandi að stjórna bænum okkar. Stjórnsýslu, sem ekki getur tekið á einföld - um málum eins og vitlausu skilti fyrir framan ráðhúsið er heldur ekki treystandi. Þar þarf að taka til og setja betri verklagsreglur, jafnvel gæðakerfi fyrir stjórnun bæjarfélagsins. Guðni Gíslason. 2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 11. júní 2009 Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag, kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is Sunnudagur 14. júní 1. sunnudagur eftir þrenningarhátíð Messa kl. 11 Prestur: Sr. Kjartan Jónsson. Organisti: Guðmundur Sigurðsson. Kór: Barbörukórinn í Hafnarfirði ÚTFARARÞJÓNUSTA HAFNARFJARÐAR SÍMI 565 9775 - ALLAN SÓLARHRINGINN - UTH.IS Frímann Andrésson útfararstjóri hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON útfararstjóri Víðistaðakirkja Helgistund á sumarkvöldi Sunnudaginn 14. júní kl. 20:00 Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson Allir velkomnir www.vidistadakirkja.is Líka á Netinu! www.fjardarposturinn.is Tjaldvagni stolið Hvítum Camplet tjaldvagni með gráu segli yfir var stolið í Vallarhverfinu í Hafnarfirði í vetur. Stór svartur geymslu - kassi á beisli en númerið á tjaldvagninum er JE 411 Þeir sem verða var við tjaldvagninn á ferðinni í sumar eru beðinir að hafa samband í síma 696 4607 við lögregluna í Hafnarfirði. Fundarlaun eru í boði. Námskeið um kristin tákn Leiðbeinandi er sr. Þórhallur Heimis - son. Námskeiðin verða á fimmtudagskvöldum, fyrst í kvöld kl. 20-22. Aðgangur er ókeypis og öll - um opinn. Víkingahátíð hefst á morgun Sjá nánar dagskrá á bls. 10. Specials á Fjörukránni Hljómsveitin Specials sem séhæfir sig í lögum sjöunda áratugarins heldur uppi stuðinu á dansleikjum á Fjörukránni föstudags- og laugar - dags kvöld. Varðeldur á Vormóti Hraunbúa í Krýsuvík „Lífið er leikur“ er mottó 69. Vormóts Hraunbúa sem haldið verður í Krýsuvík um helgina. Það er ætlað skátum sem koma víðs vegar að en á laugardaginn kl. 20 bjóða skátarnir gömlum skátum, velunn - urum og foreldrum skátanna á hátíðarvarðeld og boðið er upp á skátakakó og kex á eftir. Skrúðganga rétt fyrir kl. 14 Að venju leiða skátar og lúðrasveitarmenn skrúðgöngu á þjóðhátíðardaginn. Helgistund verður í Hellisgerði kl. 13.30 og þaðan verður haldið í skrúðgöngu niður Reykjavíkurveg, eftir Fjarðargötu, Strandgötu, Vesturgötu og inn Hraunbrún að Víðstaðatúni þar sem skemmtun fer fram. Sjá má dagskrá dagsins í auglýsingu á bls. 5. Vættir í Hafnarborg Tvær sýningar standa nú yfir í Hafnar borg, sýning Jónínu Guðna - dóttur, Vættir og sýning Guðnýar Guðmundsdóttur, Madame Lemon - ique og Madame Lemonborough. LOFTNETS OG SÍMAÞJÓNUSTA Viðgerðir og uppsetningar á loftnetum, diskum, heimabíóum, flatskjám. Síma- og tölvulagnir Loftnetstaekni.is sími 894 2460 Sýningin „Lífið við höfnina“ sem stendur yfir í Byggðasafninu. L j ó s m . : G u ð n i G í s l a s o n

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.