Fjarðarpósturinn - 11.06.2009, Síða 4
Á sjómannadaginn voru þrír
sjómenn heiðraðir við sjó -
mannamessu í Fríkirkjunni í
Hafnar firði. Það voru þeir
Sverrir Ingólfsson, Gunnar Þór
Gunnars son og Sigurður Njáls -
son. Allir höfðu þeir átt langan
og farsælan feril að baka við
sjómennsku og fengu þeir
heiðurspening og forláta styttu,
eftirgerð af styttu Þorkels
Guðmundssonar, Siglingu, sem
sett var upp af Sjómanna dags -
ráði árið 1974 til heiðurs
íslenskri sjómannastétt.
Karel Ingvar Karelsson
afhenti heiðurspeningana.
Sjómenn heiðraðir
Forseti Ísland veitti Íslensku
menntaverðlaunin 28. maí sl.
en verðlaunin, sem einkum eru
bundin við grunnskólastarfið,
eru veitt í fjórum flokkum;
Skóla sem sinnt hefur vel ný -
sköpun eða farsælu sam hengi í
fræðslustarfi; Kennara sem
skilað hefur merku ævi starfi
eða á annan hátt skarað framúr;
Ungum kennara sem í upphafi
kennsluferils hefur sýnt hæfi -
leika og lagt alúð við starf sitt;
Höfundi námsefnis sem stuðlað
hefur að nýjungum í skóla -
starfi.
Sylvía Pétursdóttir, kennari
við Áslandsskóla í Hafnarfirði
hlaut styrkinn í flokknum
„Ungt fólk sem í upphafi
kennslu ferils hefur sýnt
hæfileika og lagt alúð við starf
sitt“. Sylvía Pétursdóttir lauk
B.Ed.- prófi frá Kennara há -
skóla Íslands árið 2004 og hóf
kennslu þá um haustið í
Áslands skóla. Undanfarin 5 ár
hefur Sylvía annast kennslu
yngri nemenda og séð um
heimilisfræði í unglingadeild.
Hún hefur einnig verið í hópi
kennara sem leitar leiða til
úrlausnar á sértækum hegð -
unar vandamálum.
Áslandsskóli hefur verið í
mikilli uppbyggingu og hefur
Sylvía tekið virkan þátt í því
starfi með skilvirku vinnufram -
lagi sem einkennist af jákvæð -
um hug í garð kennarastarfsins
og skólans. Hún hefur verið
virkur þátttakandi í upp bygg -
ingu á sviði SMT- skólafærni,
námsmati skólans, morgun -
stund um og margskonar vinnu
með dygðir skólans. Einnig
hefur hún komið að Comeni -
usar-verkefni skólans og verk -
efni sem eykur tengsl á milli
heimilis og skóla og felst í að
bangsi fer heim og kynnist lífi
nemenda þar og kemur svo
aftur í skólann og segir frá.
Öllum þessum verkefnum hef -
ur Sylvía skilað með miklum
sóma. Sylvía sinnir starfi sínu
af mikilli alúð og virðingu, hún
hefur umhyggjusemi og kær -
leika að leiðarljósi og nær ein -
staklega vel til nemenda sinna,
samstarfsfólks og forráða -
manna barnanna.
Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi
menntamálaráðherra, sagði að
góður kennari þyrfti „að ná að
glæða áhuga nemandans, efla
góðvild hans, þroska smekk
hans, hvessa vilja hans, styrkja
réttsýni hans og auka um -
byrðarlyndi hans.“ Sylvía hefur
náð góðum árangri í þessum
anda.
„Sylvía Pétursdóttir er verð -
ugur fulltrúi ungra kennara sem
hafa sýnt hæfileika og lagt alúð
við starf sitt“, segir í dóm nefnd -
ar áliti.
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 11. júní 2009
BREYTING Á SKIPULAGI
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar, samþykkti á
fundi sínum þann 19. maí 2009, að auglýsa
tillögu um breytingu á iðnaðarsvæði
austan Reykja víkurvegar, Reykjavíkurvegur
76-80 í Hafnar firði, skv. 1. mgr. 26. gr. skipu -
lags- og byggingar laga nr. 73/1997 m.s.br.
Breytingin felst í að nýtingarhlutfall lóðanna er
hækkað úr 0,8 í 1,0. Heimilt verður að hækka
tvö hús úr einni hæð í þrjár hæðir. Byggingar -
reitur tengigangs er stækkaður og að hluta til
hækkaður. Bílastæðum ofanjarðar fækkar en
heimilt verður að gera bílakjallara syðst á lóðinni
fyrir um 200 bifreiðar.
Deiliskipulagið verður til sýnis í þjónustuveri
Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, frá 12. júní
2009 - 13. júlí 2009. Hægt er að skoða
deiliskipulagstillöguna á vef Hafnarfjarðarbæjar
www.hafnarfjordur.is. Nánari upplýsingar eru
veittar á skipulags- og byggingarsviði.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er
gefinn kostur á að gera athugasemdir við
breytinguna og skal þeim skilað skriflega til
skipulags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðar -
bæjar, eigi síðar en 27. júlí 2009. Þeir sem eigi
gera athugasemdir við breytinguna innan
tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Skipulags- og byggingarsvið Hafnarfjarðar
Rétt fyrir hvítasunnuhelgina
opnaði Aðalskoðun stækkaða
og stórendurbætta skoðunar -
stöð fyrir bíla að Skemmuvegi
6 í Kópavogi. Stöð þessi er
einnig sérstaklega hönnuð til að
taka við minni vögnum, felli-
og hjólhýsum.
Kristján Möller samgöngu -
ráðherra opnaði skoðunar stöð -
ina formlega.
Aðalskoðun
stækkar í Kópavogi
Bergur Helgason framkvæmdastjóri, Kristján Möller samgöngu -
ráðherra og Jafet S. Ólafsson stjórnarformaður vígja stöðina.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Hlaut íslensku menntaverðlaunin
Sylvía Pétursdóttir, ungur kennari í Áslandsskóla heiðruð fyrir störf sín
Sylvía ásamt forseta Íslands.
Karel Karelsson t.v. og sr. Sigríður Kristín Helgadóttir með
Sverri Ingólfssyni, Sigurði Njálssyni og Gunnari Þór Gunnars -
syni og eiginkonum þeirra.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Byggingarvöruverslunin
Mónu húsið sem stofnuð var
árið 2007 hefur breytt um
áherslur og býður nú miklu
meiri fjölbreytni en fyrr. M.a.
hefur fyrirtækið farið í samstarf
við Slippfélagið og býður nú
allar málningarvörur frá þeim.
Að sögn Steingríms Ár -
manns sonar, fram kvæmda -
stjóra Mónu hússins leggur
fyrir tækið áherslu á að bjóða
góða vöru á mjög hagstæðu
verði. Vöruúrvalið er aukið til
muna og má m.a. nefna að þar
má nú fá Stanley verkfæri,
Berker raflagnaefni, breytt
úrval af Novatio viðgerðar- og
þéttiefnum auk fjölbreytts úr -
vals af járnvörum og verk fær -
um þ.m.t. garðverkfærum.
Vænta má enn meiri fjöl -
breytni í Mónuhúsinu á næst -
unni en með þessum breyting -
um lýtur Steingrímur á versl -
unina sem nýja verslun og segir
frábær opnunartilboð vera af
því tilefni. Opið er virka daga
kl. 8-18.
Mónuhúsið bætir við málningu
Málning frá Slippfélaginu fáanleg á ný í Hafnarfirði
Steingrímur Ármannsson, framkvæmdastjóri Mónuhússins ehf.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n