Fjarðarpósturinn - 11.06.2009, Síða 7
www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 11. júní 2009
Knattspyrnu- og boltaskóli FH
hefur göngu sína enn eitt árið,
og byrjar mánudaginn 15. júní.
Knattspyrnu-
og boltaskóli FH
„ S t y r k t u r a f Ve l f e r ð a r s j ó ð i b a r n a “
Námskeiðin eru þrjú og standa yfir í 2 vikur í senn.
Námskeiðin sem í boði eru:
15. júní – 26. júní
29. júní – 10. júlí
13. júlí – 24. júlí
Boðið er upp á gæslu frá kl. 08:30.
Sú breyting verður á skólanum að nú er boðið upp á á létt hádegissnarl,
s.s. grill, ávexti, heitt brauð og drykki.
Skólanum hlotnaðist sá heiður að hljóta styrk frá Velferðasjóði barna sem rekur
„verkefnið Sumargleði“ sem hefur það að markmiði að tryggja fullan aðgang barna að
íþrótta-, leikja- og tómstundarnámskeiðum.
Með þessum frábæra stuðningi Velferðarsjóðsins, þá er hægt að lækka
námskeiðagjaldið töluvert og verður það fyrir hvert námskeið (2 vikur) 4.000 kr.
Skráning í skólann fer fram á heimasíðu FH: www.fh.is
Aðkoma í skólann er á efra svæðinu (Góuplan), mikilvægt er að komið sé með börnin
þar svo hægt sé fylgjast með hverjir eru komnir inn á svæðið.
Eins og áður, er umsjónarmaður skólans Ingvar G. Jónsson íþróttakennari og verða
fjölmargir íþróttakennarar honum til halds og trausts.
Upplýsingar um skólann:
www.fh.is
Ingvar G. Jónsson sími 864 6664.
Einnig viljum við benda á heimasíðu Velferðarsjóðs barna www.velferdarsjodur.is