Prentneminn - 28.02.1941, Blaðsíða 3
Notið félagið til að gera ykkur að nýtum
og hæfum mönnum í iðn ykkar og alls staðar,
þar sem þið verðið á ferð, og þetta mun
takast, ef þið hafið ávallt hugfast, að góðum
félaga ber skylda lil að gera jafnan fyllslar
kröfur til sjálfs sín, gefa sér aldrei eftir, en
sýna félögum sínum umburðarlyndi og vera
reiðubúninn að hlaupa undir þeirra bagga,
ef með þarf. Takist ykkur að lifa eftir þess-
ari reglu, munuð þið hafa full not þess náms,
er þið stundið, og verða að því loknu góðir
og eftirsóttir verkmenn ogerþað mikils virði,
en að auki munuð þið hafa aflað ykkur þess
þroska og þeirrar þekkingar, sem nauðsynleg
er lil að verða hlutgengir i þeirri félagslegu
barállu, er lifið krefst af hverjum manni og
er það sizt minna um vert. — Notið því vel
námsárin, blað ykkar og félag.
Heilir að starfi nemar.
Magnús H. Jónsson.
Gamla Prentnemafélagið
Fjórtánda febrúar 1920 komu saman tiu
prentnemar, á efstu hæð Iðnskólans, til þess
að stofna með sér félag, sem eingöngu álti
að vera fýrir prentnema. Ikið mun hafa ált
einhvern þátt í stofnun félagsins, að þá hafði
nýlega lognazt út af félag, sem nemendur
Iðnskólans höfðu með sér, og þá vaknaði
löngun hjá hinum fáu prentnemum til þess,
að hafa með sér félagsskap, sem sýndi,
að þeir væru ekki dauðir úr öllum æðum,
þótt skólafélagið lognaðist út af.
Félagið var stofnað af þessum tiu prent-
nemum og hlaut nafnið Prentnemafélagið. Til-
gangur félagsins var að búa prentnema sem
bezt undir starf þeirra, og efla félagslegan
þroska þeirra og auka þekkingu þeirra á list-
inni, sem þeir ætluðu að þjóna i íramtíðinni.
Tilgangur félagsins mun liafa tekizt betur
en við var búist, því yfirleitt hafa þeir, sem
voru í Prentnemafélaginu, orðið góðirfélagar
i Ilinu íslenzka prentarafélagi, sumir þeirra
gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir það og
farizt það vel lir hendi. Pó liafa ekki allir
verið eins góðir félagar og þeir, er ég nefndi
hér að framan, þvi að í einu blaði þeirra er
sagt frá þvi, að prentnema liafi verið vikið úr
félaginu fyrir að neila að greiða félagsgjöld,
en sem betur fer var það vist ekki nema
einn.
F}rrst í stað mun hafa verið gott líf í fé-
laginu, til dæmis voru á fyrsta ári haldnir 11
fundir og má það teljast gott, þegar þess er
gætt, að félagið var fátækt og gal þar af leið-
andi ekki greitt fyrir fundarhús, en varð að
vera á hnotskóm með að fá pláss fyrir fundi
ókeypis.
Skrifað blað var gefið út innan félagsins og
var það lesið upp á fundum. Ennfremur voru
fengnir menn úr prentarastéttinni til þess
að koma á fundi og ræða við prentnemana,
munu þeir liafa haft bæði gagn og gaman
af þvi.
Afmælishátíð liélt féiagið fjórtánda febrúar
1927, er það var ársgamalt, og var þá gefið
út prentað blað, er í rituðu beztu menn innan
félagsins. Hátiðin var hin bezta hvað skemmti-
atriði snerti og félaginu til mikils sóma
Bókasafni kom félagið upp hjá sér, og voru
í því meðal annarra bóka íslendingasögurnar,
sem hver prentnemi ætti að lesa, ekki einu
sinni heldur mörgum sinnum, el' hann vill
læra móðurmálið. Petta bókasafn varð síðar
visir að bókasafni H. í. P.
Fleiri mál hafði félagið á stefnuskrá sinni,
svo sem að stuðla að aukinni útiveru prent-
nema, en það er mikið skilyrði fvrir heilsu
manna, sem allt árið vinna inni, að vera úti,
þegar þess er nokkur kostur.
Félagið fylgdist vel með þeim málum, sem
á hverjum tírna voru rædd innan Prentara-
félagsins, og munu nemarnir hafa notið þess
siðar, er þeir fóru að taka þált í félagslífi
prentarafélagsins.
Félagið lag'ðist niður siðari hluta árs 1929,
en þá höíðu þeir, sem mest störfuðu í félag-
inu lokið námstíma sinum og gengu þar af
leiðandi úr félaginu og í H. í. P., og munu
þeir lial'a átt mestan þátt i þvi, að nemar og
stúlkur fengu inntöku í H. I. P.
Prentnemar! Tökum hina gömlu og góðu
félaga úr gamla Prentnemafélaginu okkur lil
fyrirmyndar, því þá mun okkur takast að gera
félag okkar að góðu og gagnlegu félagi, ekki
aðeins fyrir okkur, heldur og lika fyrir prent-
nema þá, sem koma á eftir okkur, og þá
muniim við einnig verða góðir félagar i Hinu
íslenzka prentaralélagi.
Kr. Á.
PRESTNEMINN 3