Prentneminn - 01.02.1961, Síða 4
Nokkur orð frá
rifnefndinni
Meö þessu blaði hefst 8. árg. Prentnem-
ans. Útgáfa blaðsins hófst fyrir réttum
tuttugu árum, eða 1941. Voru gefin út tvö
tölublöð það ár. Árið 1942 voru gefin út
fjögur blöð. Þrjú blöð komu út 1943 og þrjú
blöð einnig 1944. Tvö blöð komu út 1945.
Síðan lá útgáfan niðri þar til árið 1951, að
gefið var út myndarlegt afmælisrit af til-
efni þess, að þá voru tíu ár liðin frá stofn-
un Prentnemafélagsins. Afmælisritið var
28 síður og var kápusíða þess litprentuð.
Þeir sem stóðu að þessu myndarlega af-
mælisriti voru Gestur G. Árnason og Pét-
ur S. Jónsson. Þetta afmælisblað var fyrsta
og eina tölublað 6. árgangs. — Að þessu
hreystiverki loknu stöðvaðist útgáfan þar
til í fyrra, að heiðarleg tilraun var gerð til
að endurvekja útgáfuna, en því miður
tókst ekki að koma út nema einu fjögra
siðna blaði.
Það er ætlun núverandi ritnefndar að
freista þess að gefa út blað annan hvern
mánuð þetta ár, og vekja með því blaðið
af þeim dvala sem það hefur legið í s. 1.
10 ár.
Þetta er að vísu töluverð bjartsýni, en
með því að hafa blaðið ekki nema fjórar
síður hverju sinni, teljum við ekki útilokað
að þetta megi takast. Við óskum eftir því
að þið veitið okkur lið og sendið efni í blað-
ið um áhugamál ykkar. Á því byggist
að miklu leyti útgáfa blaðsins.
Við munum birta frásagnir um félags-
starfið í hverju blaði, auk þess sem reynt
verður að koma á föstum þætti, þar sem
kynntir verða prentnemar. Verður þá
kynntur einn i hvert skipti. Ætlunin er að
kynning þessi hefjist í næsta blaði.
Að lokum þetta: Prentnemar. Setjist nú
niður og skrifið það sem ykkur býr í brjósti
varðandi samtök okkar.
Hvað finnst ykkur að félagsstarfinu?
Hver eru helztu úrræði þín í þeim efnum?
Greinarnar þurfa ^kki að vera langar,
allt er tekið til beztu fyrirgreiðslu. Ef þið
kjósið heldur að skrifa undir dulnefni, þá
er það leyfilegt, með því skilyrði þó, að
ritnefndin viti hver höfundurinn er og
gætt sé hófs um það að særa ekki um of
aðra félagsmenn. Utanáskrift er Prentnem-
inn c/o Jón Júlíusson eða Bragi Garðars-
son, Prentsmiðjunni Eddu, Lindarg. 9 a.
Ritnejndin.
Aðalfundur . . .
Frh. af bls. 3.
íþróttanefnd:
Sveinbjörn Björnsson, ísafold.
Bragi Garðarsson, Eddu.
Ritnefnd:
Jón J. Júlíusson, Eddu.
Bragi Garðarsson, Eddu.
Skemmti- og ferðanefnd voru sameinað-
ar, og þess í stað komið á íþróttanefnd,
sem mun eiga að reyna að auka hið líkam-
lega þrek prentnema.
Fráfarandi formaður, Jóhann V. Árna-
son, þakkaði samstarfið á liðnu starfsári
og bauð hinn nýja formann velkominn til
starfa, og kvaðst vona að félagið ætti eftir
að dafna, prentnemum til hagsældar. Hinn
nýi formaður þakkaði það traust, er hon-
um hafði verið sýnt, og kvaðst vona, að
félagsstarfið mætti verða með sem beztum
hætti í framtíðinni.
Að stjórnarkosningu lokinni ræddu fé-
lagsmenn um félagsstarfið. Rikti mikill
áhugi fyrir því að efla félagslífið og lyíta
því úr þeim öldudal sem það hefur legið í
að undanförnu.
Fjórir prentnemar gengu í félagið á
fundinum.
Furðuleg ummæli . . .
Frh. af bls. 2.
á prenti, þá gat ritnefndin ekki látið hjá
líða að minnast á þetta, því sennilega er
þetta ein höfuð orsökin fyrir því að nýir
menn hafa tekið við stjórn félagsins. Fyrr-
nefnt ástand varð ekki þolað lengur.
J. J. J.
Ritnefnd:
Jón Júlíusson (Ábyrgðarm.),
Bragi Garðarsson.
PRENTSMIÐJAN EDDA H.F.
4
' PRENTNEMINN